Innlent

Zelen­sky þakkar Ís­lendingum fyrir stuðninginn allt frá upp­hafi inn­rásar

Heimir Már Pétursson skrifar
Zelensky segir mikilvægt að íslenskir ráðamenn láti sjá sig í Kænugarði. hann og Katrín ræddu einnig undirbúning leiðtogafundar 53 Evrópuráðsríkja í Reykjavík í maí þar sem málefni Úkraínu verða aðal umræðuefnið.
Zelensky segir mikilvægt að íslenskir ráðamenn láti sjá sig í Kænugarði. hann og Katrín ræddu einnig undirbúning leiðtogafundar 53 Evrópuráðsríkja í Reykjavík í maí þar sem málefni Úkraínu verða aðal umræðuefnið. stjórnarráðið

Úkraínuforseti þakkaði Íslendingum fyrir stuðning þeirra við Úkraínu allt frá upphafi innrásar Rússa á sameiginlegum fundi með forsætis- og utanríkisráðherra ytra í dag. Forsætisráðherra segir mikilvægt að sjá afleiðingar stríðsins með eigin augum og undirbúa leiðtogafund í Reykjavík í maí um málefni Úkraínu.

Mikil leynd hvíldi yfir ferðalagi forsætis- og utanríkisráðherra til Úkraínu. Þær lögðu af stað í gærmorgun frá Íslandi og héldu síðan með næturlest frá landamærum Póllands að Úkraínu í gærkvöldi. Þær komu til Kænugarðs snemma í morgun og fóru strax og kynntu sér ástandið í Borodianka sem Rússar náðu á sitt vald snemma í innrásinni og Bucha sem eru skammt norður af höfuðborginni.

Rússar frömdu fjöldamorð á óbreyttum borgurum í Bucha og ollu gífurlegri eyðileggingu þar og í nálægjum bæjum. Búið er að finna lík af minnsta kosti 450 manns í bænum.

Klippa: Zelensky þakkar Íslendingum fyrir stuðninginn allt frá upphafi innrásar

Í Bucha lögðu ráðherrarnir blómsveig frá íslensku þjóðinni að minnismerki um þá sem féllu í innrás Rússa og skoðuðu myndasýningu í kirkju staðarins af ástandinu eins og það var þegar Úkraínumenn höfðu hrakið innrásarliðið á brott.

Katrín segir hafa verið sláandi að hlusta á lýsingar borgarstjórans í Bucha. Þá heimsóttu þær smáhýsabyggð sem reist var með aðstoð Pólverja og fleiri sem misst hafa heimili sín.

Zelensky segir stuðning Íslendinga mikilvægan

Þórdís Kolbrún og Katrín lögðu blómsveig frá íslensku þjóðinni að minnismerki um þá sem féllu í Bucha.stjórnarráðið

Þær Katrín og Þórdís Kolbrún áttu síðan fund með Zelensky forseta og Kuleba utanríkisráðherra og fleiri ráðherrum í forsetahöllinni í Kænugarði og stóð sá fundur yfir í rúma klukkustund. Zelensky sagði mikilvægt að íslenskir ráðmenn létu sjá sig í Kænugarði.

„Það er mjög mikilvægt að þið séuð hér meðan stríðið stendur yfir og að þið hafið stutt okkur allt frá upphafi innrásarinnar. Ég færi íslensku þjóðinni bestu þakkir, ekki aðeins ríkisstjórninni, heldur fólkinu fyrir að styðja okkur,“ sagði Zelensky í upphafi fundar.

Katrín Jakobsdóttir og Volodymyr Zelensky skrifuðu undir sameiginlega yfirlýsingu þjóða sinna að loknum fundi þeirra í Kænugarði í dag.stjórnarráðið

Katrín var í sinni fyrstu heimsókn en utanríkisráðherra var í Kænugarði í nóvember ásamt utanríkisráðherrum Norðurlandanna og Eystrasaltsríkjanna.

Þá lýsti hún heimsókn sinni til Borodianka og Bucha fyrr í dag.

Auðvitað teljum við einnig brýnt að koma hingað á meðan Ísland gegnir forystu í Evrópuráðinu og sjá með eigin augum hvernig málum er háttað."

Þá lýsti hún heimsókn sinni til Borodianka og Bucha fyrr í dag.

„Þegar við heimsóttum bæina var eins og maður hefði auknar byrðar byrðar á herðum. Ég get vel ímyndað mér hvernig þér líður á hverjum degi því maður finnur í raun fyrir sorginni sem liggur í loftinu,“ sagði Katrín.

Katrín og Zelensky skrifuðu undir sameiginlega yfirlýsingu um samstarf þjóðanna að fundi loknum. Það fór mjög vel á með þeim og þau féllust í faðma til að undirstrika vináttu þjóðanna.

„Það búa um 2.700 Úkraínumenn á Íslandi núna. Þeir spjara sig einstaklega vel,” sagði Katrín á fundinum með Zelensky og Kuleba.

Zelensky vill ræða friðartillögur sínar í Reykjavík

Fréttastofan náði símaviðtali við Katrínu Jakobsdóttur þar sem hún var í bíl á leið á járnbrautarstöð í Kænugarði. Þaðan fara hún og Þórdís Kolbrún og fylgdarlið þeirra til Varsjár höfuðborgar Póllands til fundar við forsætisráðherra landsins. Rétt áður en samtalið hófst hvein í loftvarnaflautum í borginni.

„Ég var einmitt að tala við úkraínska konu sem var að segja mér að þau venjist þessu aldrei. En þetta er víst ansi algengt, að hér hvíni í loftvarnaflautum. Auðvitað fyrir okkur sem eigum ekki þessu að venjast er þetta svolítið ógnvænlegt andrúmsloft.

Vel fór á með Katrínu Jakobsdóttur forsætisráðherra og Volodymyr Zelensky forseta Úkraínu á fundi þeirra í dag.stjórnarráðið

Katrín og Þórdís Kolbrún funduðu ekki bara með forseta og utanríkisráðherra Úkraínu heldur fjölmörgum öðrum ráðherrum.

„Í stuttu máli sagt var efni fundanna um það hvernig við Íslendingar getum áfram stutt við Úkraínu. Við ætlum okkur að gera það. Við ætlum ekki að gefa neitt eftir í okkar fjárhagslega stuðningi. Þau voru að nefna áþreifanlega hluti sem við getum unnið saman í. Til dæmis hvað varðar heilbrigðismál, hvað varðar orkumál. Þar sem við getum í senn stutt við þau fjárhagslega og miðlað af þekkingu. Síðan var auðvitað töluvert rætt um leiðtogafund Evrópuráðsins á Íslandi í maí,“ segir Katrín.

Þetta hafi verið góður fundur þar sem farið var vítt og breitt yfir sviðið og þau hefðu mætt vel undirbúin til leiks.

Frá fundi Katrínar og Zelenskys fyrr í dag.stjórnarráðið

„Vitandi af þessum leiðtogafundi sem er framundan og voru með ákveðnar hugmyndir um hvernig við gætum tekið þar til umfjöllunar hugmyndir Úkraínumanna um mögulegan frið. Það má segja að það hafi verið rætt á hverjum einasta fundi í dag. Þannig að verkefnið er stórt,“ segir forsætisráðherra.

„Mér er þungt fyrir brjósti eftir að hafa komið hingað og séð ummerkin eftir stríðið og hvernig það litar allt samfélagið hér. Og skynja líka sorgina í fólkinu. Hún er áþreifanleg.“

Það væri líka sérstakt að hitta leiðtoga sem hún hefði aðeins séð og hitt á skjá hingað til. Það er öðruvísi.”

Er hann hlýr í viðkomu?

„Já, það get ég alveg sagt eftir þennan eina fund alla vega. Þá upplifði ég það,” segir Katrín Jakobsdóttir.


Tengdar fréttir

Fundi Katrínar og Zelenskys lokið

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra og Volodymyr Zelensky forseti Úkraínu áttu um klukkustundar fund í Kænugarði í dag. Þar ræddu þau meðal annars um væntanlegan leiðtogafund Evrópuráðsins í Reykjavík í maí þar sem Úkraína verður aðal dagskrárefnið.

Katrín segir sláandi að sjá afleiðingar innrásar Rússa

Forsætisráðherra segir sláandi að sjá ummerkin eftir innrás Rússa í Úkraínu og hitta íbúana sem urðu vitni af hryllingnum á fyrstu dögum innrásarinnar. Hún og utanríkisráðherra funda með forseta, forsætisráðherra Úkraínu og fleirum í Kænugarði í dag.

Katrín og Þórdís Kolbrún virða fyrir sér eyðilegginguna í Bucha

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra og Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir utanríkisráðherra eru þessa stundina í bænum Bucha í Úkraínu til að kynna sér aðstæður. Rússneskar hersveitir frömdu fjöldamorð á óbreyttum borgurum í upphafi innrásarinnar í febrúar og mars í fyrra.

Katrín og Þórdís Kolbrún á leið til Bucha

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra og Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir utanríkisráðherra eru komnar til Úkraínu eftir um sólarhrings ferðalag frá Íslandi. Þær og fylgdarlið þeirra komu með næturlest til ótilgreinda staðar snemma í morgun.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×