Banna trans konum að taka þátt í kvennalandsleikjum

Úr landsleik á milli Ástralíu og Japan í rúgbí kvenna.
Úr landsleik á milli Ástralíu og Japan í rúgbí kvenna. AFP/Patrick Hamilton

Alþjóðarúgbísambandið, IRL, hefur tekið ákvörðun um að banna trans konum að taka þátt í landsleikjum kvenna á vegum sambandsins á meðan það kannar frekar hvernig skuli hátta gjaldgengi.

Í yfirlýsingu frá IRL sagði að sambandið vildi koma jafnvægi á rétt einstaklinga til þess að keppa án þess að skapa áhættu í garð annarra þátttakenda.

IRL fylgir Alþjóðasundsambandinu, FINA, þar með að málum, en á dögunum ákvað meirihluti stjórnar sambandsins að trans sundkonum sem hefðu gengið í gegnum einhvern hluta karlkyns kynþroskaskeiðs yrði bannað að keppa í kvenna flokki.

Sebastian Coe, framkvæmdastjóri Alþjóðafrjálsíþróttasambandsins, IAAF, sagði í gær í samtali við BBC Sport að sambandið myndi íhuga að fylgja FINA að málum þegar stjórn þess kæmi saman í lok ársins.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert