Fótbolti

Ein og hálf milljón manns vildu miða á fyrsta leik heims­meistaranna

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Lionel Messi er að fara að spila sinn fyrsta landsleik sem heimsmeistari
Lionel Messi er að fara að spila sinn fyrsta landsleik sem heimsmeistari Getty/ Chris Brunskill

Skiljanlega er gríðarlega mikill áhugi á heimsmeistaraliði Argentínumanna enda fór öll argentínska þjóðin á annan endann þegar Argentína vann sinn fyrsta heimsmeistaratitil í 36 ár í desember síðastliðnum.

Það var því vitað að það yrði áhugi á fyrsta leik argentínska landsliðsins eftir HM en enginn bjóst kannski við því sem varð svo raunin.

Alls reyndu nefnilega ein og hálf milljón manns að ná sér miða á fyrsta leik heimsmeistaranna.

Leikurinn er á móti Panama og fer fram á Monumental leikvanginum í Buenos Aires, stærstu borg Argentínu.

Leikvangurinn tekur 83 þúsund manns og það þurftu því ansi margir frá að hverfa án miða. Aðeins 63 þúsund miðar fóru í sölu.

Miðaverðið á leikinn er á bilinu tólf þúsund til 49 þúsund argentínskra pesóa eða frá rúmlega átta þúsund til 34 þúsund í íslenskum krónum.

Það er frekar hátt miðaverð en það kom ekki í veg fyrir áhuga svo margra.

Það voru ekki bara stuðningsmenn argentínska landsliðsins sem vildu komast á völlinn.

„Við vildum svo geta tekið á móti öllum en við þyrftum tvo River [Monumental] velli bara til að koma fjölmiðlamönnunum fyrir. Brjálæðið í Argentínu er algjört,“ sagði Claudio Tapia, forseti argentínska knattspyrnusambandsins.

Lionel Messi ætlaði að hætta að spila með argentínska landsliðinu eftir HM en strax eftir að hann varð orðinn heimsmeistari í fyrsta sinn þá tilkynnti það að hann myndi spila áfram.

Messi verður því þarna að spila sinn fyrsta landsleik sem heimsmeistari og hvaða Argentínumaður vildi ekki vera vitna af því og monta sig síðan af því um ókomna tíð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×