Þingmaður ráðinn bæjarstjóri

Valgarður L. Jónsson, oddviti Samfylkingarinnar í bæjarsstjórn Akraness, Haraldur Benediktsson, …
Valgarður L. Jónsson, oddviti Samfylkingarinnar í bæjarsstjórn Akraness, Haraldur Benediktsson, Líf Lárusdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokks og Ragnar B. Sæmundsson, oddviti Framsóknar og frjálsra.

Haraldur Benediktsson alþingismaður hefur verið ráðinn bæjarstjóri Akraneskaupstaðar. Tekur hann við starfinu af Sævari Frey Þráinssyni, sem hefur verið ráðinn forstjóri Orkuveitu Reykjavíkur. 

Haraldur hefur síðastliðin 10 ár verið alþingismaður Sjálfstæðisflokks fyrir Norðvesturkjördæmi, þá hefur hann m.a. setið í atvinnuveganefnd, fjárlaganefnd og stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis. Hann hefur verið stjórnarformaður Orkusjóðs og veitt stjórn Fjarskiptasjóðs formennsku á síðastliðnum árum. Haraldur hefur að auki verið formaður fjölda nefnda og stýrihópa á vegum stjórnvalda og Bændasamtaka Íslands.

Í tilkynningu er haft eftir Valgarði Lyngdal Jónssyni, forseta bæjarstjórnar Akraness, að Haraldur hafu þekkingu og reynslu sem bæjarfulltrúar séu fullvissir um að muni nýtast vel í starfi bæjarstjóra, Akraneskaupstað og samfélaginu hér á Akranesi til heilla. „Alger einhugur ríkir í bæjarstjórn um ráðningu Haralds og við erum þess fullviss að hann muni veita bæjarfélaginu öfluga forystu á áframhaldandi uppgangstímum bæjarins,“ segir Valgarður í tilkynningunni. 

Þá er haft eftir Haraldi, að Akranes vera sé eitt mest spennandi sveitarfélag landsins og það sé sannarlega heiður að vera trúað fyrir starfi bæjarstjóra.  „Ég hlakka til að takast á við verkefnin með öflum hópi bæjarstjórnar og starfsmanna Akraneskaupstaðar,“ er haft eftir Haraldi í tilkynningunni. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert