Ekkert bólar á nýjum samning fyrir Messi Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 19. apríl 2021 17:01 Messi átti stóran þátt í að Börsungar lyftu spænska bikarnum um helgina. EPA-EFE/Julio Munoz Barcelona hefur ekki enn boðið hinum 33 ára gamla Lionel Messi nýjan samning en núverandi samningur hans rennur út í sumar. Lionel Messi gaf það út að lokinni síðustu leiktíð að hann vildi yfirgefa Barcelona og leita á ný mið. Þrátt fyrir ummælin var talið að Barcelona myndi samt sem áður bjóða Argentínu-manninum nýjan samning og sjá hvað hann myndi gera. Vegna bágrar fjárhagsstöðu sinnar hefur félagið hins vegar ekki getað boðið Messi nýjan samning. Það vakti athygli um helgina þegar Jorge Messi, faðir Lionel, sást í Katalóníu en hann er umboðsmaður sonar síns. Hann sást á leik Barcelona B gegn Villareal B en ku ekki hafa rætt við stjórnarmenn Börsunga um nýjan samning. Messi yngri fór mikinn um helgina er Barcelona tryggði sér sigur í spænska konungsbikarnum með 4-0 sigri á Athletic Bilbao. Messi skoraði tvívegis, þar ef þetta gull af marki sem sjá má hér að neðan. This angle of Lionel Messi's goal pic.twitter.com/SFVfTAMKk3— ESPN FC (@ESPNFC) April 17, 2021 Að leik loknum sagði Joan Laporta, forseti félagsins, að samningsmál Messi væru á réttri leið. Barcelona var meðal þeirra tólf liða sem titla sig sem stofnendur nýrrar ofurdeildar Evrópu í knattspyrnu. Ef stofnun þeirrar deildar gengur eftir þá gæti Barcelona átt efni á að bjóða Messi nýjan samning. Það verður einfaldlega að koma í ljós. Marca greindi frá.
Lionel Messi gaf það út að lokinni síðustu leiktíð að hann vildi yfirgefa Barcelona og leita á ný mið. Þrátt fyrir ummælin var talið að Barcelona myndi samt sem áður bjóða Argentínu-manninum nýjan samning og sjá hvað hann myndi gera. Vegna bágrar fjárhagsstöðu sinnar hefur félagið hins vegar ekki getað boðið Messi nýjan samning. Það vakti athygli um helgina þegar Jorge Messi, faðir Lionel, sást í Katalóníu en hann er umboðsmaður sonar síns. Hann sást á leik Barcelona B gegn Villareal B en ku ekki hafa rætt við stjórnarmenn Börsunga um nýjan samning. Messi yngri fór mikinn um helgina er Barcelona tryggði sér sigur í spænska konungsbikarnum með 4-0 sigri á Athletic Bilbao. Messi skoraði tvívegis, þar ef þetta gull af marki sem sjá má hér að neðan. This angle of Lionel Messi's goal pic.twitter.com/SFVfTAMKk3— ESPN FC (@ESPNFC) April 17, 2021 Að leik loknum sagði Joan Laporta, forseti félagsins, að samningsmál Messi væru á réttri leið. Barcelona var meðal þeirra tólf liða sem titla sig sem stofnendur nýrrar ofurdeildar Evrópu í knattspyrnu. Ef stofnun þeirrar deildar gengur eftir þá gæti Barcelona átt efni á að bjóða Messi nýjan samning. Það verður einfaldlega að koma í ljós. Marca greindi frá. Spænski boltinn, La Liga, er á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. La Liga er hluti af Stöð 2 Sport erlent sem kostar 3.990 krónur á mánuði en einnig má kaupa útsendingar sem stakan viðburð á 990 krónur.
Spænski boltinn, La Liga, er á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. La Liga er hluti af Stöð 2 Sport erlent sem kostar 3.990 krónur á mánuði en einnig má kaupa útsendingar sem stakan viðburð á 990 krónur.
Fótbolti Spænski boltinn Tengdar fréttir Fréttaskýring: Ofurdeild Evrópu Ofurdeild þetta, ofurdeild hitt. Heitasta umræðuefni dagsins er eðlilega títtnefnd ofurdeild Evrópu í knattspyrnu. Hér að neðan verður kafað ofan í hvað felst í hugmyndinni, hvernig henni verður háttað og almennt allt sem henni viðkemur. 19. apríl 2021 12:20 Barcelona bikarmeistari eftir stórsigur á Bilbao Barcelona er sigurvegari spænska konungsbikarsins í knattspyrnu eftir 4-0 sigur á Athletic Bilbao í kvöld. 17. apríl 2021 21:36 Mest lesið Barcelona þarf tæplega tuttugu milljarða fyrir lok júnímánaðar Fótbolti McIlroy í baráttunni þrátt fyrir yfirvonandi skilnað Golf „Ég táraðist smá“ Sport Uppgjörið og viðtöl: Keflavík - Njarðvík 94-91 | Tvíframlengdur spennutryllir Körfubolti „Frábært að ná sigri í fyrsta leik og í svona svakalegum leik“ Körfubolti Uppgjörið, viðtöl og myndir: Valur - Haukar 28-25 | Valskonur Íslandsmeistarar Handbolti „Svíður mjög mikið að við séum ekki nógu klókar til að klára“ Körfubolti Uppgjör: Stjarnan - KR 5-3 | Endurkoma KR-inga hófst of seint gegn Stjörnunni Íslenski boltinn Leeds í úrslit um sæti í ensku úrvalsdeildinni Enski boltinn Börsungar styrktu stöðu sína í öðru sæti Fótbolti Fleiri fréttir Barcelona þarf tæplega tuttugu milljarða fyrir lok júnímánaðar Börsungar styrktu stöðu sína í öðru sæti Bikarmeistarar Víkings í næstu umferð ásamt Keflavík og Fylkir Uppgjör: Stjarnan - KR 5-3 | Endurkoma KR-inga hófst of seint gegn Stjörnunni Leeds í úrslit um sæti í ensku úrvalsdeildinni Sverrir Ingi á toppinn í Danmörku Kolbeinn lagði upp jöfnunarmark Gautaborgar Viðar Ari skoraði og lagði upp í ótrúlegum sigri Stefán Teitur skoraði þegar Silkeborg lagði AGF annað sinn UEFA setur pressu á City Football Group Fyrirliði 21 árs landsliðs Svía skiptir um landslið Tímabilið búið hjá Ederson og City treystir á Ortega í síðustu tveimur leikjunum Margrét Lára: Mér finnst hún hafa verið stórkostleg Chelsea sló spjaldametið í deildinni Hjólaði frá Mongólíu og grét af gleði þegar hann hitti hetjuna Þriðji markahæsti landsliðsmaðurinn leggur skóna á hilluna Umboðsmaður Olise dæmdur í sex mánaða bann Rashford reiður og reifst við áhorfanda fyrir leik Fabiana brýtur blað í sögunni áður en Jói Kalli tekur við Man. United sagði konunum ekki frá ákvörðuninni Allegri afklæddist á hliðarlínunni „Sá að þeim leið aldrei illa“ Mætti á þing FIFA úr fangaklefanum Rooney segir United losa sig við nær allan leikmannahópinn Gerir sér grein fyrir erfiðu tímabili: „Þið eruð bestu stuðningsmenn í heimi“ „Þetta var ótrúlega erfitt“ Vlahovic tryggði Juventus bikarmeistaratitilinn United lyfti sér upp að hlið Newcastle Evrópudraumurinn lifir góðu lífi eftir fjórða sigurinn í röð KA sneri taflinu við í seinni hálfleik Sjá meira
Fréttaskýring: Ofurdeild Evrópu Ofurdeild þetta, ofurdeild hitt. Heitasta umræðuefni dagsins er eðlilega títtnefnd ofurdeild Evrópu í knattspyrnu. Hér að neðan verður kafað ofan í hvað felst í hugmyndinni, hvernig henni verður háttað og almennt allt sem henni viðkemur. 19. apríl 2021 12:20
Barcelona bikarmeistari eftir stórsigur á Bilbao Barcelona er sigurvegari spænska konungsbikarsins í knattspyrnu eftir 4-0 sigur á Athletic Bilbao í kvöld. 17. apríl 2021 21:36