Oddvitaáskorunin: „Verðum að girða okkur í brók“ Samúel Karl Ólason skrifar 13. september 2021 21:00 Einar og fjölskylda í Kaliforníu. Vísir stendur fyrir Oddvitaáskoruninni 2021 þar sem skorað er á oddvita allra flokka í kjördæmum um land allt að taka þátt. Áskorunin felur í sér stutta kynningu og að svara nokkrum léttum spurningum.
Einar Brynjólfsson leiðir lista Pírata í Norðausturkjördæmi í kosningunum. „Ég heiti Einar Brynjólfsson, er fæddur og uppalinn á Akureyri. Ég er kvæntur Helgu Hákonardóttur, hjúkrunarfræðingi, og eigum við þrjú börn, Atla Frey, Ásdísi Elfu og Lilju. Svo eigum við eitt barnabarn sem heitir Eygló Aría. Ég hef lengst af starfað sem framhaldsskólakennari, auk þess sem ég sat á Alþingi á einu stysta kjörtímabili Íslandssögunnar, 2016-2017.“ „Ég er eilífðarstúdent og hef lokið MA-prófi í sögu og þýsku, BA-prófi í lögfræði, hef kennsluréttindi, auk þess sem ég lagði stund á nám í íslensku á BA-stigi og í norrænum fræðum á doktorsstigi um tíma. Ætli þetta sé ekki bara orðið gott, og þó, hver veit? Ég trúi því að hægt sé að bæta íslenskt samfélag verulega með því að efla gagnsæi og auka lýðræði og útrýma spillingu sem því miður virðist vera samofin íslenskri pólitík og stjórnsýslu. Nýja stjórnarskráin er auðvitað lykillinn að þessu. Svo verðum að girða okkur í brók þegar kemur að loftslagsmálum, ef við eigum ekki að skila jörðinnni uppfullri af drullu og skít til komandi kynslóða.“ Hver er fallegasti staðurinn á Íslandi? Mývatnssveit að vetri til í fimbulkulda og logni. Hvað færðu þér í bragðaref? Borða ekki bragðaref. Uppáhalds bók? Sjálfstætt fólk, ég veit að það er klisjukennt. Uppáhalds „guilty pleasure“ lag? (skammast þín smá fyrir að hafa gaman af því – sakbitin sæla) „Gente di mare” með Umberto Tozzi. Hvar á Íslandi myndir þú helst vilja búa? (Ekki í þínu kjördæmi) Nálægt öllum börnunum mínum. Dundaðir þú þér við eitthvað á tímum Covid og samkomutakmarkana? Hámhorf eða nýtt áhugamál, sem dæmi. Stundaði nám í lögfræði af kappi. Hvað tekur þú í bekk? 140 kg án vandræða, fyrst 70 og svo aftur 70. Burstar þú tennurnar fyrir eða eftir morgunmat? Eftir morgunmat. Draumastarfið? (Fyrir utan þingsetu) Vera framhaldsskólakennari, en það er einmitt starfið mitt núna. Hvað myndir þú segja við Kim Jong Un, einræðisherra Norður-Kóreu, ef þú myndir hitta hann í einrúmi? „Lýðræði - ekkert kjaftæði.” Uppáhalds tónlistarmaður? Mark Knopfler. Besti fimmaurabrandarinn? „Má ég taka mynd af þér?” -„Nei, þá verð ég svo afmyndaður.” Ein sterkasta minningin úr æsku? Þegar ég náði ekki að kveðja pabba minn, þegar hann fór snemma sumars til að moka snjó af hálendisvegum og var lengi í burtu. Hver er fyrirmynd þín í pólitík? Kannski bara Nelson Mandela. Hann bjó yfir auðmýkt, fyrirgaf misgjörðarmönnum sínum og gerði sitt besta til að binda um sárin sem aðskilnaðarstefnan skildi eftir sig. Besta íslenska Eurovision-lagið? Gleðibankinn, að sjálfsögðu. Besta frí sem þú hefur farið í? Get ómögulega gert upp á milli þeirra, innanlands jafnt sem utan. Uppáhalds þynnkumatur? Treo-freyðitöflur, svo hammari. Hve oft hefur þú farið að sjá eldgosið? Aldrei. Uppáhalds Fóstbræðraatriði? Þú ert drekinn. Uppáhalds uppátækið frá framhaldsskólaárunum? Ekki prenthæft. Rómantískasta uppátækið? Spyrjið konuna mína að því.
Oddvitaáskorunin Alþingiskosningar 2021 Norðausturkjördæmi Píratar Mest lesið Sjö hættulegar gryfjur fyrir hjón og pör að falla í Áskorun Heyrt kjaftasögurnar um eldri mennina sem stýri henni Lífið Ekki lengur smeykur við að deila kastljósinu með Katrínu Lífið Japaninn sló heimsmet í Hlíðarfjalli Lífið Lekker hæð listakonu til sölu Lífið Jón Jónsson selur glæsihús á Seltjarnarnesi Lífið „Stundum finnst mér ég getað sigrað heiminn“ Lífið Frumsýning á Vísi: Fyrsta stiklan úr Snertingu Bíó og sjónvarp Björgólfur og Skúli í stuði í Feneyjum Lífið Suzuki mun flytja inn í höll Björgólfs Lífið Fleiri fréttir Heyrt kjaftasögurnar um eldri mennina sem stýri henni Japaninn sló heimsmet í Hlíðarfjalli Lekker hæð listakonu til sölu „Stundum finnst mér ég getað sigrað heiminn“ Svakalegasta atvinnuumsókn sem sést hefur á FM957 Vöknuðu fyrir allar aldir til að gera aðra atlögu Björgólfur og Skúli í stuði í Feneyjum Heimafæðing Örnu Ýrar: „Ekki eins hræðilegt og margir halda“ Suzuki mun flytja inn í höll Björgólfs Stefnir Megan Thee Stallion fyrir meint áreiti á vinnustað Flugfreyjuhattar Icelandair frá tískurisanum Balenciaga fá nýtt líf Ekki lengur smeykur við að deila kastljósinu með Katrínu Jón Jónsson selur glæsihús á Seltjarnarnesi Kynferðislegt ofbeldi: Kynlíf eftir áföll Karlakórinn Esja tók frægasta slagara Backstreet Boys Flott flutti ódauðlega slagara með Sálinni og Ásgeiri Trausta Myndaveisla: Pattra og Gugusar hressastar í drykkjarpartýi Steggjun endaði á árshátíð RÚV Allt klárt fyrir tilraun við heimsmet í Hlíðarfjalli Hvað ber að hafa í huga þegar hvolpur kemur á heimilið Lagið Yfirgefinn varð til þegar Valdimar öskraði á hljómsveitarmeðlimi Félag Rikka Daða selur einbýli sem áður var í eigu Rikka Daða Öskur á tónleikum Laufeyjar öfugt ofan í aðdáendur „Óraunverulegustu fréttir sem við getum fært“ Vaknaði í angist alla morgna Stjörnulífið: „Þá er maður bara að sigla inní 17. mánuðinn á þessari meðgöngu“ Ragga Gísla útskýrir gjörninginn Fred Armisen kemur til Íslands Stjörnum hlaðið partý: Viktoría Beckham á hækjum í fimmtugsafmælinu Myndaveisla: Athafnakonur fögnuðu 25 ára afmæli á Edition Sjá meira