Stefna á opnun Ævintýraborgar á bílastæðaplaninu við Laugardalsvöll Atli Ísleifsson skrifar 26. maí 2023 13:00 Bílaplanið þar sem vonir standa til að Ævintýraborgin muni rísa. Vísir/Ívar Reykjavíkurborg stefnir á að opna tímabundinn leikskóla á bílastæðaplaninu við Laugardalsvöll, næst hringtorginu á mótum Reykjavegar og Engjavegar. Gangi allt eftir er gert ráð fyrir að leikskólinn, sem yrði svokölluð Ævintýraborg, myndi opna á fyrri hluta næsta árs og geta tekið við um hundrað börnum.
Tillaga umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar að breytingu á deiliskipulagi Laugardals var lögð fyrir umhverfis- og skipulagsráði borgarinnar á fundi fyrr í vikunni en málinu hins vegar frestað. Breytingin felst í að skilgreina tímabundinn byggingarreit fyrir leikskólann Laugasól á bílastæðinu. Væri um að ræða einnar hæðar byggingareiningar og lagt til að tillagan verði afgreidd í auglýsingu. Mikið hefur verið fjallað um leikskólavandann í Reykjavík síðustu misserin, vandi sem nýr meðal annars að mönnunarvanda, myglu í leikskólabyggingum og hvernig hægt sé að brúa bilið fyrir foreldra milli fæðingarorlofs og leikskóla. Stefnt er að því að leikskólinn verði tímabundið á bílastæðinu við hringtorgið á mótum Reykjavegar og Engjavegar. Vísir/Vilhelm Skúli Helgason, borgarfulltrúi Samfylkingarinnar og formaður stýrihópsins Brúum bilið, kveðst vongóður um að hægt verði að opna Ævintýraborgina á fyrri hluta næsta árs. Skúli Helgason er formaður stýrihópsins Brúum bilið.Vísir/Vilhelm „Við erum með marga bolta á lofti varðandi leikskóla, meðal annars í Vesturbæ og Laugardal. Þessi lausn myndi hjálpa tveimur leikskólum – Laugasól og Hof – þar sem til stendur að stækka og ráðast í endurbætur,“ segir Skúli. Hann segir að um væri að ræða tímabundna lausn. „Þetta er góð lausn sem gengur vonandi eftir. Við höfum verið í samskiptum við KSÍ og vonandi kemst þetta í auglýsingu sem fyrst til að hægt sé að fá viðbrögð þeirra sem skoðun hafa á málinu. Þetta eru sambærilegar einingar og hafa verið settar upp við Eggertsgötu, Vogabyggð og við Nauthólsveg.“ Skúli segir að horft sé til þess að þarna myndu skapast leikskólapláss fyrir um hundrað börn og að vonandi yrði hægt að opna á fyrri hluta næsta árs. „En það fer einnig meðal annars eftir framleiðsluferlinu hjá birgja,“ segir Skúli. Bílastæðið sem um ræðir. Vísir/Ívar
Reykjavík Leikskólar Skóla - og menntamál Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Auglýsa eftir „eiganda“ fjármuna Innlent Trump líklegur til að græða á úrskurði Hæstaréttar Erlent Ögurstund og opnunarhóf hjá frambjóðendum Innlent Útlagar spreyjaðir gylltir Innlent „Breiðholt mesta fátæktargildra landsins“ Innlent Sigríði þykir ólíklegt að hún nái undirskriftum Innlent Framboðslistar opinberaðir eftir helgi Innlent Glæsileg þjóðbúningamessa á Hvolsvelli Innlent Tveir létust í banaslysi í Eyjafirði Innlent Helga Þórisdóttir komin með lágmarksfjölda meðmæla Innlent Fleiri fréttir Framboðslistar opinberaðir eftir helgi Auglýsa eftir „eiganda“ fjármuna Glæsileg þjóðbúningamessa á Hvolsvelli Ögurstund og opnunarhóf hjá frambjóðendum Forsetaslagurinn, leit að eiganda fjármuna og rjómablíða Fjölbreytt verkefni hjá björgunarsveitum í dag Útlagar spreyjaðir gylltir Helga Þórisdóttir komin með lágmarksfjölda meðmæla Sinueldur í Reykjanesbæ Pétur Einarsson leikari látinn Kólnar á öllu landinu eftir óvenjugóðan fyrsta sumardag „Ákveðnar efasemdir um ákveðna þætti“ Fimm teravött af orku og 20 milljarðar í samgöngur Seltjarnarnesbær gengur frá sölu á Safnatröð Sigríði þykir ólíklegt að hún nái undirskriftum Umdeilt frumvarp, íslenskan og sumarveðrið Eiríkur og Bjarni takast á um nefnd um íslenska tungu Ræða mest málefni íslenskunnar á fundum enskumælandi ráðs Tíu sektaðir vegna notkunar nagladekkja „Breiðholt mesta fátæktargildra landsins“ Segir borgarstjóra óttalegan vettling Vilja taka upp auðlindagjald að hætti Norðmanna „Dapurlegt“ að andstæðingar bólusetninga hafi svo mikil áhrif Stefnir í sólríkan og hlýjan sumardag fyrsta víða um land Eigendur sjókvíaeldis þurfa ekki að greiða auðlindagjald Tveir létust í banaslysi í Eyjafirði Veturinn sá kaldasti síðan 1999 Vill rjúfa framkvæmdastopp í orkumálum Kári Stefánsson, ákall um vaxtalækkun og hinsegin list Skemmtiferðaskip um tíu metrum frá strandi við Viðey Sjá meira