Góður leikur landsliðsmannsins dugði ekki

Ægir Þór Steinarsson lék vel í dag.
Ægir Þór Steinarsson lék vel í dag. Ljósmynd/FIBA

Gipuzkoa þurfti að sætta sig við 76:89-tap á útivelli gegn Oviedo í B-deild Spánar í körfubolta í dag.

Landsliðsmaðurinn Ægir Þór Steinarsson lék vel með Gipuzkoa og skoraði 15 stig, gaf 7 stoðsendingar og tók 7 fráköst á 36 mínútum, en það dugði ekki til.

Ægir hefur leikið vel með Gipuzkoa á tímabilinu en hann kom til liðsins frá Stjörnunni fyrir leiktíðina. Ægir og félagar eru í 10. sæti deildarinnar með fimm sigra og fimm töp í tíu leikjum.  

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert