„Fyllsta ástæða til að tapa sér ekki í umræðunni núna“ Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar 26. nóvember 2021 11:36 Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir segir enga ástæðu til að hræðast nýtt afbrigði kórónuveirunnar að svo stöddu. Það sé enn ekki orðið svo útbreitt. Vísir/Vilhelm Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir telur ekki tímabært að fara að skipuleggja hertar aðgerðir vegna fregna af nýju skæðu afbrigði kórónuveirunnar. Evrópusambandið hefur boðað flugbann frá svæðum þar sem afbrigðið hefur skotið upp kollinum.
Nýja afbrigðið kallast nú B.1.1.529 og hefur greinst víða um Suður-Afríku að undanförnu. Minnst 77 tilfelli afbrigðisins hafa verið staðfest þar. Menn óttast að það sé bæði smitnæmara og mögulega líklegra til að komast hjá ónæmisvörnum líkamans. Þórólfur segir nýja afbrigðið áhyggjuefni en telur ekki tímabært að fara að skipuleggja einhverjar aðgerðir vegna þess. „Það er ákveðið áhyggjuefni en við skulum bara bíða róleg og sjá hvernig þetta verður. Það eru mjög margir að fjalla um þetta og menn eru að skoða hversu alvarlegra þetta afbrigði er en önnur afbrigði,“ segir Þórólfur í samtali við fréttastofu. Klippa: Þórólfur um nýtt afbrigði Covid „Ég minni líka á það að við erum með ákveðnar aðgerðir á landamærunum hér sem aðrir eru ekki með. Við líka raðgreinum allar veirur hér sem greinast sem aðrir gera ekki þannig að ég held að við séum ágætlega undirbúin til að taka á móti ef þetta skyldi koma hingað. Auðvitað sjáum við bara til og það er alveg hugsanlegt ef þróunin verður eitthvað óhagstæð að við þurfum að grípa til einhverra harðari aðgerða á landamærunum, en við skulum bara sjá til.“ Ekki tilefni til að stoppa flug Hann segir afbrigðið enn ekki hafa greinst hér á landi. Hann telur þá ekki ástæðu til að grípa til hertari aðgerða á landamærum, afbrigðið sé ekki orðið svo útbreitt. „Það eru nokkrar þjóðir sem eru að stoppa beint flug frá þessum svæðum þar sem þetta hefur greinst en það er ekkert beint flug frá okkur þannig að ég held að þær aðgerðir sem við erum með séu bara nokkuð góðar þannig að við skulum bara sjá aðeins til og anda rólega,“ segir Þórólfur. Klippa: Varar fólk við að tapa sér í umræðunni Hann varar fólk við því að „tapa sér í umræðunni“. „Það er fyllsta ástæða til að tapa sér ekki í umræðunni núna. Við förum ekkert að setja okkur plön og fara langt fram úr sér. Ég minni líka á að það hafa áður komið upp afbrigði sem við höfum haft áhyggjur af. Áður hefur komið upp afbrigði til dæmis í Suður-Afríku, Brasilíu og fleiri stöðum sem maður hefur haft áhyggjur af og sem virutst vera mun verri en varð síðan ekkert úr,“ segir Þórólfur. „Við þurfum að sjá til og tapa okkur ekki í umræðunni.“
Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Bólusetningar Tengdar fréttir 149 greindust með Covid-19 í gær 149 greindust með Covid-19 innanlands í gær. Af þeim voru 92 fullbólusettir og 57 óbólusettir. 26. nóvember 2021 11:00 ESB boðar flugbann og WHO fundar um nýja afbrigðið Ursula von der Leyen, forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, greindi frá því á Twitter í morgun að framkvæmdastjórnin myndi leggja til, í samráði við aðildarríki sambandsins, að banna flug frá suðurhluta Afríku. 26. nóvember 2021 10:31 Kári hvetur fólk til að draga andann og bíða gagna um nýtt afbrigði Það er fræðilega mögulegt og líklega hafa menn einhverjar vísbendingar um að nýtt afbrigði SARS-CoV-2 sé meira smitandi og líklegra til að komast hjá ónæmisvörnum líkamans en það hefur alls ekki verið sannað enn sem komið er. 26. nóvember 2021 07:58 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Segir upp hjá RÚV og snýr sér að pólitík Innlent Hættur við að styðja Höllu Hrund Innlent Dramatík þegar tveimur var tilkynnt um ólögleg framboð Innlent Viktor og Kári heltast úr lestinni Innlent Halla Hrund fremst í nýrri könnun og Katrín dottin niður í þriðja sæti Innlent Helmingurinn af búslóðinni í ruslið Innlent Guðrún á Glitstöðum segir vaðið yfir vilja almennings Innlent Ástand hinnar látnu bar þess merki að henni hefði verið ráðinn bani Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Boða verkfallsaðgerðir á Keflavíkurflugvelli í maí Innlent Fleiri fréttir Vinstri græn aldrei með minna fylgi Eltihrellirinn langoftast fyrrverandi maki Ógild framboð, flug í lamasessi og draumaferð í Disney „Ég held að Landskjörstjórn þurfi að endurskoða sína lögfræðiþekkingu“ Hættur við að styðja Höllu Hrund Meðferðarstöðinni Vík lokað í sumar Boða verkfallsaðgerðir á Keflavíkurflugvelli í maí Kjörinn heiðursmeðlimur í bandarísku lista- og vísindaakademíuna Guðrún á Glitstöðum segir vaðið yfir vilja almennings Helmingurinn af búslóðinni í ruslið Fyrstu tilnefningar til Vigdísarverðlauna Evrópuráðsþingsins kynntar á Alþingi Segir upp hjá RÚV og snýr sér að pólitík Ellefu verða í framboði til embættis forseta Íslands Landlæknir fer með ákvörðun Persónuverndar fyrir dóm Stór hópur fanga sem ekki treystir stofnunum Viktor og Kári heltast úr lestinni Ástand hinnar látnu bar þess merki að henni hefði verið ráðinn bani Dramatík þegar tveimur var tilkynnt um ólögleg framboð Best ef forseti hefur ekki verið í stjórnmálastarfi Ráðherra kynnir nýtt mælaborð farsældar barna Skjálfti við Bláfjöll í morgun og óbreytt við Sundhnúk Ætlaði að ganga frá álverinu og upp á Keflavíkurflugvöll Halla Hrund fremst í nýrri könnun og Katrín dottin niður í þriðja sæti Vopnuð rán tíðari en fólk gerir sér grein fyrir Óttast að saga slökkviliða á Íslandi glatist Plokkdagurinn mikli haldinn hátíðlegur um land allt Á ofsahraða undir áhrifum fíkniefna Efnahagsstefnan sé að ýta fólki í verðtryggð lán Ók blindfullur við Grímsvötn og hótaði að drepa alla Langt í að þeir nái sér að fullu Sjá meira
149 greindust með Covid-19 í gær 149 greindust með Covid-19 innanlands í gær. Af þeim voru 92 fullbólusettir og 57 óbólusettir. 26. nóvember 2021 11:00
ESB boðar flugbann og WHO fundar um nýja afbrigðið Ursula von der Leyen, forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, greindi frá því á Twitter í morgun að framkvæmdastjórnin myndi leggja til, í samráði við aðildarríki sambandsins, að banna flug frá suðurhluta Afríku. 26. nóvember 2021 10:31
Kári hvetur fólk til að draga andann og bíða gagna um nýtt afbrigði Það er fræðilega mögulegt og líklega hafa menn einhverjar vísbendingar um að nýtt afbrigði SARS-CoV-2 sé meira smitandi og líklegra til að komast hjá ónæmisvörnum líkamans en það hefur alls ekki verið sannað enn sem komið er. 26. nóvember 2021 07:58