Tuchel staðfesti að Rudiger byrji þrátt fyrir lætin á æfingu Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 6. apríl 2021 20:30 Antonio Rüdiger byrjar leik Chelsea gegn Porto í Meistaradeild Evrópu í kvöld. EPA-EFE/Mike Hewitt Þýski varnarmaðurinn Antonio Rüdiger og spænska markverðinum Kepa Arrizabalaga lenti saman á æfingu Chelsea á sunnudag. Samherjar þeirra þurftu að stíga inn í til að koma í veg fyrir að leikmennirnir létu hnefana tala. Thomas Tuchel, þjálfari Chelsea, staðfesti á blaðamannafundi í dag að Rüdiger yrði í byrjunarliðinu annað kvöld er liðið mætir Porto í 8-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu. Rüdiger og Kepa lenti saman á æfingu á sunnudag en degi áður hafði Chelsea tapað 5-2 gegn West Bromwich Albion í ensku úrvalsdeildinni. Liðsfélagar þeirra þurftu á endanum að stíga á milli til að koma í veg fyrir að hlutirnir færu úr böndunum. Rüdiger baðst á endanum afsökunar á hegðun sinni og því er málið útkljáð af hálfu Tuchel og þjálfarateymis félagsins. Thomas Tuchel confirms Antonio Rudiger will start for Chelsea against Porto despite 'serious' training ground bust-up | @Matt_Law_DT https://t.co/3evaI8cswR— Telegraph Sport (@TelegraphSport) April 6, 2021 „Atvikið var alvarlegt. Stundum eiga sér stað atvik á æfingum þar sem maður horfir í hina áttina og leyfir leikmönnum að útkljá málin á eigin spýtur. Þetta var ekki eitt af þeim atvikum. Við þurftum að stíga inn í og koma í veg fyrir að hlutirnir yrðu verri. Hvernig leikmennirnir hafa höndlað málið sýnir mikinn karakter af þeirra hálfu en atvikið var samt sem áður alvarlegt,“ sagði Tuchel á blaðamannafundi fyrir leikinn gegn Porto. „Þetta hafði ekkert með tapið gegn WBA að gera. Þetta var bara atvik á æfingu. Við sættum okkur ekki við hegðun sem þessa en svona hlutir gerast. Þeir eru keppnismenn og vilja vinna á æfingum. Viðbrögð þeirra voru ekki í lagi en hvernig þeir hafa höndlað málið síðan þá sýnir hversu mikla virðingu þeir hafa fyrir hvor öðrum.“ Aðspurður hvort Rüdiger myndi byrja leikinn gegn Porto eftir að hafa verið á bekknum er Chelsea tapaði fyrir WBA var svarið stutt og laggott: „Já.“ "It was serious..."Thomas Tuchel opens up on Antonio Rudiger and Kepa Arrizabalaga's training ground incident after shock defeat to West Brompic.twitter.com/7LPkgdulGC— Sky Sports Premier League (@SkySportsPL) April 6, 2021 Leikur Chelsea og Porto hefst klukkan 19:00 annað kvöld og verður sýndur beint á Stöð 2 Sport 2. Á sama tíma hefst leikur Bayern Munchen og Paris Saint-Germain sem verður sýndur á Stöð 2 Sport 3. Upphitun fyrir leiki kvöldsins hefst klukkan 18:15 á Stöð 2 Sport 2 og þeir verða svo gerðir upp í Meistaradeildarmörkunum klukkan 21:00. Meistaradeild Evrópu er á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Meistaradeildin er hluti af Stöð 2 Sport erlent sem kostar 3.990 krónur á mánuði en einnig má kaupa útsendingar sem stakan viðburð á 990 krónur. Fótbolti Meistaradeild Evrópu Mest lesið Bakgarðshlaupið í beinni útsendingu Sport Féllu á meðan þjálfarinn sem þeir ráku hélt Blackburn uppi Enski boltinn Fengu myndsímtal frá Ed Sheeran í búningsklefanum Enski boltinn Hetja Keflvíkinga hafði aldrei áður skorað svona flautukörfu á ferlinum Körfubolti „Ég sakna hennar á hverjum degi“ Handbolti Segir „mjög líklegt“ að Guðlaug Edda komist á ÓL í París í sumar Sport Lehmann keypti „Invincibles“ nafnið eftir að Arsenal sofnaði á verðinum Enski boltinn HSÍ lengir bann Einars: „Framganga þjálfarans var mjög ógnandi og ódrengileg“ Handbolti Sú markahæsta með tár á hvarmi er hún tilkynnti brotthvarf sitt frá Chelsea Enski boltinn NBA meistararnir réðu ekki við hinn magnaða Anthony Edwards Körfubolti Fleiri fréttir Andri Lucas skoraði og Andri Fannar fagnaði sigri á toppliðinu PSV Eindhoven hollenskur meistari í fyrsta sinn í sex ár Í beinni: Chelsea - West Ham | Evrópuvonir lifa eða deyja Lehmann keypti „Invincibles“ nafnið eftir að Arsenal sofnaði á verðinum Sjáðu Andra Rúnar opna reikninginn og mörkin sem færðu FH sigur Messi með ótrúlegt stoðsendingmet í MLS deildinni í nótt Fengu myndsímtal frá Ed Sheeran í búningsklefanum Segir að móðurhlutverkið hafi gert sig að betri leikmanni Féllu á meðan þjálfarinn sem þeir ráku hélt Blackburn uppi Sú markahæsta með tár á hvarmi er hún tilkynnti brotthvarf sitt frá Chelsea Enginn náð í fleiri stig en McKenna síðan hann tók við Ipswich „Við þurfum níu stig til að vinna titilinn“ Girona í fyrsta sinn í Meistaradeild Evrópu og tryggði Real í leiðinni titilinn Skoraði fernu og Englandsmeistararnir halda í við Skytturnar „Lítur ekki vel út með Elmar, ég er hræddur um að þetta sé svipað og hjá Eiði“ Real Madrid náði fjórtán stiga forskoti á toppnum Kane skoraði en Bayern tapaði Newcastle fór illa með Jóa Berg og félaga á Turf Moor Uppgjörið: FH - Vestri 3-2 | FH kom til baka og vann fjórða leikinn í röð Eyjamenn byrja fótboltasumarið ekki vel Kristín Dís og Þórdís fögnuðu sigri en það gekk illa hjá Halmstad strákunum Diljá og félagar töpuðu toppslagnum á heimavelli Arsenal menn kláruðu sitt og nú er pressan á Man. City Ipswich Town aftur upp í ensku úrvalsdeildina eftir 22 ára fjarveru Þórir bæði með mark og stoðsendingu Andrea á batavegi: „Gott fyrir alla að sjá hana brosandi“ Glódís Perla þýskur meistari annað árið í röð Arteta segir að Gabriel Jesus sé ekki á förum í sumar Með sjö í þremur: „Kannski margir sem afskrifa mann en mér finnst ég eiga nóg eftir“ Clattenburg hættur og segist hafa verið skotmark sérfræðinga Sjá meira
Thomas Tuchel, þjálfari Chelsea, staðfesti á blaðamannafundi í dag að Rüdiger yrði í byrjunarliðinu annað kvöld er liðið mætir Porto í 8-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu. Rüdiger og Kepa lenti saman á æfingu á sunnudag en degi áður hafði Chelsea tapað 5-2 gegn West Bromwich Albion í ensku úrvalsdeildinni. Liðsfélagar þeirra þurftu á endanum að stíga á milli til að koma í veg fyrir að hlutirnir færu úr böndunum. Rüdiger baðst á endanum afsökunar á hegðun sinni og því er málið útkljáð af hálfu Tuchel og þjálfarateymis félagsins. Thomas Tuchel confirms Antonio Rudiger will start for Chelsea against Porto despite 'serious' training ground bust-up | @Matt_Law_DT https://t.co/3evaI8cswR— Telegraph Sport (@TelegraphSport) April 6, 2021 „Atvikið var alvarlegt. Stundum eiga sér stað atvik á æfingum þar sem maður horfir í hina áttina og leyfir leikmönnum að útkljá málin á eigin spýtur. Þetta var ekki eitt af þeim atvikum. Við þurftum að stíga inn í og koma í veg fyrir að hlutirnir yrðu verri. Hvernig leikmennirnir hafa höndlað málið sýnir mikinn karakter af þeirra hálfu en atvikið var samt sem áður alvarlegt,“ sagði Tuchel á blaðamannafundi fyrir leikinn gegn Porto. „Þetta hafði ekkert með tapið gegn WBA að gera. Þetta var bara atvik á æfingu. Við sættum okkur ekki við hegðun sem þessa en svona hlutir gerast. Þeir eru keppnismenn og vilja vinna á æfingum. Viðbrögð þeirra voru ekki í lagi en hvernig þeir hafa höndlað málið síðan þá sýnir hversu mikla virðingu þeir hafa fyrir hvor öðrum.“ Aðspurður hvort Rüdiger myndi byrja leikinn gegn Porto eftir að hafa verið á bekknum er Chelsea tapaði fyrir WBA var svarið stutt og laggott: „Já.“ "It was serious..."Thomas Tuchel opens up on Antonio Rudiger and Kepa Arrizabalaga's training ground incident after shock defeat to West Brompic.twitter.com/7LPkgdulGC— Sky Sports Premier League (@SkySportsPL) April 6, 2021 Leikur Chelsea og Porto hefst klukkan 19:00 annað kvöld og verður sýndur beint á Stöð 2 Sport 2. Á sama tíma hefst leikur Bayern Munchen og Paris Saint-Germain sem verður sýndur á Stöð 2 Sport 3. Upphitun fyrir leiki kvöldsins hefst klukkan 18:15 á Stöð 2 Sport 2 og þeir verða svo gerðir upp í Meistaradeildarmörkunum klukkan 21:00. Meistaradeild Evrópu er á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Meistaradeildin er hluti af Stöð 2 Sport erlent sem kostar 3.990 krónur á mánuði en einnig má kaupa útsendingar sem stakan viðburð á 990 krónur.
Meistaradeild Evrópu er á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Meistaradeildin er hluti af Stöð 2 Sport erlent sem kostar 3.990 krónur á mánuði en einnig má kaupa útsendingar sem stakan viðburð á 990 krónur.
Fótbolti Meistaradeild Evrópu Mest lesið Bakgarðshlaupið í beinni útsendingu Sport Féllu á meðan þjálfarinn sem þeir ráku hélt Blackburn uppi Enski boltinn Fengu myndsímtal frá Ed Sheeran í búningsklefanum Enski boltinn Hetja Keflvíkinga hafði aldrei áður skorað svona flautukörfu á ferlinum Körfubolti „Ég sakna hennar á hverjum degi“ Handbolti Segir „mjög líklegt“ að Guðlaug Edda komist á ÓL í París í sumar Sport Lehmann keypti „Invincibles“ nafnið eftir að Arsenal sofnaði á verðinum Enski boltinn HSÍ lengir bann Einars: „Framganga þjálfarans var mjög ógnandi og ódrengileg“ Handbolti Sú markahæsta með tár á hvarmi er hún tilkynnti brotthvarf sitt frá Chelsea Enski boltinn NBA meistararnir réðu ekki við hinn magnaða Anthony Edwards Körfubolti Fleiri fréttir Andri Lucas skoraði og Andri Fannar fagnaði sigri á toppliðinu PSV Eindhoven hollenskur meistari í fyrsta sinn í sex ár Í beinni: Chelsea - West Ham | Evrópuvonir lifa eða deyja Lehmann keypti „Invincibles“ nafnið eftir að Arsenal sofnaði á verðinum Sjáðu Andra Rúnar opna reikninginn og mörkin sem færðu FH sigur Messi með ótrúlegt stoðsendingmet í MLS deildinni í nótt Fengu myndsímtal frá Ed Sheeran í búningsklefanum Segir að móðurhlutverkið hafi gert sig að betri leikmanni Féllu á meðan þjálfarinn sem þeir ráku hélt Blackburn uppi Sú markahæsta með tár á hvarmi er hún tilkynnti brotthvarf sitt frá Chelsea Enginn náð í fleiri stig en McKenna síðan hann tók við Ipswich „Við þurfum níu stig til að vinna titilinn“ Girona í fyrsta sinn í Meistaradeild Evrópu og tryggði Real í leiðinni titilinn Skoraði fernu og Englandsmeistararnir halda í við Skytturnar „Lítur ekki vel út með Elmar, ég er hræddur um að þetta sé svipað og hjá Eiði“ Real Madrid náði fjórtán stiga forskoti á toppnum Kane skoraði en Bayern tapaði Newcastle fór illa með Jóa Berg og félaga á Turf Moor Uppgjörið: FH - Vestri 3-2 | FH kom til baka og vann fjórða leikinn í röð Eyjamenn byrja fótboltasumarið ekki vel Kristín Dís og Þórdís fögnuðu sigri en það gekk illa hjá Halmstad strákunum Diljá og félagar töpuðu toppslagnum á heimavelli Arsenal menn kláruðu sitt og nú er pressan á Man. City Ipswich Town aftur upp í ensku úrvalsdeildina eftir 22 ára fjarveru Þórir bæði með mark og stoðsendingu Andrea á batavegi: „Gott fyrir alla að sjá hana brosandi“ Glódís Perla þýskur meistari annað árið í röð Arteta segir að Gabriel Jesus sé ekki á förum í sumar Með sjö í þremur: „Kannski margir sem afskrifa mann en mér finnst ég eiga nóg eftir“ Clattenburg hættur og segist hafa verið skotmark sérfræðinga Sjá meira