Sjáðu fáránleg mistök Courtois í sigri Belga á Dönum Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 19. nóvember 2020 17:01 Thibaut Courtois horfir á eftir boltanum í markið eftir skelfileg mistök sín í leik Belga og Dana í gær. getty/John Berr
Thibaut Courtois, markvörður Spánarmeistara Real Madrid, gerði sig sekan um ótrúleg mistök í leik Belgíu og Danmerkur í riðli 2 í A-deild Þjóðadeildarinnar í gær. Það kom þó ekki að sök því Belgar unnu leikinn, 4-2, og tryggðu sér þar með sæti í úrslitum Þjóðardeildarinnar á næsta ári. Yuri Tielemans kom Belgum yfir strax á 3. mínútu þegar hann skoraði með góðu skoti fyrir utan vítateig sem samherji hans hjá Leicester City, Kasper Schmeichel, réði ekki við. Á 17. mínútu jafnaði Jonas Wind með skalla og staðan í hálfleik var 1-1. Næst var röðin komin að Romelu Lukaku. Hann kom Belgíu aftur yfir á 56. mínútu eftir sendingu frá Kevin De Bruyne og skoraði svo sitt annað mark og þriðja mark Belga á 69. mínútu með skalla eftir fyrirgjöf frá Thorgan Hazard. Lukaku hefur verið sjóðheitur með belgíska landsliðinu á undanförnum árum. Síðan 2017 hefur hann skorað 35 mörk í 33 landsleikjum. Hann er langmarkahæstur í sögu belgíska landsliðsins með 57 mörk. Á 86. mínútu færði Courtois Dönum mark á silfurfati. Nacer Chadli átti þá sendingu til baka á Courtois sem missti boltann undir hægri fótinn og inn fór hann. Markið minnti óneitanlega á sjálfsmark Garys Neville fyrir England gegn Króatíu 2006 þegar Paul Robinson missti sendingu hans undir sig og í netið. Sem betur fer fyrir Courtois skoraði De Bruyne fjórða mark Belga aðeins mínútu síðar eftir sendingu frá varamanninum Thomas Foket. Lokatölur 4-2, Belgíu í vil. Belgar, Ítalir, Frakkar og Spánverjar taka þátt í úrslitakeppni Þjóðadeildarinnar á Ítalíu á næsta ári. Ekkert þessara liða komst í úrslit Þjóðadeildarinnar í fyrra. Mörkin úr leik Belgíu og Danmerkur má sjá hér fyrir neðan. Klippa: Belgía 4-2 Danmörk
Þjóðadeild UEFA Mest lesið Varði pabba-kroppinn eftir mynd af sér og Swift á ströndinni Sport Boehly fær að fjúka 2027 Enski boltinn Viðar Örn í KA Íslenski boltinn Þjálfari Leicester látinn fara vegna meints sambands við leikmann Enski boltinn Alonso fari hvergi og Liverpool snýr sér annað Enski boltinn „Veit að Kobe væri stoltur af mér“ Körfubolti Arna spilar með FH næstu þrjú árin Íslenski boltinn „Verð dæmdur fyrir þetta restina af ævi minni“ Sport Leikmaður PSG biðst afsökunar á að hafa deilt niðrandi efni um LGBTQ-einstaklinga Fótbolti Arnór frá út tímabilið eftir ömurlega tæklingu Ísraelans Fótbolti Fleiri fréttir Ísbað í Kórnum Í beinni: Valur - Breiðablik | Hvort liðið byrjar tímabilið á titli? Fyrrverandi Englandsmeistari með námskeið í samstarfi við Fram Túfa fær Ljubicic til Svíþjóðar Viðar Örn í KA Alonso fari hvergi og Liverpool snýr sér annað Leikmaður PSG biðst afsökunar á að hafa deilt niðrandi efni um LGBTQ-einstaklinga Þjálfari Leicester látinn fara vegna meints sambands við leikmann Boehly fær að fjúka 2027 Arna spilar með FH næstu þrjú árin PSG mætir Lyon í undanúrslitum Barcelona ekki í vandræðum með Brann Arnór frá út tímabilið eftir ömurlega tæklingu Ísraelans Tonali ákærður á Englandi fyrir fimmtíu meint brot Sjáðu mörkin fimm úr úrslitaleik Breiðabliks og ÍA Segir von á mikilvægum tilboðum í Albert Ákærður og horfir fram á fangelsisdóm fyrir kossinn óumbeðna Ætlar að kynna ensku úrvalsdeildina fyrir sundlaug í stúkunni Hulunni svipt af nýrri treyju íslenska landsliðsins „Ég er tilbúinn“ „Bjóst ekki við að þetta myndi enda svona“ „Flottur sigur og heilt yfir fín frammistaða“ Fimmtu undanúrslitin á sjö árum Umfjöllun: Breiðablik - ÍA 4-1 | Blikar unnu Lengjubikarinn með sigri gegn Skaganum Lyon nokkuð örugglega í undanúrslit Grindvíkingar leggja niður yngri flokka Rasmus til Eyja Messi: Ég hætti þegar ég get ekki lengur hjálpað mínum liðsfélögum Skagamenn geta unnið fyrsta titil sinn í meira en tvo áratugi Meiðslavandræði á Man. City fyrir stórleikinn á móti Arsenal Sjá meira