Segir líklegra að Félagsdómur telji verkfallsaðgerðir ólögmætar Vésteinn Örn Pétursson skrifar 1. febrúar 2023 20:03 Lára V. Júlíusdóttir er sérfræðingur í vinnurétti. Vísir/Arnar Sérfræðingur í vinnurétti telur líklegt að Félagsdómur muni komast að þeirri niðurstöðu að þær vinnustöðvanir sem boðaðar hafa verið af hálfu Eflingar séu ólögmætar.
Í dag var greint frá því að Samtök atvinnulífsins teldu ólöglegt að boða til vinnustöðvunar eða hefja verkfallsaðgerðir áður en að minnsta kosti annar deiluaðila hafi fellt miðlunartillögu frá ríkissáttasemjara. Mál samtakanna gegn Eflingu var þingfest hjá Félagsdómi í dag. Samkvæmt stefnunni vilja samtökin fá úr því skorið hvort verkfallsboðun Eflingar, sem samþykkt var í gærkvöldi, sé lögmæt eða ekki. Lára V. Júlíusdóttir, sérfræðingur í vinnurétti, var til viðtals í beinni útsendingu í kvöldfréttum Stöðvar 2 í kvöld. Þar sagðist hún telja að miðlunartillaga ríkissáttasemjara, sem felur í sér að félagsmenn Eflingar og aðildarfélög SA muni greiða atkvæði um sams konar samning og gerður var við Starfsgreinasambandið fyrir áramót, standist skoðun. Þá benti hún á að Efling hefði ekki viljað afhenda ríkissáttasemjara félagatal sitt svo hægt væri að greiða atkvæði um miðlunartillöguna, á sama tíma og boðað hefði verið til mögulegrar vinnustöðvunar hjá félögum í Eflingu. „Vegna ómöguleikans er ekki hægt að bera hana undir atkvæði og þá er spurning hvort hægt er að hefja verkfallsaðgerðir á þeim tíma. Þetta er eitthvað sem Félagsdómur fer núna að fjalla um,“ sagði Lára. Hún sagðist ekki vilja segja með afgerandi hætti til um hvort vinnustöðvunin teldist lögleg. „Mér finnst hins vegar sennilegra að Félagsdómur líti svo á að þetta sé ólögmæt vinnustöðvun, sem búið er að boða, út frá þessu.“ Telur miðlunartillöguna standast Lára ræddi einnig um stjórnsýslukæru Eflingar til félagsmálaráðuneytisins vegna miðlunartillögu ríkissáttasemjara. Málsástæður kærunnar eru þær að ekki hafi verið haft samráð við Eflingu við gerð hennar, sem og skortur á réttmæti, meðalhófu og janfræði. „Mér sýnist hafa verið haft fullt samráð um framlagningu þessarar miðlunartillögu. Allavega áttu þau löng samtöl þarna, sama dag og miðlunartillagan var boðuð, og ákvæði stjórnsýsluréttarins geta ekki náð til miðlunartillögu sem slíkrar. Þetta er tillaga, ekki ákvörðun sem búið er að taka. Ríkissáttasemjari hefur fullar heimildir til að leggja fram tillögu, og lögin gera bara ráð fyrir því að þegar hún hefur verið lögð fram fari fram atkvæðagreiðsla um hana.“
Kjaramál Vinnumarkaður Kjaraviðræður 2022-23 Tengdar fréttir Sólveig krefst fundar með forsætisráðherra Formaður Eflingar hefur óskað eftir fundi með forsætisráðherra og gerir athugasemd við málflutning hennar um að miðlunartillaga ríkissáttasemjara standist skoðun. Fyrirtæki sem frekari verkfallsaðgerðir Eflingar gætu haft áhrif á eru að fara yfir stöðuna en vinnustöðvun gæti til dæmis sett innanlandsflug úr skorðum. 1. febrúar 2023 12:10 Segja það ólögmætt að fara í verkfall sé tillagan ekki felld Samtök atvinnulífsins segja ekki löglegt að boða til vinnustöðvunar eða hefja verkfallsaðgerðir áður en að minnsta kosti annar deiluaðila hafi fellt miðlunartillögu frá ríkissáttasemjara. 31. janúar 2023 20:09 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Hjól undan strætó braut svalir á annarri hæð Innlent María Sigrún birtir tölvupósta Dags Innlent Meint framhjáhald og sambandsslit í stunguárásarmáli Innlent „Kastljós á ekki að vera Staksteinar“ Innlent Neyðast óvænt til að tæma laugina Innlent Vildi heimsækja krabbameinssjúka móður sína en vísað úr landi Innlent Skúli Tómas sinnir sjúklingum af og til Innlent Halla Hrund áfram efst Innlent Ákvörðun Seðlabankans sé óskiljanleg Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Fleiri fréttir Margt bendi til þess að gosinu sé lokið María Sigrún birtir tölvupósta Dags „Á endanum snýst þetta allt um peninga“ Sækja veikan sjómann Eldur í iðnaðarhúsnæði á Höfða Efstar með ómarktækan mun á milli sín Fjögurra bíla árekstur efst í Ártúnsbrekku Björn Leví segir Harald hafa fundið skálkaskjól í orðum Bjarna Flæði innan við einn rúmmetri á sekúndu „Ég hafna því að við séum ekki að sinna velferð dýra á þessum bæ” Ákvörðun Seðlabankans sé óskiljanleg „Ríkisfjármálin eru í ruglinu“ Atvinnubílstjórar sýni minnstu tillitssemina Orkuveitan skilar Elliðaárdalnum Stuðningsmenn Katrínar áhugasamari en aðrir Lengri lokun þar sem kerfið hefur „hangið á bláþræði“ Skúli Tómas sinnir sjúklingum af og til „Allir að bíða eftir þessum atburði sem ekki skeður“ Nýborin lömb finnist dauð og deyjandi úr vosbúð „Hef haft áhyggjur af fangelsismálum frá því ég kom í embætti“ „Kastljós á ekki að vera Staksteinar“ Kannabis en ekki kjólar í kassanum Halla Hrund áfram efst Fjöldaúrsagnir kvenna úr mannkyninu Leki kom að bát út af Barða Óbreyttir stýrivextir, fangamál og dræmt Eurovision áhorf Forsetaefni tókust á um forsetavaldið „Þetta getur ekki annað en endað með algjörum ósköpum“ Hjól undan strætó braut svalir á annarri hæð Bein útsending: Bjarkey kynnir lagareldisfrumvarpið Sjá meira
Sólveig krefst fundar með forsætisráðherra Formaður Eflingar hefur óskað eftir fundi með forsætisráðherra og gerir athugasemd við málflutning hennar um að miðlunartillaga ríkissáttasemjara standist skoðun. Fyrirtæki sem frekari verkfallsaðgerðir Eflingar gætu haft áhrif á eru að fara yfir stöðuna en vinnustöðvun gæti til dæmis sett innanlandsflug úr skorðum. 1. febrúar 2023 12:10
Segja það ólögmætt að fara í verkfall sé tillagan ekki felld Samtök atvinnulífsins segja ekki löglegt að boða til vinnustöðvunar eða hefja verkfallsaðgerðir áður en að minnsta kosti annar deiluaðila hafi fellt miðlunartillögu frá ríkissáttasemjara. 31. janúar 2023 20:09