Fjórar þjóðir vilja halda EM saman með stuðningi frá Íslandi og Færeyjum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 15. október 2021 11:16 Karólína Lea Vilhjálmsdóttir í leik á móti Evrópumeisturum Hollands á dögunum. Vísir/Hulda Margrét Knattspyrnusamband Íslands segir á heimasíðu sinni að fjórar af Norðurlandaþjóðunum ætli að senda inn sameiginlegt boð um að halda Evrópumót kvenna í knattspyrnu árið 2025 og íslenska sambandið mun koma að þessu líka.
Þetta hefur legið lengi í loftinu og þrátt fyrir að Ísland geti ekki boðið upp á löglegan keppnisvöll þá fær Ísland að vera með. Fimm Norðurlandaþjóðir (Danmörk, Finnland, Ísland, Noregur og Svíþjóð) hafa tryggt sér sæti í lokakeppni EM 2022 sem fram fer á Englandi næsta sumar sem sýnir vel sterka stöðu norrænu landsliðanna inn á vellinum. KSÍ segir í frétt sinni á heimasíðunni að síðustu fjögur árin hafa knattspyrnusamböndin á Norðurlöndunum unnið náið saman að sameiginlegri umsókn um að halda lokakeppni stórmóts landsliða og hafa nú ákveðið að sækja um að halda lokakeppni EM kvenna 2025. Frá árinu 2018 var í fyrstu unnið saman að öflugri umsókn um að halda lokakeppni HM kvenna 2027. Á sama tíma hefur Knattspyrnusamband Danmerkur unnið að metnaðarfullri umsókn um að halda EM kvenna 2025. Nú verður breyting á þessu. Danmörk, Finnland, Noregur og Svíþjóð hafa nú ákveðið að sækja um að halda EM kvenna 2025, með stuðningi Knattspyrnusambanda Færeyja og Íslands. Ljóst er að leikir í keppninni geta ekki farið fram í Færeyjum eða á Íslandi þar sem ekki eru til staðar leikvangar sem uppfylla sett skilyrði. Ljóst er að leikir í keppninni geta ekki farið fram í Færeyjum eða á Íslandi þar sem ekki eru til staðar leikvangar sem uppfylla sett skilyrði. https://t.co/ps55KWCcB3— Knattspyrnusambandið (@footballiceland) October 15, 2021 „Við höfum unnið náið saman síðustu fjögur árin og erum öll með metnaðarfullar hugmyndir um þróun kvennaknattspyrnu. Við erum viss um að EM kvenna 2025 á Norðurlöndum verði frábær viðburður fyrir kvennaknattspyrnu – fyrir stuðningsmenn, leikmenn, aðra hagsmunaaðila og fyrir UEFA,” segir í fréttinni á heimasíðu KSÍ. Formaður danska sambandsins staðfestir þetta í samtali við fjölmiðla. „Við höfum ákveðið að senda inn boð um að halda EM kvenna 2025. Þetta eru þá Danmörk, Noregur, Svíþjóð og Finnland saman en með stuðningi frá Íslandi og Færeyjum,“ sagði Jesper Möller í viðtali við Ritzau fréttaveituna. Norge, Sverige, Danmark og Finland søker om å arrangere fotball-EM for kvinner i 2025 https://t.co/Cz5BxY9UH7— Nettavisen Sport (@NettavisenSport) October 15, 2021 Danir voru að íhuga það að halda Evrópumótið einir en kvennakeppnin er alltaf að stækka og nýjar körfur frá evrópska knattspyrnusambandinu hafa gert það ómögulegt. „Okkar að mat er að með þessu getum við sett fram okkar sterkasta boð til að fá úrslitakeppnina til Norðurlanda. Það er best að leita eftir samvinnu með hinum Norðurlandaþjóðunum,“ sagði Möller. „Við byrjum á því að sýna fram á okkar áhuga en formlegur skilafrestur er síðan ekki fyrra en seinna í ár. Við teljum að það sé raunhæft fyrir okkur að fá keppnina 2025,“ sagði Möller. Knattspyrnusambönd Norðurlandanna hafa rætt hvaða lokakeppni þau vilja sækja um og niðurstaðan er að allur þungi verður lagður í umsókn um lokakeppni EM kvenna 2025. Formenn sambandanna bíða jafnframt frekari upplýsinga varðandi umsóknir um lokakeppni HM kvenna 2027. Framkvæmdastjórn UEFA mun ákveða hvar mótið verður haldið á fundi sínum í desember 2022. EM kvenna fór síðast fram í Hollandi sumarið 2017 en næsta keppni verður í Englandi næsta sumar. Svíar héldu keppnina einir sumarið 2013 og Finnar voru einir með hana sumarið 2009. Danir héldu hana árið 1991 en þá voru bara fjórar þjóðir í úrslitunum. Norðmenn og Svíar héldu fyrstu átta þjóða Evrópukeppnina saman sumarið 1997.
KSÍ Mest lesið Klökkur Jóhann Berg beygði af í viðtali Enski boltinn „Eins og að spila við landslið Þýskalands nasismans“ Sport Uppgjörið,viðtöl og myndir: Valur - Olympiacos 30-26 | Einum leik frá Evróputitli Handbolti Koddaslagur sjónvarpsstjörnu endaði með ósköpum Sport Reykti tvo pakka, át fjögur súkkulaðistykki og drakk tvær kókdósir á fyrsta hringnum Golf Jóhann Berg fer frá Burnley í sumar Enski boltinn De Zerbi hættir hjá Brighton Enski boltinn Íhuga að reka Xavi sem hætti við að hætta Fótbolti Efsti maður heimslistans tók upphitunina í fangaklefanum Golf Schauffele heldur forystunni en Tiger langt frá niðurskurðinum Golf Fleiri fréttir Ótrúlegir yfirburðir tryggðu tíunda bikarmeistaratitilinn Stutt gaman hjá Birki er Brescia missti af sæti í efstu deild AC Milan hleypti Torino inn í Evrópubaráttu Keflavík og Grindavík tryggðu sér sæti í átta liða úrslitum Jón Daði og félagar náðu ekki að koma sér upp um deild Hayes kvaddi Chelsea með fimmta titlinum í röð og Dagný komin í hóp Leiknir vann Breiðholtsslaginn og Njarðvík með fullt hús stiga Reus kvaddi með draumamarki og Leverkusen kláraði tímabilið ósigrað De Zerbi hættir hjá Brighton Foden valinn bestur á Englandi Sandra María lagði upp bæði mörk Þórs/KA í bikarsigri á Dalvík Hélt upp á landsliðsvalið með marki Tvisvar sinnum rekinn á sama deginum Arteta vonast eftir hjálp frá Moyes: „Vonandi gerist eitthvað dásamlegt“ Klökkur Jóhann Berg beygði af í viðtali Jóhann Berg fer frá Burnley í sumar Íhuga að reka Xavi sem hætti við að hætta Klopp myndi kjósa með afnámi VAR Rekinn tveimur dögum eftir bikarmeistaratitilinn Valsmenn síðastir inn í átta liða úrslit Southampton leikur um laust sæti í ensku úrvalsdeildinni Jón Dagur kom inn af bekknum og bjargaði stigi Van Dijk með þrennu og Diljá tvennu í stórsigri Leuven Kristín Dís lék allan leikinn er Brøndby komst í úrslit Meiðslapésarnir fara frá Liverpool Infantino segir samtökunum að hætta „tilgangslausu þrasi“ um leikjaálag Slot staðfestir að hann taki við Liverpool Vill komast hjá því að afhenda City bikarinn „Það eru alltaf einhverjar leiðir sem opnast í pressu“ Nýliðinn í íslenska landsliðinu er markahæst í dönsku úrvalsdeildinni Sjá meira