Enski lögmaðurinn Emma Hickman hefur verið ráðinn til lögmannsstofunnar BBA//Fjeldco og starfar á skrifstofu félagsins í London. Emma vann áður hjá lögmannsstofunni K&L Gates, Logos í London og JMW í Manchester.

Emma hefur reynslu af lögfræðiráðgjöf við fyrirtæki, samrunum, kaupum og sölu fyrirtækja, þ.á m. sprota- og frumkvöðlafyrirtækja, að því er kemur fram í fréttatilkynningu.

Auk Emmu starfa nú á skrifstofunni í London enski lögmaðurinn Claire Broomhead og Gunnar Þór Þórarinsson, sem bæði hafa 20 ára starfsreynslu og eru með íslensk og ensk lögmannsréttindi. Með þeim starfar einnig lögmaðurinn Anna Björg Guðjónsdóttir sem hefur unnið á skrifstofu félagsins í Reykjavík frá árinu 2013.

„Með ráðningunni verður alþjóðlegt teymi BBA//Fjeldco enn öflugra og gerir stofuna að skýrum fyrsta valkosti við val á ráðgjafa í verkefnum sem tengjast viðskiptum milli Íslands og Bretlands sem og öðrum alþjóðlegum verkefnum.“