Handbolti

HK tryggði áframhaldandi veru í Olís-deildinni

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
HK mun leika í Olís-deild kvenna á næsta tímabili.
HK mun leika í Olís-deild kvenna á næsta tímabili. Vísir/Hulda Margrét

HK tryggði sér áframhaldandi veru í Olís-deild kvenna er liðið vann góðan fjögurra marka sigur gegn ÍR í kvöld, 26-22.

HK-ingar hafa því unnið alla þrjá leikina í úrslitaeinvíginu og er liðið búð að tryggja sér sæti í Olís-deildinni á næsta tímabili.

Það voru ÍR-ingar sem byrjuðu betur í kvöld, en HK-ingar náðu forystunni fyrir hálfleik. Liðið leit aldrei um öxl eftir það og vann góðan fjögurra marka sigur, 26-22.

Sara Katrín Gunn­ars­dótt­ir fór fyrir liði HK og skoraði níu mörk í kvöld, en í liði ÍR var Kar­en Tinna Demien atkvæðamest með fimm.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×