Esjan er horfin Jakob Bjarnar skrifar 19. júlí 2021 10:52 Gosmengunin hefur sjaldan verið meiri en nú á höfuðborgarsvæðinu. Þannig hylur gosmóðan bæjarfjall Reykvíkinga, ekki svo mikið sem grillir í fjallið sem yfirleitt blasir tignarlegt við frá þessu sjónarhorni. vísir/vésteinn Gosmóða hylur nú bæjarfjall höfuðborgabúa. Sjaldan eða aldrei hefur gosmengunin verið svo mikil í höfuðborginni.
Veðurstofan hefur sent út ítrekun þar sem hún vill koma á framfæri ábendingum til almennings vegna gosmóðunnar á höfuðborgarsvæðinu öllu sem berst frá eldgosinu í Fagradalsfjalli. „Nokkuð há gildi á bennisteinsdíoxíð og súlfötögnum hafa mælst á höfuðborgarsvæðinu og upp í Hvalfirði frá því árla í morgun auk þess sem móðan er vel sýnileg á höfuðborgarsvæðinu,“ segir í skeyti Veðurstofunnar. En Veðurstofu hefur borist tilkynningar víðar en af höfuðborgarsvæðinu um gosmóðuna miklu, þannig hefur hennar orðið vart alla leið austur í Hreppa og þar finnur fólk fyrir áhrifum gossins. Þá mældist gosmóðan einnig í Færeyjum í gær þannig að áhrifanna gætir víða. Til samanburðar má hér sjá Esjuna frá sama sjónarhorni. Myndin er tekin í kvöldsólinni að vetrarlagi.Vísir/Jakob Mælt er með því að einstaklingar sem viðkvæmir eru fyrir loftmengun fari sér varlega og þá er varað við því að kornabörn séu látin sofa utandyra við þessar aðstæður. Ef fólk erfiðar utandyra í gosmóðunni gæti það haft áhrif á viðkvæma. Viðkvæmir ættu að fara sér varlega Á Facebooksíðu SUM – Samtök um áhrif umhverfis á heilsu segir að þeir sem eru sérlega viðkvæmir gætu fundið fyrir verulegum óþægindum í öndunarvegi og er í slíkum tilfellum mælt með því að þeir haldi sig innan dyra með lokaða glugga. Fjölkerfaáhrif eru misjöfn eftir einstaklingum en dæmi eru um að fólk hafi haft samband við lækni, heilsugæslu, læknavakt og LSH. Í þeim hópi er fólk með öndunarfærasjúkdóma og fólk sem er viðkvæmt fyrir umhverfismengun, til að mynda eftir að hafa veikst vegna myglu- og rakaskemmda eða eitrunar af öðru tagi. Gosmóðan inniheldur mengun sem hefur náð að umbreytast og greinist hún því ekki með hefðbundnum mælingum á brennisteinsdíoxíði (SO2) heldur sést sem hækkun í fínasta svifrykinu, PM2,5 og PM1. Kl. 9:00 mældist PM2,5 32,3 míkrógrömm á rúmmeter og PM1 31,8 míkrógrömm á rúmmeter í mælistöð Heilbrigðiseftirlitsins við Bústaðarveg. Klukkan 10:00 mældist PM 2,5 50 míkrógrömm á rúmmeter í mælistöð Umhverfisstofnunar við Grensásveg. Gosmóða næstu daga (Uppfært 11:22) Reykjavíkurborg hefur sent út sérstaka tilkynningu vegna gosmóðunnar sem fer hér á eftir: „Samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofunni gæti gosmóðan legið áfram yfir höfuðborginni á morgun en ætti að færast í burtu á miðvikudag. Vindátt breytist seint á miðvikudag eða fimmtudag og mun þá SO2 mengun hætta að berast frá gosinu yfir borgina. Gosmóðan eða blámóða (Volcanic smog) er loftmengun sem verður til þegar SO2, önnur gös og agnir hvarfast við súrefni og raka með tilstuðlan sólarljóssins. Þær agnir sem myndast eru m.a. brennisteinssýra og önnur brennisteinssambönd. Hún hefur einkennandi blágráan lit sem myndast er sólarljósið brotnar á ögnum/úða. Almenningur er hvattur til að fylgjast með tilkynningum Veðurstofunnar um gosmóðuna og einnig má skoða stöðu loftgæða á vef Umhverfisstofnunar en þar má sjá kort yfir staðsetningu loftgæðamælistöðva í Reykjavík og fylgjast með styrk brennisteinsdíoxíðs (SO2), svifryks og annarra efna.“ Almennar ráðleggingar varðandi gasmengun eru eftirfarandi: Lungna og hjartasjúklingar hafi sín lyf tiltæk Andið sem mest með nefi og forðast líkamlega áreynslu utandyra í mikill mengun því það dregur úr þeim styrk sem kemst niður í lungu. Dvöl innanhúss með lokaða glugga og slökkt á loftræstingu veitir verulega vörn fyrir menguninni. Athugið að rykgrímur veita enga vörn gegn gasmengun Ráðstafanir til varnar SO2 og annari gosmengun mengun innandyra Lokaðu gluggum og minnkaðu umgengni um útidyr. Hækkaðu hitastigið í húsinu. Loftaðu út um leið og loftgæði batna utandyra.
Eldgos í Fagradalsfjalli Loftslagsmál Heilbrigðismál Umhverfismál Esjan Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið „Nú á dögunum tók sonur minn líf sitt innan veggja fangelsisins“ Innlent Staldraði við þegar talað var um fóstur sem frumuklasa Innlent Einhver í herberginu segi ekki satt Innlent Baldur vinsælasta plan B Innlent Svona voru kappræður sex efstu í baráttunni um Bessastaði Innlent Spánverjar neita skipi með vopn innanborðs um að leggja að bryggju Erlent Treysta sér til þess að vernda þjóðkirkjuna Innlent Katrín tekur forystuna á ný og Halla T í sókn Innlent Gríðarleg fjölgun á dvalarleyfum til Víetnama á grundvelli sérfræðiþekkingar Innlent Skipstjórinn og stýrimaðurinn fluttir til Reykjanesbæjar Innlent Fleiri fréttir Umhverfis- og loftslagsmálin „Icesave okkar tíma“ Boða sérstakan bæjarstjórnarfund vegna bréfs Eggerts Skipstjórinn og stýrimaðurinn fluttir til Reykjanesbæjar Gríðarleg fjölgun á dvalarleyfum til Víetnama á grundvelli sérfræðiþekkingar „Nú á dögunum tók sonur minn líf sitt innan veggja fangelsisins“ Baldur vinsælasta plan B Bein útsending: MenntaStefnumót í Reykjavík Treysta sér til þess að vernda þjóðkirkjuna Magnús Geir vill fimm ár í viðbót í Þjóðleikhúsinu Telur ekki óeðlilegt að sýna mótmælendum samstöðu Staldraði við þegar talað var um fóstur sem frumuklasa Skipstjórinn gistir fangageymslur ásamt stýrimanni Kviknaði í bensínbíl í akstri á Dalbraut Einhver í herberginu segi ekki satt „Við erum ekki hlutlaus þjóð“ Katrín tekur forystuna á ný og Halla T í sókn Vendingar í nýrri könnun og mannbjörg á ögurstundu Svona voru kappræður sex efstu í baráttunni um Bessastaði Spyr hvort eðlilegt sé að ráðherrar taki þátt í erlendum mótmælum Viktor hvetur forsetaframbjóðendur til að sniðganga Stöð 2 Skipstjórinn og tveir stýrimenn handteknir vegna sjóslyssins Óvinnufær eftir harkalegt fall þegar strappur slitnaði Skipuð aðstoðarlögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu Valdimar Hermannsson nýr sveitarstjóri Vopnafjarðarhrepps Bjarni ætlar að geta Katrínar í formálanum Þórey í Konukoti hlaut mannréttindaverðlaun Reykjavíkur Nafnið Hroði of hroðalegt Fékk sting í hjartað þegar hann sá nafnið á bátnum Um 920 mál óafgreidd hjá kærunefnd útlendingamála Færa almannavarnastig niður á óvissustig vegna vatnslagnarinnar Sjá meira