Liverpool frumsýnir „hápressuskrímslið“ Diogo Jota í kvöld Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 24. september 2020 14:30 Diogo Jota var kynntur sem nýr leikmaður Liverpool á Anfield um síðustu helgi. Getty/Andrew Powell
Þrír leikir fara fram í 32 liða úrslit enska deildabikarsins í kvöld og verða bæði Manchester City og Liverpool í eldlínunni á móti neðri deildarliðum. City mætir b-deildarliðinu Bournemouth en Liverpool bíður leikur á móti C-deildarliði Lincoln City. Stöð 2 Sport 2 mun sýna leik Lincoln City og Liverpool beint í kvöld og hefst útsendingin klukkan 18.40. Stuðningsmenn Liverpool eru spenntir fyrir leik kvöldsins enda ættu þeir þar að fá að sjá nýju leikmennina sína sýna sig fyrir stjóranum Jürgen Klopp. Liverpool kom mörgum á óvart á dögunum með því að kaupa portúgalska framherjann fyrir 41 milljón punda frá Wolves. Fyrst fréttist af mögulegum kaupum sama dag og Thiago Alcantara var staðfestur og Liverpool var síðan búið að tikynna Jota daginn eftir. Stuðningsmenn Liverpool fengu að sjá Thiago Alcantara í seinni hálfleiknum á móti Chelsea í ensku úrvalsdeildinni um síðustu helgi og í kvöld gæti verið komið að frumsýningu á Diogo Jota. Thiago Alcantara þykir jafnframt líklegur til að fá fyrsta byrjunarliðsleikinn í kvöld en gríski bakvörðurinn Kostas Tsimikas gæti líka fengið fyrsta keppnisleik sinn. Það lítur líka allt út fyrir að þeir Sadio Mane, Roberto Firmino og Mohamed Salah fái frí í kvöld. Það ætti því að vera pláss fyrir Diogo Jota í þriggja manna framlínu Liverpool á móti Lincoln City. watch on YouTube Pep Lijnders, aðstoðarmaður Jürgen Klopp, gaf ekkert upp um byrjunarliðið á blaðamannafundi fyrir leikinn en talaði mjög vel um Diogo Jota og kallaði hann meðal annars „hápressuskrímsli“ sem er örugglega ein af stóru ástæðunum fyrir því að hann er nú orðinn leikmaður Liverpool. „Hvað get ég sagt? Hann er tæknilega á sama stað og okkar þrír fremstu menn. Hann á svo mikla framtíð fyrir sér í leiknum og fær gott tækifæri til að sanna sig hjá okkur félagi. Hann er eins og hápressuskrímsli svo hann ætti að passa vel inn í þetta um leið,“ sagði Pep Lijnders um Diogo Jota á blaðamannafundinum. Hlaupageta framherja Liverpool liðsins skiptir miklu máli fyrir leikstíl Liverpool og Diogo Jota er bæði fljótur og áræðinn í pressunni. Ef marka má orð Pep Lijnders þá mun Diogo Jota fá fullt af leikjum með Liverpool á leiktíðinni. Diogo Jota er líka enn bara 23 ára gamall en hann var með 16 mörk í 44 leikjum með Úlfunum í öllum keppnum á síðasta tímabili þar af 9 mörk í 14 leikjjum í Evrópudeilinni og 7 mörk í 34 leikjum í ensku úrvalsdeildinni. Það má annars búast við því að Liverpool noti mikið af ungu leikmönnunum sínum í leiknum á móti Lincoln City og því gætu menn eins og Neco Williams, Curtis Jones og Harvey Elliott líka verið í byrjunarliði Jürgen Klopp. watch on YouTube
Enski boltinn Mest lesið Bakgarðshlaupið í beinni útsendingu Sport „Ég sakna hennar á hverjum degi“ Handbolti Enginn náð í fleiri stig en McKenna síðan hann tók við Ipswich Enski boltinn Darius Morris látinn aðeins þrjátíu og þriggja ára að aldri Körfubolti „Við þurfum níu stig til að vinna titilinn“ Enski boltinn „Við höldum bara áfram þangað til að leikurinn er búinn“ Körfubolti HSÍ lengir bann Einars: „Framganga þjálfarans var mjög ógnandi og ódrengileg“ Handbolti „Við gleymum okkur á veiku hliðinni“ Körfubolti Uppgjör: Keflavík - Grindavík 84-83 | Ótrúlegur endir og allt jafnt í einvíginu Körfubolti Girona í fyrsta sinn í Meistaradeild Evrópu og tryggði Real í leiðinni titilinn Fótbolti Fleiri fréttir Enginn náð í fleiri stig en McKenna síðan hann tók við Ipswich „Við þurfum níu stig til að vinna titilinn“ Skoraði fernu og Englandsmeistararnir halda í við Skytturnar Newcastle fór illa með Jóa Berg og félaga á Turf Moor Arsenal menn kláruðu sitt og nú er pressan á Man. City Ipswich Town aftur upp í ensku úrvalsdeildina eftir 22 ára fjarveru Arteta segir að Gabriel Jesus sé ekki á förum í sumar Clattenburg hættur og segist hafa verið skotmark sérfræðinga Luton mistókst að koma sér úr fallsæti Sala drykkjarins í hæstu hæðum eftir myndirnar af Haaland Klopp ósáttur við álagið: „Hádegisleikir eru glæpur“ Ten Hag vildi fá Kane í sumar: „Þú veist að hann skorar þrjátíu mörk“ Fékk hrós frá Klopp: Vingjarnlegasti maður sem ég hef hitt Tonali braut veðmálareglur fimmtíu sinnum eftir komuna til Newcastle Möguleikar Tottenham á Meistaradeildarsæti að fjara út „Þið eruð lið fullt af feitabollum“ Tekur fyrir að starfsfólk Manchester United vinni að heiman Segir aðeins þau hlutlausu hafa skemmt sér yfir fótbolta Ten Hag Sextán ára og skoraði hjá Arsenal eins og Rooney forðum „Mo Salah sá sem að gekk of langt“ Manchester-liðin og Aston Villa á móti því að eyðsluþak verði sett á Nær allir leikmenn Man Utd til sölu fyrir rétt verð Thiago Silva hættir hjá Chelsea en vonast til að synirnir spili þar áfram Hundraðasti sigur Arteta kom gegn erkifjendunum: „Stoltur af leikmönnunum“ „Ekki boðlegt á þessu getustigi“ Fowler hjálpaði Man City að styrkja stöðu sína á toppnum Meistarar Man City halda í við topplið Arsenal Bournemouth fór illa með Brighton Arsenal vann kaflaskiptan Norður-Lundúnaslag Segir að VAR skaði ímynd enska boltans Sjá meira