Öruggir sigrar ÍBV og Þórs Valur Páll Eiríksson skrifar 23. júlí 2021 20:01 Eyjamenn unnu góðan 4-1 sigur eftir að hafa lent undir. Tveir leikir voru á dagskrá í Lengjudeild karla í fótbolta í kvöld. ÍBV og Þór unnu þar bæði örugga heimasigra.
ÍBV tók á móti Grindavík í Vestmannaeyjum en aðeins þrjú stig skildu liðin að fyrir leik. ÍBV var í öðru sæti með 23 stig en Grindavík tveimur sætum neðar með 20 stig. Því var um að ræða mikilvægan leik í toppbaráttunni. Englendingurinn Dion Acoff skoraði fyrir Grindavík á 37. mínútu og gaf gestunum með því 1-0 forystu í leikhléi. Eyjamenn virðast hins vegar hafa tekið sig saman í andlitinu í hléi þar sem þeir skoruðu fjögur mörk gegn engu í síðari hálfleiknum. Sito, Guðjón Pétur Lýðsson, Stefán Ingi Sigurðarson og Tómas Bent Magnússon skoruðu eitt mark hver og tryggðu Eyjamönnum þannig 4-1 sigur. ÍBV er því með 26 stig í öðru sætinu, sex stigum á eftir toppliði Fram sem á leik inni. Grindavík er sem fyrr eð 20 stig en fer niður fyrir Fjölni í fimmta sæti vegna lakari markatölu eftir tap kvöldsins. Vinni Vestri sinn leik í umferðinni fara þeir upp fyrir Grindavík, þar sem þeir eru með 19 stig í sjöunda sæti. Á Akureyri tók Þór á móti Gróttu. Aðeins eitt stig skildi liðin að í töflunni, Grótta var með 17 stig í sjöunda sæti en Þór með stigi minna, sæti neðar. Þegar 55 mínútur voru liðnar af leiknum höfðu Þórsarar komist 4-0 yfir eftir tvö mörk Ásgeirs Marinó Baldvinssonar sitt hvort markið frá Jóhanni Helga Hannessyni og Fannari Daða Malmquist Gíslasyni. Grótta svaraði með tveimur mörkum frá Kjartani Kára Halldórssyni og Pétri Theódóri Árnasyni en gátu ekki komið í veg fyrir 4-2 tap. Þór fer með sigrinum upp í sjötta sæti deildarinnar, upp fyrir Gróttu og Vestra, en líkt og fram kemur að ofan á Vestri leik inni.
ÍBV Þór Akureyri Lengjudeildin Mest lesið Leik lokið: Valur - Afturelding 27-29 | Mosfellingar í úrslit Handbolti Óbein yfirlýsing frá DeAndre Kane Körfubolti United lyfti sér upp að hlið Newcastle Enski boltinn McIlroy sækir um skilnað nokkrum dögum fyrir PGA-meistaramótið Golf Albert gáttaður á Lárusi Orra: „Hvað meinarðu? Hvað er í gangi hérna?“ Íslenski boltinn Kjósa um hvort notkun VAR verði hætt Fótbolti Jói Kalli hættir hjá landsliðinu og fer til Danmerkur Fótbolti Illa orðað samningsákvæði varð KA að falli Íslenski boltinn Rúnar Ingi skiptir um stól í Njarðvík Körfubolti Skaut á Taylor Swift og sagði konum að halda sig í eldhúsinu Sport Fleiri fréttir Uppgjörið: Þróttur - Víkingur 0-1 | Þróttarar enn án sigurs Illa orðað samningsákvæði varð KA að falli Albert gáttaður á Lárusi Orra: „Hvað meinarðu? Hvað er í gangi hérna?“ „Þegar við skorum að þá er gaman“ „Þetta var eins og handboltaleikur“ „Fórum af bensíngjöfinni í staðin fyrir að gefa í” Uppgjör og viðtöl: Stjarnan - FH 4-3 | Markasúpa í Garðabænum Uppgjör og viðtöl: Þór/KA - Keflavík 4-0 | Heimakonur ekki í vandræðum Uppgjör, viðtöl og myndir: Valur - Tindastóll 3-1 | Meistararnir lentu undir en komu til baka KA dæmt til að greiða Arnari tæpar ellefu milljónir Heiðruðu mömmur leikmanna á sérstakan hátt „Ef KR-ingar vita að Óskar sé til í að koma, skiptir einhverju máli hvað Gregg gerir?“ „Búinn að vera tilfinningarússibani“ „Til skammar að koma úr atvinnumennsku eins og hann er að koma“ Sjáðu rauðu spjöld KR-inga, mark beint úr horni og öll hin mörkin í gær „Það er eitt að vera góður og annað að fá eitthvað fyrir það“ Uppgjörið og viðtöl: Víkingur R. - FH 2-0 | FH fatast flugið en Víkingur aftur á beinu brautinni Uppgjör: Fylkir - Breiðablik 0-3 | Öruggur sigur Blika á lánlausum Fylkismönnum Uppgjör: KR-HK 1-2 | Frækinn sigur HK á Meistaravöllum Meiðslavandræði Vestra virðast engan enda ætla að taka Patrick til bjargar eftir klúður Gylfa og klaufamörk á Akranesi Uppgjörið: Valur - KA 3-1 | Vítaklúður Gylfa kom ekki að sök Uppgjörið: ÍA - Vestri 3-0 | Öruggt hjá ÍA í slag nýliðanna Sjáðu frábært spil skila tveimur mörkum í Garðabæ „Við erum helvíti seigir“ Bragi Karl tryggði ÍR-ingum stig á elleftu stundu Uppgjörið og viðtöl: Stjarnan - Fram 1-1 | Aftur komu Rúnarsmenn til baka Oliver með þrennu gegn gömlu félögunum Sextán ára stelpa skoraði í Bestu eftir stoðsendingu frá einni fimmtán ára „Hrafninn svífur yfir Vesturbænum“ Sjá meira