Gunnar gekk út þegar blóði drifnar myndir voru sýndar Atli Ísleifsson skrifar 23. september 2020 14:07 Frá vettvangi í Mehamn laugardaginn 27. apríl. TV2/Christoffer Robin Jensen
Gunnar Jóhann Gunnarsson fékk heimild frá dómara að yfirgefa dómsalinn í Héraðsdómi Austur-Finnmerkur í Noregi í morgun þegar sýndar voru myndir lögreglu frá blóðugum vettvangi drápsins. Réttarhöld yfir Gunnari héldu áfram í morgun en hann er ákærður fyrir að hafa banað hálfbróður sínum, Gísla Þór Þórarinssyni, í norska bænum Mehamn í apríl á síðasta ári. Staðarmiðillinn iFinnmark segir frá því að mikið magn blóðs hafi sést á þeim myndum sem sýndar voru í dómsal. Eftir að búið var að sýna nokkrar myndir þá hafi Gunnar beðið um heimild til að yfirgefa salinn. Dómari varð við því. Mikið blóð á vettvangi Lögreglumaðurinn Arvid Bjerkåsen, sem bar vitni í morgun, hélt að því loknu áfram að segja frá aðkomunni á heimili Gísla Þórs þar sem hann fannst látinn. Sagði hann blóð hafa verið á bæði hurðum og hurðahúnum. „Það var blóð á hlutfallslega stóru svæði. Það kann að koma heim og saman við liggjandi mann sem hafi reynt að komast út, til dæmis til að kalla á hjálp.“ Bjerkåsen sagði ennfremur að blætt hafi úr slagæð Gísla Þórs sem skýri þetta mikla blóðmagn á gólfi og veggjum. Benti hann ennfremur á að blóðið á veggjunum bendi til að til átaka hafi komið. Það passi við orð ákærða. Fór að hlaða byssuna á ný Bjerkåsen hélt áfram og sagði að ákærði virðist hafa gengið um í íbúðinni, eftir að skotunum hafi verið hleypt af. Eitt skotið hafi hæft Gísla en annað fór í vegginn. Blóð hafi verið á sokkum, skóm, buxum og skyrtu Gunnars. Lögreglumaðurinn sagði að spor sýni að ákærði hafi svo farið inn í eitt svefnherbergjanna. Gunnar hefur sjálfur sagt við skýrslutöku að hann hafi farið þar inn til að hlaða haglabyssuna að nýju, með það í hyggju að svipta sig lífi. Leituðu til fingrafarasérfræðings Í frétt iFinnmark segir að við rannsókn málsins hafi lögregla leitað til fingrafarasérfræðings sem sagði að fingraför Gunnars hafi fundist á haglabyssunni. Gunnar hafði sjálfur sagt að skotinu hafi verið hleypt af fyrir slysni þegar Gísli hafi gripið í byssuna og til átaka kom. Fingrafarasérfræðingurinn, Tore Andre Walstad, sagði að ekki hafi tekist að greina fingraför Gísla á byssunni. Það sé þó ekki hægt að útiloka það að Gísli hafi reynt að ýta byssunni burt án þess að fingraför hafi orðið eftir á henni.
Noregur Manndráp í Mehamn Tengdar fréttir Strax ljóst að Gísla yrði ekki bjargað Yfirlögregluþjónn sem var fyrstur á vettvang nóttina sem Gísli Þór Þórarinssyni var ráðinn bani í norska bænum Mehamn í apríl segir að strax hafi verið útséð að Gísla yrði ekki bjargað. 22. september 2020 23:30 „Ég verð skugginn þinn þangað til þú hengir þig“ Gunnar Jóhann Gunnarsson segir að sér hafi ekki dottið í hug að nota neitt annað en haglabyss til að hræða hálfbróður sinn Gísla Þór Þórarinsson. Edel Olsen, réttargæslumaður íslenskra aðstandenda Gísla, spurðist fyrir um þetta í dómsal í dag. 22. september 2020 15:47 Tók biblíu, haglabyssu og Captain Morgan með sér heim til Gísla Gunnar Jóhann Gunnarsson segist einungis hafa ætlað sér að hræða hálfbróður sinn nóttina sem hann hélt heim til hans, vopnaður haglabyssu og skaut hann að lokum til bana. 22. september 2020 09:23 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Grunaður um að hafa ráðið konu sinni bana Innlent Biðst afsökunar á að hafa kallað skemmdarvarginn „fífl“ Innlent Segja valdarán framið og kirkju aðventista klofna Innlent „Það er ástæða fyrir því að farið er í að rannsaka þetta andlát“ Innlent Réðst á barn sem gerði dyraat Innlent Berst gegn kvíaeldi á jörð sem hann telur sína Innlent Vill geta vísað flóttafólki úr landi innan tveggja sólarhringa Innlent Óttast mikinn skaða sem seint yrði fyrirgefinn Innlent Furðar sig á ávirðingum vegna kaupa á vínarbrauði Innlent Verkefnið skapi níutíu störf og meðallaunin verði um 1,4 milljón á mánuði Innlent Fleiri fréttir Umdeildur flutningur á hælisleitendum til Rúanda samþykktur Starfsmaður hægrijaðarflokks handtekinn fyrir njósnir fyrir Kína Gera alvarlegar athugasemdir við verðlaunakerfi Tik Tok Tugir handteknir á mótmælum háskólanema gegn aðgerðum Ísraels Undirbúa stærðarinnar sendingar til Úkraínu Engin sönnunargögn bendla UNRWA við árásina Hættu við umfangsmiklar árásir á Íran Sakaði Trump um að reyna að spilla kosningunum 2016 Dæmdu samskiptastjóra Meta fyrir að „verja hryðjuverk“ Modi sakaður um múslimaandúð í miðjum kosningum Dregur úr vinnu og verkefnum Evrópa hlýnar hraðast heimsálfanna Duda segir Pólverja reiðubúna til að geyma kjarnorkuvopn Segir af sér vegna mistaka í kringum árás Hamas Rallýbíll ók á áhorfendur á Sri Lanka Ísraelar æfir yfir fyrirhuguðum þvingunum á Netzah Yehuda herdeildina Ríki heims verja metupphæðum til hermála Kynferðisafbrotamanni bannað að nota gervigreind Varnarmál efst á baugi nýs formanns Ætla að endurreisa Børsen „sama hvað“ Frumvarp um bann við TikTok samþykkt Heita Úkraínu 61 milljarði dala í stuðning Tugir þúsunda mótmæltu fjölda ferðamanna á Kanaríeyjum Sprengjuhótun í Billund Maðurinn sem kveikti í sjálfum sér látinn Íkveikjan ekki talin hafa beinst að Trump eða réttarhöldunum Kveikti í sér fyrir utan dómshúsið þar sem réttað er yfir Trump Fyrstu loftárásir Ísraela í Íran frá 1979 Fengu aðstoð Demókrata við að koma hernaðaraðstoð úr nefnd Hefur mátt sitja undir svívirðingum um sjálfan sig Sjá meira
Strax ljóst að Gísla yrði ekki bjargað Yfirlögregluþjónn sem var fyrstur á vettvang nóttina sem Gísli Þór Þórarinssyni var ráðinn bani í norska bænum Mehamn í apríl segir að strax hafi verið útséð að Gísla yrði ekki bjargað. 22. september 2020 23:30
„Ég verð skugginn þinn þangað til þú hengir þig“ Gunnar Jóhann Gunnarsson segir að sér hafi ekki dottið í hug að nota neitt annað en haglabyss til að hræða hálfbróður sinn Gísla Þór Þórarinsson. Edel Olsen, réttargæslumaður íslenskra aðstandenda Gísla, spurðist fyrir um þetta í dómsal í dag. 22. september 2020 15:47
Tók biblíu, haglabyssu og Captain Morgan með sér heim til Gísla Gunnar Jóhann Gunnarsson segist einungis hafa ætlað sér að hræða hálfbróður sinn nóttina sem hann hélt heim til hans, vopnaður haglabyssu og skaut hann að lokum til bana. 22. september 2020 09:23