Rio Tinto kostar rannsókn á áhrifum Panguna námunnar í Bougainville Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar 21. júlí 2021 07:50 Náman nær yfir gríðarlegt landsvæði og er sögð hafa haft hræðileg áhrif á umhverfið á eyjunni. Þá varð námugröfturinn kveikjan að áratugalangri borgarastyrjöld á eyjunni. Getty/NASA Landsat Þrjátíu og tveimur árum eftir að Rio Tinto flúði eyjuna Bougainville hefur námufyrirtækið lofað að kosta rannsókn, á vegum sjálfstæðra eftirlitsaðila, á umhverfisáhrifum Panguna námunnar. Landeigendur segja það mikilvægt skref til að snú aftur áratuga mengun og umhverfisspjöllum.
Námurisinn hefur lofað að verja milljónum Bandaríkjadala í matið, sem á að snúa bæði að umhverfisáhrifum og áhrifum námunnar á mannréttindi á eyjunni. Gull- og koparnáman var kveikjan að áratugalangri borgarastyrjöld í Bougainville. Fréttastofa Guardian greinir frá. Loforð Rio Tinto er svar námufyrirtækisins við kvörtun sem 156 íbúar í Buigainville skrifuðu undir í september í fyrra. Íbúarnir eru allir búsettir við á sem rennur meðfram námunni og segja íbúarnir að milljörðum tonna af rusli og mengun frá námuni hafi verið dælt í Kawerong-Jaba ána. Þeir segja jafnframt að mengunin hafi enn hræðileg umhverfisáhrif og stefni lífi og lifibrauði þeirra í hættu. Samfélögin við ána hafa fengið til liðs við sig mannréttindalögmannsstofu í Melbourne og hafa verið í samtali við Rio Tinto síðan í desember. Þau eiga í viðræðum við námufyrirtækið með milligöngu ástralskra stjórnvalda. Rannsóknin verður framkvæmd á vegum sjálfstæðs rannsóknarfyrirtækis sem mun meta umhverfisáhrif frá námunni og áhrif hennar á mannréttindi á eyjunni. Rio Tinto hefur ekki lofað fjármagni í að hreinsa upp mengunina en það verður til umræðu þegar matinu er lokið. Náman var ein stærsta kopar- og gullnáma í heiminum á sínum tíma og á einum tímapunkti taldi útflutningur úr námunni 45 prósent útflutnings Papúa Nýju-Gíneu. Þrátt fyrir það rann aðeins eitt prósent hagnaðar frá námunni til Bougainville og segja landeigendur að náman hafi orðið til pólitískra ádeilna, ofbeldis og umhverfisspjalla. Árið 1989 lokaði námann eftir mikinn þrýsting landeigenda, sem höfðu skemmt rafmagnslínur og beitt valdi til að námugröftur gæti ekki haldið áfram. Stjórnvöld í Papúa Nýju-Gíneu sendu her sinn til eyjunnar gegn eigin almenningi til að námugröftur gæti hafist að nýju og í kjölfarið braust út áratugalöng borgarstyrjöld og talið er að allt að 20 þúsund manns hafi látið lífið í átökunum. Árið 2001 var samið um frið og árið 2019 fór fram íbúakosning um sjálfstæði og var niðurstaða hennar afgerandi. 98 prósent íbúa vildu sjálfstæði. Rio Tinto sneri aldrei aftur til Panguna, sagði aðstæður óöruggar fyrir starfsmenn, og sagði skilið við námuna árið 2016.
Papúa Nýja-Gínea Tengdar fréttir Bougainville: Kosið um sjálfstæði kopareyjunnar í nóvember Íbúar á eyjunni Bougainville munu kjósa um hvort eyjan skuli verða sjálfstæði í þjóðaratkvæðagreiðslu eftir rúma tvo mánuði. 15. september 2019 07:15 98 prósent eyjaskeggja greiddu atkvæði með sjálfstæði Íbúar á Bougainville, eyjaklasa sem hluti er af Papúa Nýju-Gíneu, greiddu með yfirgnæfandi meirihluta atkvæði með sjálfstæði í þjóðaratkvæðagreiðslu sem fram fór á síðustu vikum. 11. desember 2019 07:15 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið „Mun ekki halla mér aftur og leyfa deyjandi sjónvarpsstöð að ráðast á mig“ Erlent Katrín efst en Jón hrynur í nýrri könnun Innlent Vilja svör um möguleg „óþægileg hagsmunatengsl“ borgar og RÚV Innlent „Fann það þegar ég vaknaði í morgun að þetta var lúmskt áfall“ Innlent Kolbeinn Sigþórsson ákærður fyrir brot gegn barnungri stúlku Innlent Horfði á þegar vinur hans réðst á manninn sem braut á dóttur hans Innlent „Helvíti fínt“ að komast aftur á Papa's Pizza Innlent Ætlar ekki að þröngva sér upp á fólk Innlent Halla vill skikka ungmenni í samfélagsþjónustu Innlent Hárgreiðslustóll ekki hættulegt tæki og konan fær engar bætur Innlent Fleiri fréttir „Mun ekki halla mér aftur og leyfa deyjandi sjónvarpsstöð að ráðast á mig“ Segir fólk eiga rétt til mótmæla en ekki til óreiðu Umfangsmikil mótmæli vegna „rússneskra“ laga í Georgíu Enn í basli með skemmdir á hitaskildi Orion Vornanen kastað úr þingflokknum Hafa engin varnarvirki til að hörfa í Yfirstandandi kosningar á Englandi prófsteinn fyrir Íhaldsflokkinn Viðbrögð Hamas við vopnahléstillögunum „neikvæð“ Hundruð lögreglumanna í viðbragðsstöðu vegna mótmæla í UCLA Vilja endurupptöku í máli Weinstein Þrjú hundruð handtekin í Columbia-háskóla Stuðningur við dönsku ríkisstjórnina aldrei verið minni Mótmælendur og gagnmótmælendur tókust á Trump sektaður um meira en milljón króna Rússar sagðir nota skotflaugar frá Norður-Kóreu Þrettán ára drengur stunginn til bana með sverði Særði minnst fimm með sverði í Lundúnum Íslendingur sem lúbarði lögreglumenn í Varsjá þarf að borga brúsann Fjórir lögreglumenn skotnir til bana í Charlotte Rostungur sem fannst í fyrra drapst af völdum fuglaflensu Hvetur Hamas til að ganga að rausnarlegum tillögum Ísrael Flugvöllur Færeyinga fær að taka við stærri þotum Yousaf segir af sér sem ráðherra og formaður Skoska þjóðarflokksins Sánchez hættir við að segja af sér Grafið undan fjölmiðlafrelsinu víða í Evrópu Vopnahlé í sjónmáli? Tveir látnir eftir að bíll hafnaði í sjónum við Stokkhólm Fjölmenn mótmæli vegna ofbeldisbylgju í Ástralíu Vasaúr ríkasta manns Titanic seldist á 210 milljónir Þúsundir hvöttu Sánchez til að segja ekki af sér Sjá meira
Bougainville: Kosið um sjálfstæði kopareyjunnar í nóvember Íbúar á eyjunni Bougainville munu kjósa um hvort eyjan skuli verða sjálfstæði í þjóðaratkvæðagreiðslu eftir rúma tvo mánuði. 15. september 2019 07:15
98 prósent eyjaskeggja greiddu atkvæði með sjálfstæði Íbúar á Bougainville, eyjaklasa sem hluti er af Papúa Nýju-Gíneu, greiddu með yfirgnæfandi meirihluta atkvæði með sjálfstæði í þjóðaratkvæðagreiðslu sem fram fór á síðustu vikum. 11. desember 2019 07:15