Skoraði eitt mark þrátt fyrir að spila ekki sekúndu Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 26. febrúar 2021 13:31 Einar Sverrisson fagnar eina marki sínu gegn ÍBV. stöð 2 sport Þrátt fyrir að Einar Sverrisson hafi ekki spilað eina sekúndu í leik Selfoss og ÍBV í Olís-deild karla í gær tókst honum að skora eitt mark. Og það var í glæsilegri kantinum. Í þann mund sem fyrri hálfleik lauk fengu Selfyssingar aukakast. Halldór Sigfússon, þjálfari liðsins, brá þá á það ráð að setja Einar Sverrisson, sem hafði ekkert komið við sögu fram að því, inn á til að taka aukakastið. Það reyndist þjóðráð. Eftir að hafa trekkt öxlina í gang lyfti Einar boltanum yfir varnarvegg ÍBV og í fjærhornið. Samherjar Einars fögnuðu honum vel og innilega enda hafði hann jafnað í 13-13. Mark Einars beint úr aukakastinu má sjá í spilaranum hér fyrir neðan. Klippa: Mark Einars Sverrissonar beint úr aukakasti Þetta reyndist eina framlag Einars í leiknum en hann kom ekkert inn á í seinni hálfleik. Þrátt fyrir að spila ekki sekúndu í leiknum tókst Einari að skora eitt mark. Eins og áður segir var leiktíminn búinn þegar Einar tók aukakastið. Selfoss vann leikinn með tveggja marka mun, 27-25, en sigurinn var kærkominn eftir þrjú töp í röð. Þegar deildarkeppnin er hálfnuð er Selfoss í 5. sæti með þrettán stig en ÍBV í því áttunda með ellefu stig. Næsti leikur Selfyssinga er gegn Stjörnumönnum á sunnudaginn. Patrekur Jóhannesson mætir þar liðinu sem hann gerði að Íslandsmeisturum 2019.
Í þann mund sem fyrri hálfleik lauk fengu Selfyssingar aukakast. Halldór Sigfússon, þjálfari liðsins, brá þá á það ráð að setja Einar Sverrisson, sem hafði ekkert komið við sögu fram að því, inn á til að taka aukakastið. Það reyndist þjóðráð. Eftir að hafa trekkt öxlina í gang lyfti Einar boltanum yfir varnarvegg ÍBV og í fjærhornið. Samherjar Einars fögnuðu honum vel og innilega enda hafði hann jafnað í 13-13. Mark Einars beint úr aukakastinu má sjá í spilaranum hér fyrir neðan. Klippa: Mark Einars Sverrissonar beint úr aukakasti Þetta reyndist eina framlag Einars í leiknum en hann kom ekkert inn á í seinni hálfleik. Þrátt fyrir að spila ekki sekúndu í leiknum tókst Einari að skora eitt mark. Eins og áður segir var leiktíminn búinn þegar Einar tók aukakastið. Selfoss vann leikinn með tveggja marka mun, 27-25, en sigurinn var kærkominn eftir þrjú töp í röð. Þegar deildarkeppnin er hálfnuð er Selfoss í 5. sæti með þrettán stig en ÍBV í því áttunda með ellefu stig. Næsti leikur Selfyssinga er gegn Stjörnumönnum á sunnudaginn. Patrekur Jóhannesson mætir þar liðinu sem hann gerði að Íslandsmeisturum 2019. Olísdeildirnar í handbolta eru á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Olísdeildin er hluti af Stöð 2 Sport Ísland sem kostar 3.990 krónur á mánuði en einnig má kaupa útsendingar sem stakan viðburð á 990 krónur.
Olísdeildirnar í handbolta eru á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Olísdeildin er hluti af Stöð 2 Sport Ísland sem kostar 3.990 krónur á mánuði en einnig má kaupa útsendingar sem stakan viðburð á 990 krónur.
Olís-deild karla UMF Selfoss Mest lesið Barcelona þarf tæplega tuttugu milljarða fyrir lok júnímánaðar Fótbolti McIlroy í baráttunni þrátt fyrir yfirvonandi skilnað Golf Uppgjör: Keflavík - Njarðvík 94-91 | Tvíframlengdur spennutryllir Körfubolti „Ég táraðist smá“ Sport „Frábært að ná sigri í fyrsta leik og í svona svakalegum leik“ Körfubolti „Svíður mjög mikið að við séum ekki nógu klókar til að klára“ Körfubolti Uppgjörið, viðtöl og myndir: Valur - Haukar 28-25 | Valskonur Íslandsmeistarar Handbolti Börsungar styrktu stöðu sína í öðru sæti Fótbolti Uppgjör: Stjarnan - KR 5-3 | Endurkoma KR-inga hófst of seint gegn Stjörnunni Íslenski boltinn Leeds í úrslit um sæti í ensku úrvalsdeildinni Enski boltinn Fleiri fréttir Uppgjörið, viðtöl og myndir: Valur - Haukar 28-25 | Valskonur Íslandsmeistarar Íslendingarnir gerðu lítið þegar Skara féll úr leik Jafnt í Íslendingaslag í undanúrslitum Blaðamannafundur fyrir úrslitaleik Vals í Evrópubikarnum Úr húsvarðarstarfi í atvinnumennsku Uppgjörið og viðtöl: Valur - Afturelding 27-29 | Mosfellingar í úrslit Teitur skoraði fimm og Flensburg heldur naumlega í við toppliðin „Okkur dauðlangar í meira“ Íslendingaliðið tryggði sér oddaleik Ólafur Gústafsson aftur heim í FH: „Gleðidagur fyrir okkur FH-inga“ Einar hættir með kvennalið Fram „Við erum alveg róleg“ Uppgjör: Haukar - Valur 22-30 | Meistararnir í 2-0 Algjör niðurlæging sveina Dags sem hafa aldrei tapað stærra Vonar að pabbi sinn komist ekki á ÓL Heimsmeistararnir stöðvaðir á síðustu stundu Uppgjörið: Eistland - Ísland 24-37 | Gengu örugglega frá Eistum og tryggðu farseðil á HM Frost í sókn en sveinar Dags mörðu sigur Segja Ísland hafa skorað fimmtíu án þess að svitna „Annað hvort gera þeir eins og Man. City eða eins og Liverpool“ Grafalvarleg staða: „Við verðum að breyta þessu strax“ Einar Bragi skrifaði undir tveggja ára samning í Svíþjóð Slóvakía skellti Póllandi óvænt í umspili HM „Við vorum skugginn af sjálfum okkur“ Uppgjörið og viðtöl: Valur - Haukar 28-27 | Íslandsmeistarnir sluppu með skrekkinn Gagnrýnir lítinn stuðning við afreksíþróttafólk: „Upphæðin ein og sér er grín“ Myndaveisla frá risasigrinum á Eistum Færeyingar hársbreidd frá fyrsta heimsmeistaramótinu Uppgjörið: Ísland - Eistland 50-25 | Stigu bensínið í botn frá fyrstu mínútu „Ánægður að við sýndum þá hlið að við getum verið góðir í sextíu mínútur“ Sjá meira