Ókeypis leikskóli og tónlistarskóli í Reykhólahreppi Magnús Hlynur Hreiðarsson skrifar 28. nóvember 2021 14:06 Reykhólahreppur er sveitarfélag á sunnanverðum Vestfjörðum með um tæplega 250 íbúa. Fjárhagsstaða sveitarfélagsins er góð. Aðsend Mikil ánægja er hjá foreldrum barna í Reykhólahreppi því á nýju ári verða leikskólagjöld og tónlistarnám í sveitarfélaginu ókeypis fyrir börn. Ástæðan er góð afkoma sveitarfélagsins.
Reykhólahreppur er sveitarfélag á sunnanverðum Vestfjörðum með um 250 íbúa. Sveitarfélagið er stærsti vinnustaðurinn og svo Þörungaverksmiðjan á Reykhólum, sem gefur góðar tekjur til sveitarfélagsins. Í ljósi góðrar afkomu Reykhólahrepps hefur sveitarstjórn ákveðið að fella niður leikskólagjöld frá næstu áramótum, auk þess verða gjöld í tónlistarnám felld niður. Mikil ánægja er með þessa ákvörðun sveitarstjórnar. Ingibjörg Birna Erlingsdóttir er sveitarstjóri Reykhólahrepps. „Það er bara fín staða hjá Reykhólahreppi eins og er og við þökkum svo sannarlega fyrir það. Þess vegna getum við látið þennan draum rætast, sem hefur verið að velkjast með fulltrúum í sveitarstjórn frá því að þeir tóku við 2018. Við höfum verið að vinna að því að búa svolítið vel um börnin í Reykhólahreppi og reyna að gera fjölskyldunum lífið svolítið léttara. Það er mjög gaman að geta gert þetta,“ segir Ingibjörg Birna. Ingibjörg Birna Erlingsdóttir, sveitarstjóri Reykhólahrepps, sem er mjög stolt af því að sveitarfélagið ætli að nýju ári að bjóða upp á gjaldfrjálsan leikskóla og tónlistarskóla í Reykhólahreppi.Aðsend 13 börn eru í leikskóla Reykhólahrepps og 10 í tónlistarskólanum. Ingibjörn Birna segir að með ókeypis leikskóla og tónlistarskóla vonist sveitarfélagið til þess að geta laðað fleiri barnafjölskyldur og þar með fleiri íbúa til sín í góða samfélagið í Reykhólahreppi. „Já, ég held að það muni um þetta fyrir fjölskyldurnar og þetta eru þær fjölskyldur, þetta er unga fólkið og fólk er jafnvel með tvö eða þrjú börn og þetta er bara stór hluti af ráðstöfunartekjum fólks,“ bætir Ingibjörg Birna við.
Reykhólahreppur Skóla - og menntamál Leikskólar Tónlistarnám Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Endurnýja spá um lok umbrota við Grindavík Innlent „Eldgosið virðist í andarslitrunum“ Innlent Sú sem var oftast nefnd ekki ein af fjórum efstu í könnunum Innlent Tuga enn saknað og 55 látnir Erlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent „Skrímsladeildin“ hafi skorið upp herör gegn mótframbjóðendum Katrínar Innlent „Lífið heldur áfram eftir svona áfall“ Innlent Sló til starfsmanns og beit viðskiptavin Innlent Katrín efst en Jón hrynur í nýrri könnun Innlent Verður borgarstjóri Lundúna þriðja kjörtímabilið í röð Erlent Fleiri fréttir „Eldgosið virðist í andarslitrunum“ Endurnýja spá um lok umbrota við Grindavík Öruggara Suðurland“ – nýtt og spennandi verkefni Sú sem var oftast nefnd ekki ein af fjórum efstu í könnunum Landsmenn ánægðir með frammistöðu Höllu Tómasdóttur í kappræðunum Sló til starfsmanns og beit viðskiptavin „Skrímsladeildin“ hafi skorið upp herör gegn mótframbjóðendum Katrínar Hefur ekki áhuga á slúðurfréttum af öðrum frambjóðendum Tólf tíma tökudagar og svo forsetaframboð Hvernig ætlar ríkið að sækja milljónirnar 360 sem Haraldur gaf? Flottustu Mustang bílarnir landsins til sýnis í dag Halla Hrund eigi langt í land með að tryggja sér embættið Rýnt í forsetakappræður og fylgst með Bakgarðshlaupi „Ég get ekki annað en sagt satt“ Ríflega fjörutíu prósent líst illa á Katrínu „Lífið heldur áfram eftir svona áfall“ Sigu niður í Gretti sterka og dældu úr honum sjó Ók á tvö hundruð með lögguna á hælunum Sólríkasta byrjun árs í Reykjavík í 77 ár Hafa rukkað þá sem valda sinubruna um kostnað við útkall Ótrúlegustu aðskotahlutir gera óskunda í dósatalningarvélum Fjöldi verkfallsboðana á Keflavíkurflugvelli áhyggjuefni Kosið um sameiningu Húna- og Skagabyggðar í júní Nýjustu skoðanakannanir, verkfallsaðgerðir á flugvellinum og týndur gaffall Halla Hrund líka vinsæll annar kostur Kolbeinn hafi strokið kynfæri stúlkunnar ítrekað Segja lýðræðis- og mannréttindabakslag staðreynd Ný sendiskrifstofa opnuð í Síerra Leóne Baldur segir niðurstöður nýjustu kannana vonbrigði Halla Hrund mælist með mest fylgi í nýrri könnun Maskínu Sjá meira