Viðbragð vegna einkavélar sem missti afl á hreyfli

Mynd úr safni.
Mynd úr safni. Morgunblaðið/Sigurður Bogi

Áhafnir tveggja þyrlna Landhelgisgæslunnar auk áhafna björgunarskipa Landsbjargar í Grindavík og Sandgerði voru kallaðar út laust fyrir klukkan þrjú á föstudag vegna einkaflugvélar sem missti afl á öðrum hreyfli vélarinnar. 

Fram kemur í tilkynningu á Facebook-síðu Landhelgisgæslunnar að flugstjórnarmiðstöð ISAVIA hafi greint stjórnstöð Landhelgisgæslunnar frá málinu þegar vélin var stödd 180 sjómílur suðvestur af Reykjanesi og sagðist vinna málið á hættustigi. 

Voru viðbrögð Landhelgisgæslunnar í takt við það og var áhöfn samhæfingarmiðstöðvarinnar vegna flugatvika yfir sjó virkjuð. Vélin lenti síðan á heilu og höldnu á Keflavíkurflugvelli klukkan 15.25 síðdegis og var þá viðbragð þyrlusveitar og björgunarsveita afturkallað. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert