Stjórnvöld þyrftu að koma að ákvörðun um að hætta útburði bréfa Elín Margrét Böðvarsdóttir skrifar 6. mars 2021 13:38 Ársreikningur Íslandspósts var kynntur á aðalfundi félagsins í gær. Vísir/Vilhelm Íslandspóstur getur ekki tekið einhliða ákvörðun um að hætta að bera út bréfpóst. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Íslandspósti sem barst upp úr hádegi í dag þar sem segir að Íslandspóstur sé ekki að íhuga að hætta að bera út bréfpóst líkt og ráða mátti af fréttum í morgun.
Morgunblaðið greindi frá því í dag, og hafði eftir forstjóra Íslandspósts, að ein þeirra leiða sem hægt væri að fara ef gengið yrði lengra í hagræðingu, væri að hætta að bera út bréf. Vísir vitnaði til þeirrar fréttar í morgun þar sem einnig er fjallað um ársreikning félagsins sem kynntur var á aðalfundi félagsins í gær. Í tilkynningu að því tilefni í gær sagði Þórhildur Ólöf Helgadóttir, forstjóri Íslandspósts, að pökkum hafi haldið áfram að fjölga í kerfi Íslandspósts á sama tíma og bréfasendingum hafi fækkað um 80% frá aldamótum. Fyrirséð væri að sú þróun muni að halda áfram og hafa mikil áhrif á rekstur félagsins. „Segja má að fyrirtækið hafi á síðustu árum verið að breytast úr bréfasendingafyrirtæki í pakkadreifingarfyrirtæki,“ sagði meðal annars í tilkynningunni. Í tilkynningunni sem Íslandspóstur sendi fjölmiðlum í dag í tilefni af fréttaflutningi segir hins vegar að það sé ekki rétt að Íslandspóstur sé að íhuga að hætta að bera út bréfpóst: „Íslandspóstur er ekki að íhuga að hætta að bera út bréfapóst enda getur félagið ekki tekið einhliða ákvörðun um slíkt eða um aðra þætti sem snúa að alþjónustuskyldu. Í viðtalinu sem um ræðir var einungis verið að velta upp leiðum sem ríkið gæti farið til að lækka kostnaðargrundvöll á alþjónustu, hvort sem um ræðir rafræna afhendingu bréfa, póstkassavörður eða aðrar útfærslur. Það er ljóst að til framtíðar verður að skoða þjónustustig og útfærslu bréfadreifingar enda mun fækkun bréfa óhjákvæmilega leiða til meiri kostnaðar. Íslandspóstur ítrekar hins vegar að allar ákvarðanir er varða alþjónustu eru teknar af stjórnvöldum en Íslandspóstur vinnur eftir settum lögum og reglum hverju sinni,” segir í tilkynningunni frá Íslandsósti. Í frétt mbl.is sem birtist upp úr hádegi í dag er áréttað að Morgunblaðið hafi spurt forstjórann sérstaklega um þennan þátt í umræddu viðtali og að forstjórinn hafi samþykkt textann fyrir birtingu. Fréttin hefur verið uppfærð.
Pósturinn Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Rauf sátt vegna Max-málsins og gæti átt yfir höfði sér refsimál Viðskipti erlent Sparisjóður hagnaðist um 205 milljónir króna Viðskipti innlent Starfsfólk fær 150 milljónir í hlutabréfum Viðskipti innlent Magnús eignast Latabæ á nýjan leik Viðskipti innlent Snillingur í útlöndum: „Þegar vinirnir keyptu sér nammi keypti ég mér diskókúlur“ Atvinnulíf Sekta Árvakur um 1,5 milljónir króna vegna fjölda dulinna auglýsinga Neytendur Hraðhleðslur spretta upp sem gorkúlur - tvær opna á Þórshöfn Samstarf Ráðin framkvæmdastjóri Rue de Net Viðskipti innlent Polestar 4 kominn í Polestar Reykjavík – umhverfisvænasti bíll Polestar Samstarf „Í dag fæ ég næstum því bara hrós við matarborðið“ Atvinnulíf Fleiri fréttir Sparisjóður hagnaðist um 205 milljónir króna Starfsfólk fær 150 milljónir í hlutabréfum Magnús eignast Latabæ á nýjan leik Ráðin framkvæmdastjóri Rue de Net Almennt útboð Íslandshótela hefst á morgun Ætlar að gera Grillhúsið að heitasta staðnum í Borgarnesi Landsvirkjun selur í fyrsta skipti í raforkukauphöll Ráðin forstöðukona Nýrra orkukosta Eigendur TGI Fridays kaupa Grillhúsið Freyr ráðinn til Eflingar Tilnefndur sem besti leikur fyrir snjalltæki á Norðurlöndum MAST olli Brúneggjum tjóni en RÚV sýknað Tilboðið afturkallað og Eik öðlast frelsi til athafna á ný Brottfarirnar í apríl nokkuð færri en á síðasta ári Engin hópuppsögn í apríl Fer frá Deloitte til Góðra samskipta Mun stýra tæknisviði Carbfix Íslendingar þurfi að gæta hófs í vexti efnahagslífsins Hagnaðist um tæpa ellefu milljarða þrátt slæman búskap Miklar verðbólguvæntingar halda vöxtunum uppi Gera þrjátíu til fjörutíu kaupsamninga á hverjum degi Áhorf á Eurovision hríðfellur Aukið atvinnuleysi Kynning á yfirlýsingu peningastefnunefndar Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum Ráðin aðstoðarforstjóri og fjármálastjóri Sidekick Kaupa Íslensk verðbréf Rekstrarafkoma Sýnar ekki ásættanleg Einar hættir með Grillbúðina Hætta skerðingum til stórnotenda Sjá meira