Það er best að taka það fram strax: Vísindamennirnir sjálfir gera því ekki skóna að ASKAP J173608.2-321635 séu merki frá vitsmunalífi á öðrum hnettum.
Þaðan af síður að geimfar — bara rétt ókomið — sé að láta vita af sér.
En að svo mæltu, þá skal líka fram að þeir hafa í rauninni ekki minnstu hugmynd hvað ASKAP J173608.2-321635 er. Þeir viðurkenna fúslega að þeir standa alveg á gati.
En alls konar getgátum er hreyft í ritgerð um ASKAP J173608.2-321635 sem birtist í dag á vefsíðunni Astrophysical Journal.
Ziteng Wang er aðalhöfundur greinarinnar en hann er doktorsnemi við háskólann í Sydney í Ástralíu sem annast ASKAP útvarpssjónaukann í vesturhluta Ástralíu.
Hinna dularfullu merkja — sem birtast sem radíóbylgjur — varð fyrst vart í janúar 2020. Einhver hlutur í miðju stjörnuþokunnar sem Jörðin tilheyrir — Vetrarbrautarinnar — eins og blossaði upp í örfáar vikur en slokknaði svo aftur.
Ég kann ekki að lýsa útvarpsbylgjum en Wang og meðhöfundar hans fullyrða að bylgjurnar séu á ýmsa lund ólíkar öllu öðru sem þau hafa áður séð í himingeimnum. Hér er hlekkur á ritgerðina í Astrophysical Journal ef fólk vill glíma sjálft við að skilja þetta.
Enn dularfullri urðu þessi útvarpsmerki þegar þau tóku að kvikna og slokkna með mjög óreglulegu millibili á síðasta ári. Þau heyrðust eða sáust — eftir því hvernig á það er litið — sex sinnum fram í september 2020 en hurfu þá.
Vísindamennirnir gáfu þessu dularfullu sendingum sem sagt nafnið ASKAP J173608.2-321635 eftir útvarpssjónaukanum í Ástralíu og hnitum fyrirbærisins á himni, en þegar þeir tala um það sín á milli kalla þeir merkin yfirleitt „Andy“ sem er gælunafn Zitengs Wangs sem fyrstur áttaði sig á að þarna var eitthvað mjög einkennilegt á ferðinni.
Og viti menn — í febrúar síðastliðnum dúkkuðu merkin upp aftur og hafa síðan uppteknum hætti, horfið og birst á ný með óreglulegu og óskiljanlegu millibili.
Vísindamenn hafa beint öðrum útvarpssjónaukum að þeim stað þar sem merkið virðist upprunnið, ekki síst stórum sjónauka í Suður-Afríku, en hafa í rauninni einskis orðið vísari.
„Við erum búin að leita á öllum bylgjulengdum sem við getum, allt frá innrauðum til sjáanlegra bylgna til röntgen-geisla en við finnum ekki neitt, svo þetta virðist ekki koma frá neinni tegund stjarna sem við þekkjum,“ segir Kaplan við háskólann í Wisconsin sem hefur tekið þátt í að rannsaka málið.
Og hann bætir við merkin hegði sér á ýmsan hátt þannig að ætla megi að hluturinn sem gefi þau frá sér sé mjög lítill en hafi sterkt segulsvið.
„Þótt þessi hlutur eigi sumt sameiginlegt með [ýmsum tegundum stjarnfræðilegra fyrirbæra] þá er alltaf eitthvað sem passar ekki,“ segir Kaplan. „Og við skiljum bara ekki hvað þetta er.“
Bæði hérna og hérna má sjá fjallað um þessar furður á erlendum vísindasíðum í dag.
Og þar kemur fram að svartsýnustu menn óttist að menn muni ekki á næstunni komast að því hvað hérna er á ferðinni, og kannski ekki fyrr en á næsta áratug þegar tekið verður í notkun samtengt kerfi nýrra útvarpssjónauka um allan heim.
En þá verða geimverurnar kannski löngu komnar.
Því hvað sem líður tregðu Andys og félaga við að átta sig á hvaðan ASKAP J173608.2-321635 kemur í raun, er þá ekki lang, lang líklegast að foreldrar ET séu að senda honum merki um að hann eigi að koma heim í mat og það sé geimfar á leiðinni að ná í hann?
Athugasemdir