Rekinn og ráðinn samdægurs

Ljubomir Vranjes á langan feril að baki í handboltanum.
Ljubomir Vranjes á langan feril að baki í handboltanum. Ljósmynd/keziszovetseg.hu

Slóvenska handknattleikssambandið sagði Svíanum Ljubomir Vranjes upp störfum í gær eftir að lið Slóvena féll óvænt úr keppni á Evrópumóti karla í Ungverjalandi og Slóvakíu. En hann var ekki lengi atvinnulaus.

Þýska félagið Rhein-Neckar Löwen, sem Ýmir Örn Gíslason leikur með, tilkynnti nefnilega í kjölfarið að Vranjes hefði verið ráðinn þjálfari liðsins til loka þessa tímabils en að því loknu á Sebastian Hinze að taka við þjálfun Löwen.

Vranjes, sem er 48 ára gamall, varð þrisvar Evrópumeistari og einu sinni heimsmeistari með sænska landsliðinu á árunum 1998 til 2002. Hann hefur þjálfað Slóvena undanfarin þrjú ár og var áður m.a. með landslið Ungverja og Serba og félagsliðin Kristianstad, Vezsprém og Flensburg.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert