„Ekki að leita að sökudólgum“ Sunna Sæmundsdóttir skrifar 18. nóvember 2020 15:46 Ólafur Þór Gunnarsson, þingmaður VG og Helga Vala Helgadóttir, þingmaður Samfylkingar. vísir
Formann og varaformann velferðarnefndar Alþingis greinir á um hvernig eigi að framkvæma úttekt á Arnarholti og sambærilegum heimilum. Nefndin er þó einhuga um að rannsaka þurfi málið. Ólafur Þór Gunnarsson, þingmaður VG og varaformaður velferðarnefndar, hefur lagt til að forsætisráðuneytinu verði falið að hefja rannsókn á Arnarholtsmálinu og fleiri sambærilegum stofnunum. Ólafur greindi frá þessu í umræðum um störf þingsins á Alþingi í dag og segist í samtali við fréttastofu telja að koma þurfi málinu strax í farveg. „Þannig að það leiki enginn vafi á því að við ætlum að skoða þetta og ég held að forsætisráðuneytið sé lang best til þess fallið.“ Líkt og Helga Vala Helgadóttir, þingmaður Samfylkingar, og formaður velferðarnefndar greindi frá í hádegisfréttum Bylgjunnar í gær hefur farið fram umræða innan nefndarinnar um áskoranir Geðhjálpar og Þroskahjálpar um rannsókn á málinu. Samtökin hafa farið fram á að rannsóknin nái til aðbúnaðar á heimilum fyrir fólk með þroskaskerðingu eða geðræn veikindi síðustu áttatíu árin. Til skoðunar hefur verið að velferðarnefnd leggi fram þingsályktunartillögu um stofnun rannsóknarnefndar. Helga Vala segir að á fundi velferðarnefndar í morgun hafi komið fram að einhugur sé um að ráðist verði í einhvers konar rannsókn. Hún telur hins vegar mikilvægt að málið heyri undir rannsóknarnefnd en ekki forsætisráðuneytið vegna skýrra lagaheimilda sem nefndin hafi. „Heimildir sem varða réttarstöðu þeira sem eru kallaðar fyrir nefndina og um vernd uppljóstrara. Þetta skiptir mjög miklu máli þegar um er að ræða rannsókn á svona viðkvæmum málum. Við erum að tala um aðbúnað og umönnun fólks sem var lokað inni, sem var vistað af hálfu hins opinbera. Það skiptir svo miklu máli að við séum ekki að þvæla einhverri flokkspólitík inn í það eða að framkvæmdavaldið sé að hlutast til um hvað má rannsaka og hvað ekki,“ segir Helga Vala. Frá Arnarholti á Kjalarnesi.Vísir/Vilhelm „Erum að leita að sannleikanum“ Hún telur að nefndin geti þó rætt sig niður á farsæla niðurstöðu og segir að málið verði tekið fyrir á næsta fundi á mánudag. Ólafur Þór segir forsætisráðuneytið búa að góðri reynslu eftir sambærileg mál, og vísar í úttektir á aðstæðum fólks sem dvaldi í Breiðavík eða á Kópavogshæli. Hann telur málið ekki þess eðlis að eiga heyra undir rannsóknarnefnd. „Við erum ekki að finna sökudólga eða hefja dómsmál í kjölfarið. Við erum að leita að sannleikanum og ég held að það hafi sýnt sig að að forsætisráðuneytið sé mjög hæft til þeirra verka,“ segir Ólafur.
Alþingi Félagsmál Reykjavík Vistheimili Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið „Mun ekki halla mér aftur og leyfa deyjandi sjónvarpsstöð að ráðast á mig“ Erlent Katrín efst en Jón hrynur í nýrri könnun Innlent Vilja svör um möguleg „óþægileg hagsmunatengsl“ borgar og RÚV Innlent „Fann það þegar ég vaknaði í morgun að þetta var lúmskt áfall“ Innlent Kolbeinn Sigþórsson ákærður fyrir brot gegn barnungri stúlku Innlent Horfði á þegar vinur hans réðst á manninn sem braut á dóttur hans Innlent „Helvíti fínt“ að komast aftur á Papa's Pizza Innlent Halla vill skikka ungmenni í samfélagsþjónustu Innlent Ætlar ekki að þröngva sér upp á fólk Innlent „Það er norskur sigur í dag“ Innlent Fleiri fréttir Vilja svör um möguleg „óþægileg hagsmunatengsl“ borgar og RÚV „Fann það þegar ég vaknaði í morgun að þetta var lúmskt áfall“ Horfði á þegar vinur hans réðst á manninn sem braut á dóttur hans „Helvíti fínt“ að komast aftur á Papa's Pizza Ætlar ekki að þröngva sér upp á fólk Katrín efst en Jón hrynur í nýrri könnun Papa's Pizza, verkföll flugvallarstarfsmanna og óvæntur forsetaframbjóðandi Kolbeinn Sigþórsson ákærður fyrir brot gegn barnungri stúlku Framboð Viktors Traustasonar er gilt Hárgreiðslustóll ekki hættulegt tæki og konan fær engar bætur Afkoma borgarinnar versnar um níu milljarða króna milli ára Samþykktu verkfallsaðgerðir á Keflavíkurflugvelli Útimarkaðurinn í Mosó hættir Atli Þór ráðinn til Pírata: „Við ætlum að koma flokknum í ríkisstjórn“ Biðlistinn á Stígamótum styttist í fyrsta sinn í þrjú ár Ný skoðanakönnun á morgun og Pallborð klukkan 14 Áfram landris og óvissa um framhaldið Tryggja þurfi tímabundin afnot náttúruauðlinda í stjórnarskrá Búinn að skila inn undirskriftum eftir „óvenjulegan“ frest „Það er norskur sigur í dag“ Grindvíkingar opna bakarí og veitingastað á ný Bakarí og veitingastaður opna í Grindavík á ný Friðrik skipaður sendiherra í Póllandi Halla vill skikka ungmenni í samfélagsþjónustu Íslendingur í gæsluvarðhaldi vegna Hamraborgarmálsins Betra að fá óþægilegu málin fram fyrr en seinna Eldur í ruslageymslu í Hafnarfirði Seinni umferð biskupskjörs hefst á hádegi í dag Icelandair flýgur til Færeyja að nýju Stutt í næsta gos komi til gosloka Sjá meira