Augljóst að verið sé að hræða starfsfólkið Lillý Valgerður Pétursdóttir skrifar 25. janúar 2023 18:11 Formaður Eflingar segir reynt að hræða starfsfólk Íslandshótela frá því að fara í verkfall sem hún hafi fulla trú á að félagsmenn samþykki. Framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins segir að afturvirkar launahækkanir standi starfsfólki Eflingar til boða þar til verkfall skelli á.
Atkvæðagreiðsla hátt í þrjú hundruð starfsmanna Íslandshótela um boðaðar verkfallsaðgerðir hófst í gær. Atkvæðagreiðslunni lýkur á mánudaginn og þá verður ljóst hvort að félagsmenn vilji fara í verkfall. Stjórn Samtaka atvinnulífsins ákvað á fundi sínum í gærkvöldi að styðja við Íslandshótel fjárhagslega ef til verkfalls kemur. „Það þýðir að vinnudeilusjóður Samtaka atvinnulífsins mun bæta Íslandshótelum upp það tjón sem hlýst af ef boðuð verkföll koma til framkvæmda,“ segir Halldór Benjamín Þorbergsson. Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar segir ljóst að Samtök atvinnulífsins séu tilbúin til að gera margt annað en að semja við Eflingu. Sjá má viðtalið við Sólveigu Önnu í heild sinni hér að neðan: „Það er auðvitað áhugavert fyrir okkur að sjá að menn eru bókstaflega tilbúnir til þess að gera hvað sem er annað en að semja við Eflingu á þeim forsendum sem að við förum fram á. Bókstaflega tilbúið til að gera allt annað en að viðurkenna að hér stritar fólk baki brotnu en nær samt aldrei endum saman en á þessum tímapunkti verð ég bara að segja að það er ekkert lengur sem að kemur okkur á óvart. Menn eru tilbúnir til þess að leggjast ansi lágt í stað þess að verða við bara sjálfsögðum og eðlilegum kröfum um örlítið meiri sanngirni.“ Framkvæmdastjóri Íslandshótela sagði í fréttum okkar í gær að Efling hafi dregið upp mjög einsleita mynd af stöðunni fyrir starfsfólkið og að hann búist ekki við því að verkfall verði samþykkt. „Við skynjum mikinn og raunverulegan vilja til þess að berjast fyrir betri kjörum. Það er alþekkt í baráttu sem snýst um það að brjóta niður verkalýðsbaráttu að grípa til ráða eins og þeir hafa gert að safna fólki saman, halda fundi sem fólk verður að mæta á á vinnutíma til þess að hræða það. Til þess að dæla í það einmitt röngum upplýsingum,“ segir Sólveig. Hún sé á því að forsvarsmenn Íslandshótela hafi verið að hræða starfsfólk sitt. „Ég held að það hljóti allir sem að eru færir um að lesa fréttir og fylgjast með þeim að geta komist að þeirri niðurstöðu það er augljóst.“ Sólveig á von á að samþykkt verði að fara í verkfall. Framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins segir afturvirkar launahækkanir enn í boði fyrir Eflingu. Sjá má viðtalið við Halldór Benjamín í heild sinni hér að neðan: „Afturvirkni fellur niður þegar að verkfall kemur til framkvæmda. Það er alveg skýrt,“ segir Halldór. Sólveig sér ekki fyrir sér að sest verði við samningaborðið hjá ríkissáttasemjara á næstunni. „Embætti ríkissáttasemjara virðist ekki hafa nein tól til þess einmitt að leysa deilu sem að snýst um alvarleg stéttaátök og embætti ríkissáttasemjara ber einmitt ábyrgð á því að hafa einmitt látið það gerast að menn lokuðu sig inni á maraþonfundum og virðast á þeim maraþonfundum hafa komist að þeirri niðurstöðu að það væri þeirra að svipta Eflingu sjálfstæðu samningsumboði.“
Kjaraviðræður 2022-23 Kjaramál Vinnumarkaður Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið „Lífið heldur áfram eftir svona áfall“ Innlent Ríflega fjörutíu prósent líst illa á Katrínu Innlent Varaforsetaefni í bobba vegna hundsdráps og meints fundar með Kim Erlent Ók á tvö hundruð með lögguna á hælunum Innlent Flugvél Atlanta á tæpasta vaði í Ríad Erlent Katrín efst en Jón hrynur í nýrri könnun Innlent „Ég get ekki annað en sagt satt“ Innlent Halla Hrund eigi langt í land með að tryggja sér embættið Innlent Sigu niður í Gretti sterka og dældu úr honum sjó Innlent Ótrúlegustu aðskotahlutir gera óskunda í dósatalningarvélum Innlent Fleiri fréttir Flottustu Mustang bílarnir landsins til sýnis í dag Halla Hrund eigi langt í land með að tryggja sér embættið Rýnt í forsetakappræður og fylgst með Bakgarðshlaupi „Ég get ekki annað en sagt satt“ Ríflega fjörutíu prósent líst illa á Katrínu „Lífið heldur áfram eftir svona áfall“ Sigu niður í Gretti sterka og dældu úr honum sjó Ók á tvö hundruð með lögguna á hælunum Sólríkasta byrjun árs í Reykjavík í 77 ár Hafa rukkað þá sem valda sinubruna um kostnað við útkall Ótrúlegustu aðskotahlutir gera óskunda í dósatalningarvélum Fjöldi verkfallsboðana á Keflavíkurflugvelli áhyggjuefni Kosið um sameiningu Húna- og Skagabyggðar í júní Nýjustu skoðanakannanir, verkfallsaðgerðir á flugvellinum og týndur gaffall Halla Hrund líka vinsæll annar kostur Kolbeinn hafi strokið kynfæri stúlkunnar ítrekað Segja lýðræðis- og mannréttindabakslag staðreynd Ný sendiskrifstofa opnuð í Síerra Leóne Baldur segir niðurstöður nýjustu kannana vonbrigði Halla Hrund mælist með mest fylgi í nýrri könnun Maskínu Tilvísunum vegna skekkju á höfuðkúpu ungbarna fjölgað mikið Fréttaskýring Maríu Sigrúnar kemur út á mánudag Einar segir forsetaembættið um ekki neitt Svona gæti bensínstöðvarreiturinn við Ægisíðu litið út Ákærð fyrir að kæfa son sinn með kodda Börn lögð inn með kíghósta „Við reyndum eins og við gátum“ Framkvæmdanefnd fyrir Grindavík sett á laggirnar Sambærileg rúðubrot í Lækjargötu og á Skólavörðustíg Skipar framkvæmdanefnd um málefni Grindavíkur Sjá meira