Fótbolti

Manchester United í undanúrslit eftir öruggan sigur

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Vilde Boe Risa fagnar marki sínu í dag.
Vilde Boe Risa fagnar marki sínu í dag. Vísir/Getty

Manchester United tryggði sér farseðilinn í undanúrslit FA-bikars kvenna er liðið vann öruggan 1-3 sigur gegn B-deildarliði Lewes í dag.

Gestirnir í United náðu forystunni strax á áttundu mínútu leiksins þegar Rhian Cleverley varð fyrir því óláni að setja boltann í eigið net. Það reyndist eina mark fyrri hálfleiksins og var staðan því 0-1 þegar liðin gengu til búningsherbergja.

Vilde Boe Risa tvöfaldaði svo forskot gestanna á 68. mínútu, en Emily Kraft minnkaði muninn fyrir Lewes fimm mínútum síðar.

Nikita Parris gerði þó út um vonir heimakvenna þegar hún endurheimti tveggja marka forskot United með marki á 89. mínútu og niðurstaðan varð því 1-3 sigur United og liðið á leið í undanúrslit FA-bikarsins.

María Þórisdóttir var í byrjunarliði United í dag, en var tekin af velli þegar um 25 mínútur voru til leiksloka.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×