Nostalgíumynd ársins í NBA-deildinni Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 4. júlí 2022 16:31 Stephen Curry og sonur hans Canon mættu um helgina á leik Golden State Warriors og Sacramento Kings í Sumardeild NBA. Getty/Scott Strazzante Stephen Curry fetaði í fótspor föður síns og varð stjarna í NBA-deildinni í körfubolta. Fjölmiðlar hafa í gegnum tíðina verið duglegir að rifja upp mynd sem var tekin af þeim feðgum þegar Steph var fjögurra ára. Nú hefur Steph „endurtekið“ leikinn.
Ljósmyndarar náðu nefnilega mynd af Stephen Curry með ungum syni sínum Canon Curry á körfuboltaleik á dögunum og þá voru minnugir fljótir að bera hana saman við myndina sem var tekin fyrir þrjátíu árum síðan. Úr varð þá mögulega nostalgíumynd ársins í NBA-deildinni en hana má sjá hér fyrir neðan. 30 YEARS APART!!! (1992) Dell Curry with his 4-year old son Stephen Curry (2022) Stephen Curry with his 4-year old son Canon Curry #NBAReact Zeus Posted by NBA REACT on Sunnudagur, 3. júlí 2022 Canon Curry (fæddur 2018) er þriðja barn þeirra Steph og Ayeshu Curry en fyrir áttu þau stelpurnar Riley (2012) og Ryan (2015). Steph var að klára frábært tímabil þar sem hann varð NBA-meistari í fjórða sinn með liði Golden State Warriors og var nú í fyrsta sinn kosinn besti leikmaður úrslitaeinvígsins. Steph er nú búinn að spila 826 deildarleiki í NBA-deildinni og er með 24,3 stig, 6,5 stoðsendingare og 3,8 þriggja stiga körfur að meðaltali í þeim. Hann hefur skorað fleiri þriggja stiga körfur en nokkur annar í deildinni eða alls 3117 talsins. Steph var með 31,2 stig, 5,0 stoðsendingar og 5,2 þrista í leik í lokaúrslitunum á móti Boston Celtics. Dell Curry, faðir Steph, spilaði 1083 deildarleiki í NBA-deildinni frá 1986 til 2002 en byrjaði þó aðeins 99 af þessum leikjum. Hann skoraði 11,7 stig að meðaltali í þessum leikjum og setti niður 1245 þriggja stiga skot. Dell spilaði með fimm félögum í deildinni en tíu af sextán tímabilum sínum með liði Charlotte Hornets. Steph Curry fæddist í Cleveland í mars 1988 þegar Dell faðir hans var á sínu eina tímabili með Cleveland Cavaliers.
NBA Mest lesið Þjálfari Orra Steins sáttur: Hann hefur haldið kjafti Fótbolti Þurfti að eyða níu og hálfum tíma í leigubíl til að komast í burtu Sport Ákærður fyrir að slá barn sitt með blautu handklæði Sport Hrósar Alberti en Inter þarf að safna fyrir honum Fótbolti Landsliðsmaður blandar sér í umræðuna um umdeilda sigurkörfu Njarðvíkinga Körfubolti Saman á ný eftir súrrealískan dag: „Við erum eins og lím við hvorn annan“ Íslenski boltinn Áfall fyrir Vestra: Eiður Aron brotinn og lengi frá Íslenski boltinn Liðsfélagarnir í sumarfríi en hann að vinna tólf tíma á dag á Íslandi Körfubolti Fyrstir áfram en þjálfarinn meiddist alvarlega þegar leikmaður hans lenti á honum Körfubolti Sjáðu dramatíkina í fyrsta grasleiknum á KR-vellinum og öll hin mörkin Íslenski boltinn Fleiri fréttir Tók sinn tíma að jafna sig Landsliðsmaður blandar sér í umræðuna um umdeilda sigurkörfu Njarðvíkinga Liðsfélagarnir í sumarfríi en hann að vinna tólf tíma á dag á Íslandi Fyrstir áfram en þjálfarinn meiddist alvarlega þegar leikmaður hans lenti á honum „Hver karfa skiptir máli þannig að ég varð smá reiður“ Uppgjör: Grindavík - Njarðvík 79-83 | Grænar stálu heimavellinum í Smáranum Brunson skaut Philadelphia í kaf LeBron og Davis köstuðu líflínu til Lakers Bucks líklega án beggja ofurstjarna sinna í leik fjögur Góður leikur Tryggva skilaði engu „Kviknaði á okkur og við náðum að slökkva í þeim“ Uppgjör og viðtöl: Keflavík - Stjarnan 93-65 | Ótrúlegur seinni hálfleikur og Keflavík leiðir „Höfum verið að bíða eftir þessu“ Úlfarnir einum sigri frá því að senda Sólirnar í sumarfrí Aþena sendi sterk skilaboð í fyrsta leik Þrjú Suðurnesjalið í undanúrslitum í fyrsta sinn í tuttugu ár Davíð Tómasi bárust ljót skilaboð eftir leik: „Fokking mongolitið þitt“ „Krakkarnir í stúkunni eru byrjaðir að taka upp á þessu líka“ Lakers einu tapi frá því að vera sópað út úr úrslitakeppninni Sjáðu ótrúlegan flautuþrist Þorvaldar Orra „Tel mjög vafasamt að klukkan hafi verið sett af stað á réttum tíma“ „Vakna í hádeginu á morgun og fer að hugsa um Valsarana“ Uppgjörið: Njarðvík - Þór Þ. 98-97 | Þorvaldur Orri tryggði Njarðvík sigur með flautukörfu í framlengingu Friðrik Ingi sæmdur gullmerki Njarðvíkur Þórsarar hafa spilað þrjá oddaleiki síðan Njarðvík var síðast í oddaleik Sjokkeruðu Celtics menn með þriggja stiga skotsýningu „Heldur betur búinn að vinna hjörtu Keflvíkinga“ Tekið á móti Tryggva eins og Hollywood stjörnu Hristir hausinn yfir „glórulausum“ og „smásálarlegum“ ummælum Uppgjörið og viðtöl: Haukar 73-75 Stjarnan | Stjarnan áfram eftir naglbít Sjá meira
Uppgjörið: Njarðvík - Þór Þ. 98-97 | Þorvaldur Orri tryggði Njarðvík sigur með flautukörfu í framlengingu