Greiðslur til Ivönku Trump til rannsóknar í New York Kjartan Kjartansson skrifar 20. nóvember 2020 10:17 Ivanka Trump var einn stjórnenda Trump-fyrirtækisins sem greiddi öðru fyrirtæki hennar fyrir ráðgjafarstörf. Trump-fyrirtækið lækkaði skattbyrði sína með því að afskrifa ráðgjafargreiðslurnar sem rekstrarkostnað. Vísir/Getty
Skattaafskriftir Donalds Trump, fráfarandi Bandaríkjaforseta, eru nú viðfangsefni tveggja rannsókna í New York. Rannsóknirnar beinast meðal annars að ráðgjafargreiðslum sem virðast hafa runnið til Ivönku Trump, dóttur forsetans. Umdæmissaksóknari á Manhattan stýrir sakamálarannsókn og dómsmálaráðherra New York-ríkis einkamálarannsókn á meintum fjársvikum Trump og fyrirtækis hans, að sögn New York Times. Þær fara fram óháðar hvor annarri en bæði embætti hafa stefnt Trump-fyrirtækinu um gögn sem tengjast greiðslum til ráðgjafarfyrirtækja á undanförnum vikum. Upplýsingar úr skattskýrslum Trump sem New York Times birti nýlega leiddu í ljós að Trump hefur greitt lítinn sem engan tekjuskatt í fleiri ár þar sem hann hefur getað afskrifað taprekstur fyrirtækisins. Þannig gat Trump til dæmis lækkað skattbyrði sína með því að afskrifa greiðslur upp á um 26 milljónir dollara, jafnvirði um 3,5 milljarða íslenskra króna, til ónefndra ráðgjafa sem rekstrarkostnað við fjölda verkefna fyrirtækisins á milli áranna 2010 og 2018. Ivanka Trump virðist hafa þegið meira en 747.000 dollara, jafnvirði tæpra 102 milljóna íslenskra króna, frá Trump-fyrirtækinu í gegnum ráðgjafarfyrirtæki í hennar nafni. Trump-fyrirtækið afskrifaði jafnháa upphæð vegna ráðgjafarkostnaðar við hótelframkvæmdir á Havaí og Vancouver í Kanada. Hún var á meðal stjórnenda Trump-fyrirtækisins á sama tíma og hún þáði ráðgjafargreiðslurnar. New York Times segir að bandarísk skattayfirvöld krefjist þess vanalega að ráðgjafargreiðslur byggist á markaðslegum forsendum og að þær séu nauðsynlegar fyrir rekstur fyrirtækis. Grunsemdir eru sagðar um að ráðgjafargreiðslurnar hafi verið leið til nýta launagreiðslur til barna Trump til draga úr skattbyrði eða forðast að þurfa að greiða skatt af tilfærslu eigna til barnanna. New York Times hefur áður sagt frá því að Trump-fjölskyldan hafi komið sér undan því að greiða erfðafjárskatt þegar auðæfi foreldra forsetans voru færð til barna þeirra á sínum tíma með vafasömum hætti. Sló úr og í um eignir sínar eftir hentugleika Alan Garten, lögmaður Trump-fyrirtækisins, fullyrðir að rannsóknirnar séu lítið annað en „veiðiferð“ sem sé ætlað að áreita fyrirtækið. Það hafi farið að lögum í einu og öllu. Trump hefur fram að þessu náð að tefja rannsókn saksóknarans í New York með því að reyna að koma í veg fyrir að hann fái skattskýrslur hans afhentar á þeim forsendum að hann sé forseti. Málið kemur brátt fyrir hæstarétt í annað skiptið. Trump lætur af embætti 20. janúar. Rannsókn dómsmálaráðherrans í New York beinist einnig að starfsemi Trump-fyrirtækisins. Hún hófst eftir að Michael Cohen, fyrrverandi lögmaður Trump, greindi frá því að forsetinn hefði sem fasteignamógúll í New York ýkt eignir sínar á lánaumsóknum en gert minna úr þeim en efni stóðu til til að draga úr skattbyrði sinni. Eric Trump, einn sona forsetans og stjórnenda fyrirtækisins, gaf skýrslu í rannsókn dómsmálaráðherrans í síðasta mánuði. Letitia James, dómsmálaráðherrann, getur vísað málinu til sakamálarannsóknar eða óskað eftir heimild frá ríkisstjóra eða fjármálastjóra New York til þess að gefa sjálf út ákærur. Ivanka Trump brást hart við fréttum af rannsóknunum á Twitter í dag og fullyrti að þær væru „áreitni“ demókrata í New York sem ætti sér pólitískar rætur. Staðhæfði hún jafnframt að greiðslurnar hefðu ekki falið í sér neitt skattalegt hagræði. This is harassment pure and simple. This ‘inquiry’ by NYC democrats is 100% motivated by politics, publicity and rage. They know very well that there’s nothing here and that there was no tax benefit whatsoever. These politicians are simply ruthless.https://t.co/4dQoDzQlRX— Ivanka Trump (@IvankaTrump) November 20, 2020 This is harassment pure and simple. This ‘inquiry’ by NYC democrats is 100% motivated by politics, publicity and rage. They know very well that there’s nothing here and that there was no tax benefit whatsoever. These politicians are simply ruthless.https://t.co/4dQoDzQlRX— Ivanka Trump (@IvankaTrump) November 20, 2020 Fréttin hefur verið uppfærð.
Bandaríkin Donald Trump Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið María Sigrún látin fara úr Kveik Innlent Ætlar í aðra undirskriftasöfnun Innlent Halla Hrund mælist með mest fylgi allra frambjóðenda Innlent Svona var stemmningin á lokaspretti forsetaefnanna í Hörpu Innlent Svona var Pallborðið með Arnari Þór, Ásdísi Rán og Ástþóri Innlent „Ef ég get flogið þremur gerðum af þyrlum þá get ég tekið ákvörðun fyrir þjóðina“ Innlent Dregur framboðið til baka Innlent „Ísdrottningin myndi bráðna ef hér kæmi kjarnorkusprengja“ Innlent Mikil tíðindi í glænýrri könnun Innlent Viktor stal senunni: Hefði ekki haft tíma til að safna ef hann væri í vinnu Innlent Fleiri fréttir Rýma dómshús vegna sprengjuhótunar Dómstóll fyrirskipar handtöku landbúnaðarráðherra Selenskís Ákvörðun áfrýjunardómstólsins áfall og stórt skref aftur á bak Trump líklegur til að græða á úrskurði Hæstaréttar Dómi Harvey Weinstein snúið við Tekur fyrir að hafa verið „hermaður Hitlers“ Maður á sextugsaldri sagður hafa stungið grunnskóladreng Sánchez íhugar að segja af sér vegna meintrar spillingar Spaðar Rauðu myllunnar hrundu til jarðar í nótt Skipulögðu árásir í Þýskalandi og víðar í nafni ISKP Fyrstu hergögnin eiga að berast til Úkraínu á næstu klukkustundum Segir ekki af sér þrátt fyrir njósnir aðstoðarmannsins Aðstoðarvarnarmálaráðherra ákærður fyrir mútuþægni Upptök eldsins í gömlu kauphöllinni enn ókunn Settur út af sakramentinu fyrir að stýra minningarstund um Navalní Handtóku barnunga öfgamenn eftir stunguárás í Sydney Ekki ólöglegt fyrir konur að brjóta gegn körlum Grunuð um að hafa banað tveimur börnum Vitni greinir frá ráðabruggi og lögmaður Trump fær viðvörun Öldungadeildin samþykkti 95 milljarða dala aðstoð við Úkraínu, Ísrael og Taívan Reyna að sigla um geiminn á geislum sólarinnar Lýsa yfir áhyggjum af fregnum af fjöldagröfum á Gasa Fá aftur gögn frá tæplega hálfrar aldar gömlu geimfari Umdeildur flutningur á hælisleitendum til Rúanda samþykktur Starfsmaður hægrijaðarflokks handtekinn fyrir njósnir fyrir Kína Gera alvarlegar athugasemdir við verðlaunakerfi Tik Tok Tugir handteknir á mótmælum háskólanema gegn aðgerðum Ísraels Undirbúa stærðarinnar sendingar til Úkraínu Engin sönnunargögn bendla UNRWA við árásina Hættu við umfangsmiklar árásir á Íran Sjá meira