Óskar var í aðalhlutverki

Óskar Ólafsson, til hægri.
Óskar Ólafsson, til hægri. Ljósmynd/Drammen

Óskar Ólafsson var í aðalhlutverki hjá Drammen þegar lið hans vann útisigur á Fjellhammer, 25:23, í norsku úrvalsdeildinni í handknattleik í kvöld.

Óskar, sem er lykilmaður í varnarleik Drammen en hefur fært sig upp á skaftið í sóknarleiknum það sem af er þessu tímabili, var markahæsti leikmaður liðsins með 7 mörk.

Drammen hefur fengið ellefu stig í fyrstu átta leikjum sínum og er í þriðja sæti deildarinnar, á eftir Arendal sem er með 13 stig og Elverum sem er með 12 stig.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert