Segir Tyrki mögulega munu hleypa Finnum inn án Svía Hólmfríður Gísladóttir skrifar 30. janúar 2023 08:14 Erdogan er enn að hóta því að halda Svíum fyrir utan Atlantshafsbandalagið. AP/Amin Durgut Recep Tayyip Erdogan Tyrklandsforseti segir Tyrki mögulega munu leggja blessun sína yfir aðildarumsókn Finna að Atlantshafsbandalaginu án þess að samþykkja að hleypa Svíum inn á sama tíma.
Ummælin lét forsetinn falla á kosningafundi með ungu fólki en gengið verður til kosninga í landinu 14. maí næstkomandi og hefur forsetinn unnið að því að styrkja bakland sitt. Tyrkland og Ungverjaland eru einu aðildarríki Nató sem enn eiga eftir að greiða atkvæði um umsóknir Finna og Svía en gert er ráð fyrir að ungverska þingið taki þær til umræðu í febrúar. Erdogan sagði á fundinum í gær að Tyrkir gætu mögulega „sjokkerað“ Svía með því að segja já við Finnland en halda að sér höndum hvað varðar Svíþjóð. Þá ítrekaði hann kröfu sína um að Svíar framseldu hóp Kúrda. „Ef þið eruð staðráðin í því að ganga í Nató þá skilið þið okkur þessum hryðjuverkamönnum,“ sagði hann. Bæði Finnland og Svíþjóð hafa tekið skref til að koma til móts við Tyrki, til að mynda aflétt vopnasölubanni sem komið var á eftir að Tyrkir réðust inn í Sýrland árið 2019. Stjórnvöld í Tyrklandi eru hins vegar gríðarlega óánægð með þá ákvörðun lögreglu í Svíþjóð að heimila mótmæli þar sem eintak af Kóraninum var brennt. Þá vakti það hörð viðbrögð að saksóknarar skyldu ákveða að ákæra ekki stuðningsmenn Kúrda sem hengdu líkneski af Erdogan upp á ökklunum við dómshúsið í Stokkhólmi. Finnar hafa gefið til kynna að þeir kunni að ganga inn í Nató á undan Svíum vegna þeirrar stöðu sem upp er komi í samskiptum Tyrkja og Svía.
Tyrkland NATO Finnland Svíþjóð Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Bergvin dæmdur fyrir að áreita þrjár konur Innlent Of þung en annars hraust á Ozempic Innlent Skuldirnar bíði þegar frelsið taki við Innlent Gular viðvaranir á Suðurlandi, Suðausturlandi og Faxaflóa á morgun Innlent Ekki megrunarlyf heldur lyf við offitu Innlent Segja grafalvarlegt mál að fresta atkvæðagreiðslu Innlent Myndband sýnir árás Diddy Erlent Slasaður eftir hestaslys í Ölfusi Innlent „Það er miður að það falli til kostnaður vegna þessa“ Innlent Fleiri fréttir Myndband sýnir árás Diddy Færeyingar felldu frumvarp um fóstureyðingar Þrjátíu ár fyrir árásina á mann þingforsetans Segir Rússa ekki hafa í hyggju að taka Kharkív Viðtal á Stöð 2 kveikir upp í færeyskum stjórnmálum Reyndi að kveikja í bænahúsi gyðinga og var skotinn til bana Spánverjar neita skipi með vopn innanborðs um að leggja að bryggju „Einfari“ ákærður fyrir tilræðið við Fico Hver er Robert Fico? Neyðarástandi lýst yfir á Nýju-Kaledóníu eftir miklar óeirðir Ágreiningur innan stjórnarinnar brýst upp á yfirborðið Hægriflokkar ná saman um myndun ríkisstjórnar Samið um kappræður í júní og september Fico ekki talinn í lífshættu Þróun ES-30 flugvélarinnar flutt frá Svíþjóð til Kaliforníu Þetta er vitað um árásarmanninn Biden skorar á Trump Forsætisráðherra Slóvakíu í lífshættu eftir skotárás Þverpólitískar tillögur um viðbrögð vegna gervigreindar FIFA byrjað að vinda ofan af umbótum eftir spillingarhneykslið Fulltrúar Talíbana á ráðstefnu í Ósló Fyrsta opinbera málverkið af konunginum Karli III afhjúpað í gær Gróðureldar ógna olíuvinnslumiðstöð í Kanada Gríðarleg leit gerð að mönnum sem frelsuðu fanga í Frakklandi Skriðdrekar Ísraelshers komnir inn í íbúðahverfi í Rafah Framámaður AfD sektaður fyrir að nota slagorð nasista Vill bjóða NATO að byggja nýjan flugvöll í Færeyjum Þorir að veðja bjór á að hún verði áfram forsætisráðherra Lokað á grein um barnadráp í Bretlandi Drápu fangaverði og hjálpuðu fanga að strjúka Sjá meira