Fjögur ráðin til Kviku eignastýringar Atli Ísleifsson skrifar 5. maí 2021 10:36 Andri, Helen og Pétur hafa hafið störf en Sigurður hefur störf í síðari hluta maí. kvika Andri Stefan Guðrúnarson, Helen Ólafsdóttir, Pétur Richter og Sigurður Pétur Magnússon hafa öll verið ráðin til Kviku eignastýringar.
Í tilkynningu segir að ráðningarnar komi samhliða auknum umsvifum félagsins og endurspegla þann vöxt sem félagið hefur búið við. „Andri Stefan Guðrúnarson hefur verið ráðinn sérfræðingur innan Kviku eignastýringar. Í upphafi mun hann starfa innan fjármála- og rekstrarsviðs félagsins en síðar flytjast yfir á sjóðastýringarsvið. Andri hefur áður starfað sem sérfræðingur og sjóðstjóri innan eignastýringar fagfjárfesta hjá Arion banka. Andri er með BSc gráðu í hagfræði frá Háskóla Íslands og MS gráðu í viðskiptafræði. Andri hefur auk þess lokið prófi í verðbréfaviðskiptum. Helen Ólafsdóttir hefur verið ráðin sem sérfræðingur á sjóðastýringarsviði og mun koma að rekstri kredit sjóða í rekstri félagsins. Helen hefur starfað frá 2009 hjá Arion banka og Stefni, síðast sem viðskiptastjóri á fyrirtækjasviði. Helen er viðskiptafræðingur með MSc gráðu í fjármálum frá Háskóla Íslands og B.Ed. próf frá Kennaraháskóla Íslands auk þess að hafa lokið prófi í verðbréfaviðskiptum. Pétur Richter hefur verið ráðinn sem fjárfestingarstjóri á framtakssjóðasviði. Hann mun koma að fjárfestingum fyrir Iðunni slhf., nýstofnuðum framtakssjóði á sviði lífvísinda og heilsutækni. Pétur hefur undanfarið unnið sem fyrirtækjaráðgjafi innan Deloitte. Áður starfaði Pétur hjá Arion banka og forverum hans í fyrirtækjaráðgjöf, fyrirtækjalausnum og markaðsviðskiptum. Pétur er vélaverkfræðingur frá Háskóla Íslands og MBA frá Háskólanum í Reykjavík auk þess að hafa lokið prófi í verðbréfaviðskiptum. Sigurður Pétur Magnússon hefur verið ráðinn sem áhættustjóri félagsins. Sigurður hefur starfað sem sérfræðingur í áhættustýringu Arion banka frá 2015 og verið stundakennari við Háskólann í Reykjavík frá 2016 og m.a. kennt áfanga í áhættustýringu við verkfræðideild skólans. Sigurður er með BS gráðu í umhverfis- og byggingarverkfræði frá Háskóla Íslands og PhD gráðu í umhverfis- og byggingarverkfræði frá Massachusetts Institute of Technology (MIT). Við MIT starfaði Sigurður einnig við ýmsar rannsóknir á sviði reiknilegrar straumfræði. Andri, Helen og Pétur hafa hafið störf en Sigurður hefur störf í síðari hluta maí,“ segir í tilkynningunni.
Vistaskipti Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Dagar Workplace eru taldir Viðskipti erlent Fyrirtæki hvött til að halda upp á daginn í dag og gera sér dagamun Atvinnulíf Forstjóri Play íhugar að fljúga frekar til Íslands en frá Viðskipti innlent Base parking gjaldþrota Viðskipti innlent Guðmundur tilnefndur til Evrópsku nýsköpunarverðlaunanna 2024 Viðskipti innlent Bein útsending: Opinn kynningarfundur vegna útboðs Íslandshótela Samstarf Greiðsluáskorun Samstarf Snillingur í útlöndum: „Þegar vinirnir keyptu sér nammi keypti ég mér diskókúlur“ Atvinnulíf Starfsfólk fær 150 milljónir í hlutabréfum Viðskipti innlent Þjónusturof hjá alþjóðlegum birgja Viðskipti innlent Fleiri fréttir Guðmundur tilnefndur til Evrópsku nýsköpunarverðlaunanna 2024 Forstjóri Play íhugar að fljúga frekar til Íslands en frá Base parking gjaldþrota Endurkjörinn formaður og fimm koma ný inn í stjórn Þjónusturof hjá alþjóðlegum birgja Samkaup, Heimkaup og Orkan hefja samrunaviðræður Stefna á opnun fyrsta skammtíma raforkumarkaðarins á næsta ári Bein útsending frá Nýsköpunarviku Sparisjóður hagnaðist um 205 milljónir króna Starfsfólk fær 150 milljónir í hlutabréfum Magnús eignast Latabæ á nýjan leik Ráðin framkvæmdastjóri Rue de Net Almennt útboð Íslandshótela hefst á morgun Ætlar að gera Grillhúsið að heitasta staðnum í Borgarnesi Landsvirkjun selur í fyrsta skipti í raforkukauphöll Ráðin forstöðukona Nýrra orkukosta Eigendur TGI Fridays kaupa Grillhúsið Freyr ráðinn til Eflingar Tilnefndur sem besti leikur fyrir snjalltæki á Norðurlöndum MAST olli Brúneggjum tjóni en RÚV sýknað Tilboðið afturkallað og Eik öðlast frelsi til athafna á ný Brottfarirnar í apríl nokkuð færri en á síðasta ári Engin hópuppsögn í apríl Fer frá Deloitte til Góðra samskipta Mun stýra tæknisviði Carbfix Íslendingar þurfi að gæta hófs í vexti efnahagslífsins Hagnaðist um tæpa ellefu milljarða þrátt slæman búskap Miklar verðbólguvæntingar halda vöxtunum uppi Gera þrjátíu til fjörutíu kaupsamninga á hverjum degi Áhorf á Eurovision hríðfellur Sjá meira