Á fjórða tug fjár brann inni í miklum eldsvoða í Ásahreppi Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 23. janúar 2023 16:12 Fjörutíu slökkviliðsmenn sinntu verkefninu. Leifur slökkviliðsstjóri þakkar Brunavörnum Árnessýslu kærlega fyrir veitta aðstoð. Bóndi á Syðri-Hömrum í Ásahreppi í Rangárvallasýslu syrgir 35 kindur sem brunnu inni í fjárhúsi í gærkvöldi. Fjölmennt lið slökkviliðs sinnti útkallinu.
Leifur Bjarki Björnsson, slökkviliðsstjóri Rangárvallasýslu, segir í samtali við Vísi að um fjörutíu slökkviliðsmenn hafi komið að eldsvoðanum. „Þetta var mjög erfitt,“ segir Leifur. Mbl.is greindi fyrst frá eldsvoðanum. Guðjón Björnsson, bóndi á Syðri-Hömrum 2, átti 35 kindur sem allar brunnu inni. Hann segir hafa verið ömurlegt að horfa upp á féð og rollurnar verða eldinum að bráð. „Þetta var svakalegur bruni,“ segir Guðjón. Um er að ræða útihúsasamstæðu hjá nágrönnum hans á Syðri-Hömrum. Guðjón segir eiginkonu sína hafa komið á vettvang á undan honum. Þau hafi leigt húsnæði hjá þeim fyrir kindurnar sínar. „Þær brunnu allar inni og rúlluvél frá okkur líka.“ Líkast til einhver straumur á dráttarvél Í útihúsasamstæðunni var að finna frekar nýlegt fjárhús, hlöðu og svo eldra fjárhús þar sem kindur Guðjóns og konu hans var að finna. Guðjón telur líklegast að kviknað hafi í út frá dráttarvél sem var inni í hlöðunni. Einhver straumur hafi líkast til verið á og vírar nuddast saman. Leifur slökkviliðsstjóri vildi ekki tjá sig sérstaklega um eina kenningu frekar en aðra hvað varðaði eldsupptöku. Guðjón segir eiginkonu sína hafa opnað fjárhúsið um leið og hún kom á svæðið. Þá var enn aðeins eldur í hlöðunni sem tengir fjárhúsin. Kindurnar hafi neitað að koma út. Hann vonar að rollurnar hafi liðið út af vegna reykeitrunar áður en eldurinn náði til þeirra. Vísar Guðjón til samtals við slökkviliðsstjórann sem hafi tjáð honum að dýrin séu viðkvæmari en mannfólkið fyrir reyk. „Þau líða út af. Maður vonar að það hafi gerst áður en þær brunnu.“ Guðjón og frú eru með fimmtíu kýr og róbóta á bæ sínum. Þangað barst reykurinn inn í fjós en slökkviliðsmenn náðu að ræsa út reykinn. „Maður hélt að það færi allt,“ segir Guðjón, ósofinn og að reyna að ná áttum eftir eldsvoðann í gærkvöldi. Lítið vatn á svæðinu Leifur slökkviliðsstjóri segir útkallið hafa borist 20:55 og slökkvistarf staðið til klukkan hálf tvö um nóttina. Í framhaldinu hafi lögreglumaður vaktað svæðið og hring um þrjúleytið eftir aðstoð þar sem hann merkti aukningu í reyk. Þá hafi Leifur farið við annan slökkviliðsmann og slökkt í glæðum. Mikill eldsmatur var í húsunum sem útskýrir hvers vegna eldurinn logaði svo glatt þegar slökkvilið mætti á vettvang. Slökkviliðið á Hellu er aðeins í nítján kílómetra fjarlægð frá Syðri-Hömrum. Alls fóru 111 þúsund lítrar í slökkvistarfið. Fara þurfti aftur á Hellu eftir meira vatni en erfitt er að nálgast vatn í nágrenni Syðri-Hamra. Lítið er um brunna og erfitt að sækja vatn í ár. Slökkvilið Brunavarna Árnessýslu aðstoðaði við slökkvistarf og kann Leifur þeim bestu þakkir fyrir. Fréttin hefur verið uppfærð.
Rangárþing ytra Slökkvilið Ásahreppur Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Icelandair flýgur til Færeyja að nýju Innlent Stutt í næsta gos komi til gosloka Innlent „Það er hart sótt að okkar fólki“ Innlent Úrskurðurinn felldur úr gildi Innlent Vilja endurupptöku í máli Weinstein Erlent Háskólanemar halda lautarferð og stofna hreyfingu fyrir Palestínu Innlent Litaðir seðlar til skoðunar og málið á mjög viðkvæmu stigi Innlent Vill hinn almenna launamann á þing Innlent Sinueldur í Munaðarneslandi Innlent Íslensk stjórnvöld haldin „sjúkri undirgefni“ Innlent Fleiri fréttir Icelandair flýgur til Færeyja að nýju Stutt í næsta gos komi til gosloka „Það er hart sótt að okkar fólki“ Nemendur Flóaskóla slá í gegn með Langspilin sín Háskólanemar halda lautarferð og stofna hreyfingu fyrir Palestínu Jarðhræringar á Reykjanesi, flug til Færeyja og verkalýðsdagurinn Úrskurðurinn felldur úr gildi Vill hinn almenna launamann á þing Sinueldur í Munaðarneslandi Íslensk stjórnvöld haldin „sjúkri undirgefni“ Barn á Akureyri greindist með kíghósta Íslensk fjara á lista yfir bestu strendur heims Beint: Hátíðarhöld á verkalýðsdaginn 2024 Sniglar hægja á umferð Yrði gagnkynhneigður maður spurður sömu spurningar? Verkalýðsbaráttan aldrei verið jafn mikilvæg Einkamálefni forsetaframbjóðanda, verkalýðsdagurinn og háskólamótmæli „Hinsegin fólk þekkir vel að vera smættað niður í einkalíf sitt“ Hátíðardagskrá víða um land á verkalýðsdaginn Litaðir seðlar til skoðunar og málið á mjög viðkvæmu stigi Sagðist ætla að nota tíu milljón króna kókaín allt sjálfur Arnór Sighvatsson settur varaseðlabankastjóri fjármálastöðugleika Sér eftir Landsdómsmálinu: „Ég myndi aldrei gera þetta svona aftur“ Íslenskar stjörnur fái peninga að gjöf til að leggja undir í veðmálum Hjólastólinn í „tengdamömmuboxi“ á toppi bílsins Gæti dregið til tíðinda á næstu klukkustundum Fallið frá ráðningarferli og Hermann fylgir Sigurði Inga Allt að fimm milljóna króna sekt á hvern fisk Gamla stjarnan þótti ekki henta nútímakröfum Ekkert eftirlit með veðmálasíðum, landris við Svartsengi og milljónasektir fyrir eldislax Sjá meira