Ekki komið fleiri nýjar íbúðir á markaðinn frá árinu 2007 Eiður Þór Árnason skrifar 3. mars 2021 13:54 Mikið hefur verið byggt á höfuðborgarsvæðinu að undanförnu. Vísir/Vilhelm Mun meira var byggt af nýju húsnæði á síðasta ári en bráðabirgðatölur og spár gerðu ráð fyrir. Tæplega fjögur þúsund fullbúnar íbúðir skiluðu sér á fasteignamarkaðinn í fyrra samkvæmt nýbirtum þjóðhagsreikningum Hagstofu Íslands sem er mesti fjöldi á stöku ári síðan 2007.
Þetta kemur fram í nýrri Hagsjá Landsbankans. Ólíklegt er að mikill skortur sé á húsnæði í ljósi þess að stærð húsnæðisstofnsins miðað við mannfjölda er nú nokkuð yfir meðallagi að sögn hagfræðideildar bankans. „Uppbyggingin núna er áþekk því sem sást á árunum 2005-2008 og er það mat margra greiningaraðila að of mikið hafi verið fjárfest á þeim árum með þeim afleiðingum að offramboð myndaðist á árunum sem á eftir fylgdu. Að því sögðu verður að teljast ólíklegt að skortur sé verulega mikill á húsnæði um þessar mundir, m.a. í ljósi þess að hægt hefur á mannfjöldaaukningu vegna minni fjölgunar aðfluttra umfram brottflutta til landsins.“ Næst mesta uppbyggingarár frá árinu 2007 12% aukning var í íbúðafjárfestingu á fjórða ársfjórðungi 2020. Í nýútgefnum þjóðhagsreikningum voru eldri tölur endurskoðaðar og kom þá í ljós að samdrátturinn fyrr á árinu var minni en áður birtar tölur gáfu til kynna. Það sem áður var talinn vera samdráttur upp á 7% milli ára á þriðja ársfjórðungi breyttist í 1% aukningu og 19% samdráttur á öðrum ársfjórðungi breyttist í 12% samdrátt. Svo virðist sem tímatafir í gagnaskilum opinberra aðila hafi þar haft áhrif að sögn hagfræðideildar Landsbankans. Í október spáði bankinn því að 16% samdráttur hafi orðið í íbúðafjárfestingu á síðasta ári þegar vísbendingar voru uppi um að farið væri að hægja á íbúðauppyggingu.„Nú kemur í ljós að íbúðafjárfesting dróst aðeins saman um 1% milli ára og var því svipuð að umfangi og árið 2019 sem var mesta ár uppbyggingar síðan 2007.“ Þó tölur Hagstofunnar sýni að ekki hafi fleiri fullbúnar íbúðir skilað sér á markað á einu ári frá 2007 mælist samdráttur í fjölda íbúða sem eru á fyrri byggingastigum. Því gerir hagfræðideild Landsbankans ráð fyrir áframhaldandi sveiflum í fjölgun nýrra íbúða á næstu árum.
Fasteignamarkaður Húsnæðismál Efnahagsmál Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Matvöruverslun og íbúðir steinsnar frá Keflavíkurflugvelli Viðskipti innlent Mun bjóða upp á sömu flugáætlun og Bláfugl áður Viðskipti innlent Krökkunum finnst hálf hallærislegt að mamman kunni Friends þættina utan að Atvinnulíf Þarf að greiða kortareikninginn og meira til í málskostnað Neytendur Dýrmætustu og sjaldgæfustu Mustang bílar landsins á afmælissýningu Mustang Samstarf Krónísk óstundvísi: Skýringar og góð ráð Atvinnulíf Stofnandi Binance dæmdur fyrir peningaþvætti Viðskipti erlent Viljinn tekinn til gjaldþrotaskipta Viðskipti innlent Tekjur Apple drógust saman enn eina ferðina Viðskipti erlent Röntgen Domus og Orkuhúsið fá ekki að sameinast Viðskipti innlent Fleiri fréttir Matvöruverslun og íbúðir steinsnar frá Keflavíkurflugvelli Röntgen Domus og Orkuhúsið fá ekki að sameinast Viljinn tekinn til gjaldþrotaskipta Spá því að stýrivextir haldist óbreyttir Bein útsending: Ársfundur SFS – Best í heimi? Mun bjóða upp á sömu flugáætlun og Bláfugl áður Grindvíkingar borgi allt að þriðjungi hærri leigu en aðrir Guðný og Sigurður Helgi til SI Tekur við stöðu sviðsstjóra Netöryggismiðstöðvar Íslands Hagnaður Íslandsbanka 5,4 milljarðar á fyrsta fjórðungi Arnar Már nýr aðstoðarforstjóri Vinnunetföng algeng leið fyrir hakkara til að brjótast inn í íslensk fyrirtæki Sjö vilja taka við af Gunnari Hagnaður Landsbankans nam 7,2 milljörðum á fyrstu þremur mánuðum ársins Frumkvöðlar koma saman í Kolaportinu Hefja sölu á íbúðum á Orkureitnum Bein útsending: Stærri styrktækifæri í mannvirkjaiðnaði Lokar Önnu Jónu og segir það mikinn létti Hagnaður Arion dróst saman um tvo milljarða Hefja úthlutun lóða í Vatnsendahvarfi Ráðherra bað um tíu milljarða króna í viðbót í arð Bein útsending: Eftirfylgni við Stöðugleikasamninginn Landa stórum sölusamningi Reginn afturkallar samrunatilkynningu við Eik Vextir verði ekki lækkaðir fyrr en í haust Hafa tryggt útgáfu íslenska tölvuleiksins Island of Winds Verðbólgan úr sex prósentum í ár í 3,5 prósent árið 2026 Vilja gera tilraunir með orkuframleiðslu í geimnum á Íslandi Reksturinn þungur í kjölfar „yfirgangs og afskipta lögreglu“ Fjármálastjóri Play segir upp Sjá meira