Miðlunartillagan stenst að mati forsætisráðherra Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir og Sunna Sæmundsdóttir skrifa 31. janúar 2023 12:33 Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra segist bera fullt traust til ríkissáttasemjara. Vísir/Arnar Forsætisráðherra metur það svo að miðlunartillaga ríkissáttasemjara í kjaradeilu Eflingar og Samtaka atvinnulífsins standist. Hún segist bera fullt traust til ríkissáttasemjara, þrátt fyrir að hann hafi verið harðlega gagnrýndur fyrir að vilja leggja miðlunartillögu sína í atkvæðagreiðslu.
Þetta sagði Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra að loknum ríkisstjórnarfundi rétt eftir hádegi. Ljóst sé að deilan milli Eflingar og SA og Eflingar og sáttasemjara sé í hörðum hnút. „Það hefur legið fyrir töluvert lengi að þessi deila er í töluvert hörðum hnút. Þessi verkfallsboðun staðfestir þann hnút,“ segir Katrín en verkfallsboðun Eflingar á Íslandshótelum var samþykkt af félagsfólki í gær og boðað hefur verið til frekari verkfalla. „Það eru engar gleðifregnir því auðvitað er æskilegast að aðilar geti náð saman um einhverjar lausnir eins og hefur gengið annars staðar á vinnumarkaði. Þetta er staðan, hún er mjög þung,“ segir Katrín. Hún beri fullt traust til Aðalsteins Leifssonar ríkissáttasemjara. „Það geri ég. Það liggur fyrir að þessi miðlunartillaga hefur verið lögð fram. Ég er ekki til þess fallin að meta nákvæmlega lögmæti hennar en eins og málið horfir fyrir mér og þeim sérfræðingum sem ég hef ráðfært mig við þá stenst hún skoðun. Nú verður að koma í ljós hvað kemur út úr öllum þessum kærumálum,“ segir Katrín. Hlusta má á viðtalið við Katrínu í spilaranum að neðan.
Kjaraviðræður 2022-23 Kjaramál Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur Tengdar fréttir Boða fleiri verkföll á hótelum, í vörubílaakstri og olíudreifingu Samninganefnd Eflingar hefur boðað til fleiri verkfalla, sem taka til hótelkeðjanna Berjaya Hotels, hótelsins The Reykjavík Edition, til þeirra sem starfa við vörubílaakstur og olíudreifingu. Atkvæðagreiðsla meðal félagsfólks sem boðanirnar taka til verða auglýstar á vef Eflingar fyrir hádegi í dag. Aftur er um að ræða ótímabundna vinnustöðvun sem mun hefjast klukkan tólf á hádegi 15. febrúar. 31. janúar 2023 11:13 Aðalsteinn frændi ekki hátt skrifaður hjá Sólveigu Önnu Oft er sagt að Ísland sé lítið og þar þekkist allir. Fyrir vikið sé frændhygli mikil á landinu kalda þar sem skyldmenni hjálpist að. Það virðist þó ekki vera tilfellið þegar kjaradeila Eflingar við Samtök atvinnulífsins er annars vegar. Þar takast skyldmenni á. 31. janúar 2023 10:26 SA stefna Eflingu fyrir Félagsdóm Samtök atvinnulífsins ætla að höfða mál fyrir Félagsdómi gegn Eflingu eftir að úrslit atkvæðagreiðslunnar á Íslandshótelum urðu ljós í gærkvöldi. 31. janúar 2023 08:10 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Ók blindfullur við Grímsvötn og hótaði að drepa alla Innlent Langt í að þeir nái sér að fullu Innlent Vopnuð rán tíðari en fólk gerir sér grein fyrir Innlent Óttast að saga slökkviliða á Íslandi glatist Innlent Tveir látnir eftir að bíll hafnaði í sjónum við Stokkhólm Erlent Á ofsahraða undir áhrifum fíkniefna Innlent Karlremba sé komin í tísku Innlent Fengu aðstoð sérsveitar og Gæslunnar við handtöku við Grímsvötn Innlent Arnar Þór vantaði sex meðmæli upp á Innlent Efnahagsstefnan sé að ýta fólki í verðtryggð lán Innlent Fleiri fréttir Vopnuð rán tíðari en fólk gerir sér grein fyrir Óttast að saga slökkviliða á Íslandi glatist Plokkdagurinn mikli haldinn hátíðlegur um land allt Á ofsahraða undir áhrifum fíkniefna Efnahagsstefnan sé að ýta fólki í verðtryggð lán Ók blindfullur við Grímsvötn og hótaði að drepa alla Langt í að þeir nái sér að fullu Lögregla með eftirför í Vogahverfi Íslandsferðin sem breyttist í martröð Fundu hræ fimm hvolpa í Mosfellsbæ Fengu aðstoð sérsveitar og Gæslunnar við handtöku við Grímsvötn Sigurvin dró smábát í land Vill að fréttastofa RÚV biðji Maríu Sigrúnu afsökunar Lögreglan lofar góðu vegaeftirliti á Suðurlandi í sumar Landskjörsstjórn tilkynnir á morgun hvaða listar eru gildir Mögulega að hægjast á landrisi í Svartsengi Karlremba sé komin í tísku Voru með stæla og neituðu að fara upp úr fyrr en löggan mætti Arnar Þór vantaði sex meðmæli upp á Sprengisandur: Peningastefna, ESB og lagareldi Lögregla kölluð út vegna ungmenna til leiðinda í sundlaug Svakalegt að sjá fylgisaukningu Höllu Hrundar Minni lyfjanotkun og meiri vellíðan í sérstöku heilabilunarþorpi Mennirnir tóku annan starfsmannanna hálstaki Líklegt að það styttist í brotmörk Helga lenti einnig í vandræðum Eiríkur og Ástþór fá frest til að bæta við undirskriftum Hættuástand í Grindavík og æsispennandi forsetakosningar Gefur lítið fyrir útskýringar fréttastjórans Handteknir á hlaupum eftir vopnað rán í Reykjavíkurapóteki Sjá meira
Boða fleiri verkföll á hótelum, í vörubílaakstri og olíudreifingu Samninganefnd Eflingar hefur boðað til fleiri verkfalla, sem taka til hótelkeðjanna Berjaya Hotels, hótelsins The Reykjavík Edition, til þeirra sem starfa við vörubílaakstur og olíudreifingu. Atkvæðagreiðsla meðal félagsfólks sem boðanirnar taka til verða auglýstar á vef Eflingar fyrir hádegi í dag. Aftur er um að ræða ótímabundna vinnustöðvun sem mun hefjast klukkan tólf á hádegi 15. febrúar. 31. janúar 2023 11:13
Aðalsteinn frændi ekki hátt skrifaður hjá Sólveigu Önnu Oft er sagt að Ísland sé lítið og þar þekkist allir. Fyrir vikið sé frændhygli mikil á landinu kalda þar sem skyldmenni hjálpist að. Það virðist þó ekki vera tilfellið þegar kjaradeila Eflingar við Samtök atvinnulífsins er annars vegar. Þar takast skyldmenni á. 31. janúar 2023 10:26
SA stefna Eflingu fyrir Félagsdóm Samtök atvinnulífsins ætla að höfða mál fyrir Félagsdómi gegn Eflingu eftir að úrslit atkvæðagreiðslunnar á Íslandshótelum urðu ljós í gærkvöldi. 31. janúar 2023 08:10