Litakóðunarkerfi á landamærum frá og með 1. maí Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 15. janúar 2021 12:34 Katrín Jakobsdóttir segir að þau sóttvarnarbrot sem tilkynnt hafi verið um séu stór hluti ástæðu þess að ákveðið hefur verið að gera tvöfalda skimun að skyldu við komu til landsins. Vísir/Vilhelm Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra segir að frá og með 1. maí verði tekið upp litakóðunarkerfi á landamærum. Áfram verði tvöföld skimun á landamærum fyrir rauð lönd en einstaklingar sem koma frá grænum og appelsínugulum löndum verður boðið upp á að mæta með neikvætt PCR próf og fara svo í staka skimun á landamærum.
Katrín ræddi þessar breytingar í viðtali við fréttastofu fyrir utan Ráðherrabústaðinn í Tjarnargötu í hádeginu. Óhætt er að segja að landamærin hafi verið fyrirferðamikil á fundinum. „Við vorum í fyrsta lagi að taka þá ákvörðun að við munum í dag kynna það fyrirkomulag sem tekur gildi á landamærum 1. febrúar. Niðurstaða okkar sem byggir á mikilli vinnu og skoðun á gögnum er að framlengja óbreytt fyrirkomulag með tvöfaldri skimun á landamærum með fimm daga sóttkví á milli að framlengja það til 1. maí,“ segir Katrín. „Ennfremur kynnti heilbrigðisráðherra þá ákvörðun sína að tvöföld skimun á landamærum og það verði ekki valkostur. Hún byggir það á þeim brotum sem við höfum séð á sóttkví.“ Ráðherra hafði áður í tvígang hafnað tillögu Þórólfs Guðnasonar sóttvarnalæknis um að tvöföld skimun yrði gerð að skyldu. „Við höfum auðvitað verið að hrofa til þess að vilja beita meðalhófi sem er eðlilegt fyrirkomulag hjá stjórnvöldum. Það sem við höfum gert er að við höfum smám saman verið að herða. Við höfum nýlega ákveðið að börn skuli líka vera í sóttkví á milli skimana. við höfum ennfremur tekið þá ákvörðun að gera þessa skimun gjaldfrjálsa til að hvetja fleiri til að fara í hana. En í raun og veru, í ljósi þeirra brota sem hefur verið tilkynnt um, teljum við réttnæmt að taka þennan valkost út og gera þetta að skyldu.“ Að neðan má sjá tilkynninguna frá stjórnarráðinu vegna breytinganna. Fyrirkomulagið frá 1. maí Þann 1. maí nk. verða tekin varfærin skref til afléttingar sóttvarnaraðgerða á landamærum sem taka munu mið af ástandi faraldursins á brottfararstað komufarþega. Þetta var ákveðið á fundi ríkisstjórnarinnar í morgun. Frá og með 1. maí verður byggt á reglulega uppfærðu áhættumati Sóttvarnarstofnunar Evrópu og ríki flokkuð í græn, appelsínugul, rauð og grá eftir stöðu faraldursins. Í ljósi landfræðilegrar sérstöðu Íslands og annarra sóttvarnasjónarmiða verður harðari sóttvarnaraðgerðum hins vegar beitt fyrir hvern áhættuflokk en þeim sem lögð eru til í tilmælum Evrópusambandsins, að minnsta kosti fyrst um sinn. Farþegar frá hættuminni löndum verða undanþegnir sóttkví og síðari skimun geti þeir framvísað vottorði um neikvæða niðurstöðu PCR-prófs innan tiltekins tíma. Komufarþegar sem geta framvísað gildu vottorði sem sýnir fram á að COVID-19 sýking sé afstaðin verða áfram undanþegnir sóttvarnaaðgerðum á landamærum og það sama mun gilda um komufarþega sem geta framvísað gildu bólusetningarvottorði. Svona verður fyrirkomulagið. Við skilgreiningu í áhættuflokka verður notast við sömu viðmið og lagt er til í samræmdum tilmælum Evrópusambandsins: 14 daga nýgengi smita á hverja 100.000 íbúa Hlutfall jákvæðra sýna af heildarfjölda tekinna sýna undanfarna viku Sýnatökuhlutfall, þ.e. fjölda sýna sem tekin eru á hverja 100.000 íbúa undanfarna viku Viðmið litakóðunarkerfisins eru þannig: Grænn litur þýðir að nýgengi smita er undir 25 (m.v. 100.000 íbúa) og hlutfall jákvæðra sýna er undir 4% Appelsínugulur litur þýðir að nýgengi er undir 50 en hlutfall jákvæðra sýna er 4% eða meira eða nýgengi er 25-250 og hlutfall jákvæðra sýna er undir 4% Rauður litur á við í öðrum tilvikum Grár litur þýðir að ekki liggja nægilegar upplýsingar fyrir eða tekin eru færri sýni en 300 á hverja 100.000 íbúa á viku Þær sóttvarnareglur sem gilda munu fyrir ólíka áhættuflokka eru eftirfarandi: Með því að greina svo snemma frá fyrirkomulagi sóttvarnaráðstafana á landamærum sem stefnt er að í vor er framkvæmdar- og söluaðilum gert kleift að undirbúa breytingar vel. Áhættumat litakóðunarkerfis tekur mið af óvissu um þróun faraldurs og gerir meiri fyrirsjáanleika mögulegan. Við undirbúning ákvörðunar um fyrirkomulag á landamærum var horft til vinnu efnahagshóps fjármála- og efnahagsráðherra, vottorðahóps heilbrigðisráðuneytis, tölfræðiteymis Háskóla Íslands um áhrif sóttvarna á landamærum, samræmdra tilmæla ESB um ferðalög, leiðbeininga sem Sóttvarnastofnun Evrópu gaf út samhliða ferðatilmælum ESB, upplýsinga um bóluefni og bólusetningar frá heilbrigðisráðuneytinu og þeirrar reynslu og tölfræðilegu innsýnar sem skimanir á íslenskum landamærum hafa veitt síðustu mánuði.
Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Keflavíkurflugvöllur Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Litaðir seðlar til skoðunar og málið á mjög viðkvæmu stigi Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Sagðist ætla að nota tíu milljón króna kókaín allt sjálfur Innlent Sér eftir Landsdómsmálinu: „Ég myndi aldrei gera þetta svona aftur“ Innlent Íslenskar stjörnur fái peninga að gjöf til að leggja undir í veðmálum Innlent Gæti dregið til tíðinda á næstu klukkustundum Innlent Hjólastólinn í „tengdamömmuboxi“ á toppi bílsins Innlent Hátíðardagskrá víða um land á verkalýðsdaginn Innlent „Hinsegin fólk þekkir vel að vera smættað niður í einkalíf sitt“ Innlent Rúður skotnar í spað í verslun innflytjenda Innlent Fleiri fréttir „Hinsegin fólk þekkir vel að vera smættað niður í einkalíf sitt“ Hátíðardagskrá víða um land á verkalýðsdaginn Litaðir seðlar til skoðunar og málið á mjög viðkvæmu stigi Sagðist ætla að nota tíu milljón króna kókaín allt sjálfur Arnór Sighvatsson settur varaseðlabankastjóri fjármálastöðugleika Sér eftir Landsdómsmálinu: „Ég myndi aldrei gera þetta svona aftur“ Íslenskar stjörnur fái peninga að gjöf til að leggja undir í veðmálum Hjólastólinn í „tengdamömmuboxi“ á toppi bílsins Gæti dregið til tíðinda á næstu klukkustundum Fallið frá ráðningarferli og Hermann fylgir Sigurði Inga Allt að fimm milljóna króna sekt á hvern fisk Gamla stjarnan þótti ekki henta nútímakröfum Ekkert eftirlit með veðmálasíðum, landris við Svartsengi og milljónasektir fyrir eldislax Facebook-hakkið hafi ekki áhrif á rannsóknina Hver er Kári Hansen? Nokkurra bíla árekstur á Miklubraut Hafa áhyggjur af fylgistapi flokksins Umferðartafir vegna elds í tengivagni Heimta hundrað milljóna króna tryggingu Engin merki um að kvikuhlaup sé hafið eða að hefjast Gæsluvarðhald beggja framlengt Rúður skotnar í spað í verslun innflytjenda Leggja til kröfu um sólarsellur á þaki nýbygginga Úrskurðaður í síbrotagæslu eftir ofsaaksturinn Svona var Pallborðið með Helgu Þóris og Eiríki Inga Birna sett sýslumaður á Vesturlandi Segir ekkert „dramatískt“ að frétta af eldgosinu Umdeildu frumvarpi um lagareldi breytt Matvælaráðherra segir fiskeldisfrumvarp mikla bragarbót fyrir umhverfið Quang Le hakkaður á Facebook Sjá meira