Cluj vann í kvöld 1:0-heimasigur á Dinamo Búkarest í rúmensku 1. deildinni í fótbolta. Cluj þurfti að hafa fyrir sigrinum, þrátt fyrir að vera tveimur fleiri allan seinni hálfleikinn og rúmlega það.
Paul Anton og Florin Bejan fengu báðir gult spjald á fyrsta kortérinu hjá Dinamo og á 37. mínútu voru þeir báðir búnir að fá sitt annað gula spjald og þar með rautt. Sigurmark Cluj kom loks á 80. mínútu en það gerði Billel Omrani.
Rúnar Már Sigurjónsson byrjaði á varamannabekk Cluj en kom inn á sem varamaður á 66. mínútu. Cluj er í 2. sæti deildarinnar, einu stigi á eftir FCSB sem vermir toppsætið.