„Þessar aðgerðir leggjast bara mjög illa í okkur“ Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar 24. júlí 2021 13:30 Arnar Þór Gíslason er allt annað en ánægður með nýjar sóttvarnareglur sem kynntar voru í gær og gilda til 13. ágúst næstkomandi. Vísir Fjármála- og efnahagsráðherra telur enn ótímabært að segja að efnahagslegt bakslag muni hljótast af nýjum sóttvarnaaðgerðum. Veitingamenn og kráareigendur eru ósáttir að gripið hafi verið til nýrra aðgerða. Það sé mikið högg fyrir reksturinn. „
Við skulum nú sjá hvað gerist í efnahagsmálunum, það er kannski ótímabært að segja að við séum í einhverju bakslagi sem muni hafa þar áhrif.“ Þetta sagði Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, að loknum ríkisstjórnarfundi í gær. Hljóðið er þungt í veitingamönnum og kráareigendum en Bjarni minnir á að stuðningsaðgerðir við rekstraraðila séu enn í gildi. „Ég held að það sé bara mikilvægt að muna að við erum með í gildi ráðstafanir. Þær eru enn í gildi og grípa þessi tilvik að mínu mati,“ sagði Bjarni. Aðgerðirnar komi bar- og kráareigendum aftur á byrjunarreit Arnar Þór Gíslason, eigandi skemmtistaða í miðborg Reykjavíkur, segir aðgerðirnar mikið högg fyrir reksturinn. „Þessar aðgerðir leggjast bara mjög illa í okkur bar- og kráareigendur þar sem þetta kemur okkur næstum á aftur á byrjunarreit frá því áður en lokaði,“ segir Arnar. Hundrað manna samkomutakmark er í gildi á veitinga- og skemmtistöðum og opnunartími hefur verið styttur til klukkan ellefu en allir gestir þurfa að vera komnir út fyrir miðnætti. Þá þarf að þjóna öllum gestum til borðs og einn metri að vera á milli geta. „Þetta setur okkur í rosalega vonda stöðu, það er bara eins og við höfum ekki farið í gegn um neinar bólusetningar eða neitt. Þetta kemur mjög flatt upp á okkur. Við erum mjög ósáttir,“ segir Arnar. „Það var mjög dapurt hjá okkur í gær“ Hann segir stöðuna eins og í miðjum faraldrinum, áður en bólusetningar hófust. „Maður hefur heyrt það meira að segja frá heilbrigðisstarfsfólki að það er mjög hissa á þessu þar sem það var búist við að fólk myndi sýkjast eftir bólusetningu en engin alvarleg veikindi myndu koma. Þess vegna skiljum við ekki þessar hörðu aðgerðir á okkur. Engan vegin.“ Hann segir stöðuna mikil vonbrigði. „Mjög mikil vonbrigði en við vonum bara að þau átti sig fljótlega á því að smitum fari fækkandi og það verði engin alvarleg veikindi. En þau vissu það alveg þegar bólusetningar fóru af stað að fólk myndi sýkjast af þessu, það myndi bara ekki sýna alvarleg einkenni,“ segir Arnar. Hann segist þegar farinn að finna fyrir takmörkunum. Stemningin í miðbænum í gærkvöld og í nótt hafi verið mjög þung. „Stemningin var þannig að það dró verulega úr öllu upp úr miðnætti þar sem ég held að meginþorri þjóðarinnar hafi haldið að reglurnar ættu að taka gildi í gær, á miðnætti. Þannig að þetta var bara mjög dapurt hjá okkur í gær. Ég vona bara að fólk taki aðeins við sér, mæti aðeins fyrr og hafi gaman og styðji okkur bar- og kráareigendur,“ segir Arnar Þór.
Veitingastaðir Næturlíf Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Samkomubann á Íslandi Tengdar fréttir Skipuleggjendur bregðast við hertum aðgerðum með ólíkum hætti Skipuleggjendur hátíða og annarrar dagskrár sem átti að vera nú um helgina eða á næstunni hafa brugðist við hertum samkomutakmörkunum á mismunandi hátt. 23. júlí 2021 21:59 Tvö hundruð mega koma saman og eins metra fjarlægðarregla Nýjar samkomutakmarkanir taka gildi á miðnætti annað kvöld. 200 manns mega koma saman og eins metra fjarlægðarmörk verða í gildi. Hertar aðgerðir gilda til 13. ágúst. 23. júlí 2021 19:05 „Ekki búið að afbóka nokkurn einasta mann“ Formaður þjóðhátíðarnefndar segir skipuleggjendur nú bíða eftir því að ríkisstjórnin ákveði hvort, og þá hvernig, innanlandstakmarkanir verði settar á vegna kórónuveirunnar. Orðrómur þess efnis að tækniþjónusta hafi verið afbókuð á hátíðinni sé úr lausu lofti gripinn. 22. júlí 2021 21:37 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum Viðskipti innlent Áhorf á Eurovision hríðfellur Viðskipti innlent Davíð Tómas ráðinn framkvæmdastjóri Viðskipti innlent Ópíóíða, róandi- og svefnlyf: „Það geta allir orðið háðir þessum lyfjum ómeðvitað“ Atvinnulíf Ballið búið fyrir fullt og allt á B5 Viðskipti innlent Rekstrarafkoma Sýnar ekki ásættanleg Viðskipti innlent „Fólk heldur kannski að það sé saklaust að kaupa eina falsaða tösku“ Atvinnulíf Einar hættir með Grillbúðina Viðskipti innlent Kaupa Íslensk verðbréf Viðskipti innlent Kynning á yfirlýsingu peningastefnunefndar Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hagnaðist um tæpa ellefu milljarða þrátt slæman búskap Miklar verðbólguvæntingar halda vöxtunum uppi Gera þrjátíu til fjörutíu kaupsamninga á hverjum degi Áhorf á Eurovision hríðfellur Aukið atvinnuleysi Kynning á yfirlýsingu peningastefnunefndar Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum Ráðin aðstoðarforstjóri og fjármálastjóri Sidekick Kaupa Íslensk verðbréf Rekstrarafkoma Sýnar ekki ásættanleg Einar hættir með Grillbúðina Hætta skerðingum til stórnotenda Davíð Tómas ráðinn framkvæmdastjóri Farþegum fjölgaði og sætanýting um 85 prósent Ráðin forstöðumaður hjá OK Snýr aftur til Snjallgagna Ballið búið fyrir fullt og allt á B5 Yfir milljón farþegar fyrstu fjóra mánuði ársins Háttsemi dómara ekki saknæm og Isavia fær því enga milljarða Mímir nýr forstöðumaður hjá Högum Matvöruverslun og íbúðir steinsnar frá Keflavíkurflugvelli Röntgen Domus og Orkuhúsið fá ekki að sameinast Viljinn tekinn til gjaldþrotaskipta Spá því að stýrivextir haldist óbreyttir Bein útsending: Ársfundur SFS – Best í heimi? Mun bjóða upp á sömu flugáætlun og Bláfugl áður Grindvíkingar borgi allt að þriðjungi hærri leigu en aðrir Guðný og Sigurður Helgi til SI Tekur við stöðu sviðsstjóra Netöryggismiðstöðvar Íslands Hagnaður Íslandsbanka 5,4 milljarðar á fyrsta fjórðungi Sjá meira
Skipuleggjendur bregðast við hertum aðgerðum með ólíkum hætti Skipuleggjendur hátíða og annarrar dagskrár sem átti að vera nú um helgina eða á næstunni hafa brugðist við hertum samkomutakmörkunum á mismunandi hátt. 23. júlí 2021 21:59
Tvö hundruð mega koma saman og eins metra fjarlægðarregla Nýjar samkomutakmarkanir taka gildi á miðnætti annað kvöld. 200 manns mega koma saman og eins metra fjarlægðarmörk verða í gildi. Hertar aðgerðir gilda til 13. ágúst. 23. júlí 2021 19:05
„Ekki búið að afbóka nokkurn einasta mann“ Formaður þjóðhátíðarnefndar segir skipuleggjendur nú bíða eftir því að ríkisstjórnin ákveði hvort, og þá hvernig, innanlandstakmarkanir verði settar á vegna kórónuveirunnar. Orðrómur þess efnis að tækniþjónusta hafi verið afbókuð á hátíðinni sé úr lausu lofti gripinn. 22. júlí 2021 21:37