Fékk kökk í hálsinn yfir „bestu auglýsingunni“: Trúverðugt að Katrín sé komin í þvottahúsið Snorri Másson skrifar 21. september 2021 17:38 Andrés Jónsson almannatengill, Svanhildur Hólm Valsdóttir, framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs og þar til fyrir skemmstu aðstoðarmaður fjármálaráðherra, og Máni Pétursson fjölmiðlamaður, gestir Pallborðsins á Vísi í dag. Vísir Álitsgjafar Pallborðsins voru á einu máli um ágæti sjónvarpsauglýsingar Vinstri grænna, þar sem daglegt líf frambjóðenda flokksins er í forgrunni við tilfinningaþrungið undirspil íslenskrar tónlistar.
Bæði Svanhildur Hólm Valsdóttir, framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs, og Andrés Jónsson almannatengill sögðu auglýsingu VG áhrifamesta útspil stjórnmálaflokks í kosningabaráttunni hingað til. Farið var yfir frammistöðu hvers og eins flokks í Pallborðinu á Vísi í dag: Andrés sagði borðleggjandi að auglýsing þar sem fjölbreyttir Íslendingar væru sýndir gera alls kyns hluti sem fólki þykir vænt um næði til fólks. Ekkert væri óeðlilegt við að Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra væri sýnd í þvottahúsinu. „Það er trúverðugt. Hún býr í þessari blokk og það er þvottahús í kjallaranum. Sumir eru með þvottahús líka upp á hæðinni. Ég veit ekki hvort hún sé með þvottavél uppi á hæðinni líka. En hún er líka sýnd vera að stýra fundi þar sem hún er að tala um styrki til nýsköpunar. Hún er sýnd í ólíkum hlutverkum og við viljum bara svona venjulega konu sem er eins og ég og þú,“ sagði Andrés. Auglýsingin, þar sem yfirskriftin er að það skipti máli hver stjórni, var framleidd af TVIST. Haukur Björgvinsson leikstýrði auglýsingunni. Kvikmyndatakan var í höndum Skot og Hákon Sverrisson hafði umsjón með henni. „Ég held að þetta sé ein besta kosningaauglýsing sem ég hef séð, af því að hún snertir svona hjartastrengi. Þetta er listin að segja hlutina án orða. Þau eru með eitthvað landslið þarna í tónlist til að spila undir og spila á tilfinningar og þetta er rosalega vel gerð auglýsing. Ég er til dæmis ekkert rosalega grátgjörn manneskja en ég var alveg komin með kökk í hálsinn,“ segir Svanhildur. Máni Pétursson fjölmiðlamaður var á öðru máli um besta kosningaútspilið, sem hann sagði vera mynd Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar með hrátt hakk. Svanhildur tók undir að þar væri Sigmundur sannarlega í karakter. Álitsgjafarnir lýstu að lokum mestri ánægju með Flokk fólksins þegar kosningabaráttan er skoðuð í heild, en sá flokkur þótti hafa rekið best skipulögðu herferðina á samfélagsmiðlum. Umrædd auglýsing Vinstri grænna:
Alþingiskosningar 2021 Pallborðið Samfélagsmiðlar Auglýsinga- og markaðsmál Vinstri græn Miðflokkurinn Píratar Samfylkingin Sjálfstæðisflokkurinn Framsóknarflokkurinn Sósíalistaflokkurinn Viðreisn Flokkur fólksins Frjálslyndi lýðræðisflokkurinn Tengdar fréttir Hölluðust að því að Flokkur fólksins væri sigurvegari kosningabaráttunnar Í Pallborðinu í dag var punktstaðan tekin í kosningabaráttunni, spáð í spilin fyrir næstu daga og um leið litið um öxl og farið yfir frammistöðu hvers flokks fyrir sig hingað til. 21. september 2021 13:26 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið „Það er enginn sem verndar son okkar“ Innlent Sveddi sagður með tengsl við ítölsku mafíuna Innlent Krefjast skýringa á brotthvarfi Maríu Sigrúnar Innlent Tíu kílómetrar eftir af hundrað: Gangan miklu erfiðari en hann óraði fyrir Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Fylgi Höllu Hrundar ekki fast í hendi Innlent Halla Hrund mælist með mest fylgi allra frambjóðenda Innlent Landsréttur komi fram við ákæruvaldið eins og lítið barn Innlent „Ef ég get flogið þremur gerðum af þyrlum þá get ég tekið ákvörðun fyrir þjóðina“ Innlent Mótmælendur fengu óvæntan liðstyrk frá Hollywood Innlent Fleiri fréttir Ný gossprunga geti opnast fyrirvaralaust á næstunni Allt að gerast í Vík í Mýrdal um helgina Stór gossprunga gæti opnast fyrirvaralaust Fylgi Höllu Hrundar ekki fast í hendi Tíu kílómetrar eftir af hundrað: Gangan miklu erfiðari en hann óraði fyrir 800 milljóna króna hreinsistöð byggð á Selfossi Sveddi sagður með tengsl við ítölsku mafíuna Vara við því að fara gangandi að gosinu Kastaði glerflösku í höfuð manns og gisti í fangaklefa „Það er enginn sem verndar son okkar“ Krefjast skýringa á brotthvarfi Maríu Sigrúnar Veisluhöld forseta séu barns síns tíma Húsráðendum tókst að ráða niðurlögum elds í þakskyggni Landsréttur komi fram við ákæruvaldið eins og lítið barn Mannasættir sem óttist ekki að standa í fæturnar Mótmælendur fengu óvæntan liðstyrk frá Hollywood Ráðherra reiðubúin að vinna með atvinnuveganefnd að breytingum Vill skipa í ríkissjórn eftir eigin höfði Halla Hrund mælist með mest fylgi allra frambjóðenda Mikil tíðindi í glænýrri könnun Ástþór sannfærður um að verða sjöundi forsetinn Refsing fyrir að nauðga stjúpdóttur æskuvinar þyngd Ætlar í aðra undirskriftasöfnun Hjúkrunarfræðingurinn ekki laus allra mála enn Trúnaðarsamtöl við forsætisráðherra lykilatriði Sprakk úr hlátri „Ísdrottningin myndi bráðna ef hér kæmi kjarnorkusprengja“ Með hundruð sjálfboðaliða í liði sínu Samskiptaleysi meðal lögreglumanna olli því að fólk var sektað Verði ekki meðvirk frekar en Ólafur Ragnar Sjá meira
Hölluðust að því að Flokkur fólksins væri sigurvegari kosningabaráttunnar Í Pallborðinu í dag var punktstaðan tekin í kosningabaráttunni, spáð í spilin fyrir næstu daga og um leið litið um öxl og farið yfir frammistöðu hvers flokks fyrir sig hingað til. 21. september 2021 13:26