Enn hægt að fá miða á alla leiki Íslands á EM

Íslenska kvennalandsliðið í knattspyrnu hefur brátt leik á sínu fimmta …
Íslenska kvennalandsliðið í knattspyrnu hefur brátt leik á sínu fimmta Evrópumóti í sögunni. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Knattspyrnusamband Íslands, KSÍ, hefur tilkynnt að það sé með miða til sölu á alla þrjá leiki íslenska kvennalandsliðsins í riðlakeppni EM 2022, sem hefst á Englandi í næsta mánuði.

Miðarnir sem um ræðir eru á alla þrjá leiki Íslands í D-riðlinum sem hafa losnað af ýmsum ástæðum í lokaundirbúningi og skipulagi mótsins og leikjanna.

Áhugasamir aðilar eru hvattir til að hafa samband sem fyrst við KSÍ í gegnum midasala@ksi.is og tryggja sér miða.

Leikir Íslands í riðlakeppninni:

Belgía - Ísland sunnudaginn 10. júlí á Manchester City Academy Stadium

Ítalía - Ísland fimmtudaginn 14. júlí á Manchester City Academy Stadium

Ísland - Frakkland 18. júlí á New York Stadium í Rotherham

mbl.is

LEIKIR Í DAG - 2. MAÍ

Útsláttarkeppnin

LEIKIR Í DAG - 2. MAÍ

Útsláttarkeppnin