Reiknað með að fjölmiðlafrumvarpið verði að lögum á vorþingi Heimir Már Pétursson skrifar 11. maí 2021 11:43 Fjölmiðlafrumvarp Lilju Alfreðsdóttur menntamálaráðherra hefur átt erfitt uppdráttar á kjörtímabilinu vegna ólíkra sjónarmiða stjórnarflokkanna. Vísir/Vilhelm Formaður allsherjar- og menntamálanefndar Alþingis telur að samstaða náist um afgreiðslu fjölmiðlafrumvarps menntamálaráðherra sem tekið var af dagskrá þingfundar í gær. Hann reikni með að frumvarpið verði að lögum á yfirstandandi þingi en álitaefni séu um gildistíma þess.
Frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menntamálaráðherra um stuðning við einkarekna fjölmiðla hefur átt töluvert erfitt uppdráttar á Alþingi frá því það var fyrst lagt fram á kjörtímabilinu. Í fyrra var síðan ákveðið að styrkja einkarekna fjölmiðla sérstaklega vegna covid faraldursins og var þá tekið mið af frumvarpinu hvað heildarupphæð varðaði eða 400 miljlónir króna. Frumvarpið var afgreitt út úr allsherjar- og menntamálanefnd til annarrar umræðu með nefndarálitum bæði meiri- og minnihluta í gær og var á dagskrá þingfundar í gær en var síðan tekið af dagskránni. Páll Magnússon formaður allsherjar- og menntamálanefndar telur fullvíst að fjölmiðlafrumvarpið verði að lögum áður en vorþingi lýkur.Vísir/Vilhelm Páll Magnússon formaður nefndarinnar segir málið þó ekki hafa verið kallað til baka til nefndarinnar. „Það komu upp álitaefni varðandi gildistíma frumvarpsins. Þess vegna ákváðum við að fresta umræðunni sem hefði átt að fara fram í gær og fara aðeins yfir það mál. Ég reikna með að það komi niðurstaða í það mál á morgun,“ segir Páll. Það er ekkert launungarmál að töluverð andstaða hefur verið við frumvarpið hjá þingmönnum Sjálfstæðisflokksins. Páll segir ekki ágreining um hvort um verði að ræða einskiptisaðgerð eða ekki. Það sé heldur ekki ágreiningur um gildistíma laganna heldur álitaefni um hvað orðalagið varðandi hann þýði. Hvers vegna hefur þetta mál velkst svona lengi í þinginu. Hvers vegna er þetta svona erfitt? „Þetta er bara viðkvæmt mál sem tekur á nokkrum grundvallaratriðum. Eins og til dæmis þvíhvort ríkið eigi aðstíga með beinum hætti á fjárlögum til aðstoðar viðfyrirtæki í einkarekstri. Þannig að þaðer eðlilegt að þetta taki langan tíma og kosti svolitla yfirlegu. En ég geri ráð fyrir þvíað við ljúkum þessu máli ánæstu dögum eða vikum og lögin taki gildi fyrir þinglok núna í vor,“ segir Páll. Þá sé einnig verið að ræða aðra hluti sem snerti rekstrarvanda einkarekinna miðla á Íslandi. „Þar með taliðskattleysi útlendra samfélagsmiðla á Íslandi. Sem eru farnir aðtaka til sín sístækkandi hluta af íslenskri auglýsingaköku án þess aðþurfa að standa skil áeinu eða neinu hérna áÍslandi. Þannig aðþað kemur inn íþetta mál líka. Þetta mál er flókiðog viðkvæmt en ég geri ráð fyrir að viðljúkum þvíinnan tíðar,“ segir Páll Magnússon.
Fjölmiðlar Fjölmiðlalög Alþingi Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur Tengdar fréttir Fjölmiðlastyrkirnir afgreiddir með breytingartillögum Meirihluti allsherjar- og menntamálanefndar hefur skilað áliti sínu á fjölmiðlafrumvarpi menntamálaráðherra. Lagt er til að umsóknarfrestur verði til 31. maí og lögin taki þegar gildi. 7. maí 2021 11:08 Leggur til að stuðningur til fjölmiðla verði háður hlýðni við siðareglur Umræða um fjölmiðlafrumvarpið sem felur í sér stuðning til einkarekinna fjölmiðla stendur nú yfir á Alþingi. 19. janúar 2021 15:32 Fjölmiðlafrumvarpi frestað fram yfir áramót Umræðu um fjölmiðlafrumvarp menntamálaráðherra verður frestað fram yfir áramót og umsagnarfrestur um stofnun hálendisþjóðgarðs verður lengdur. Þetta er á meðal þess sem þingflokkarnir sömdu um í gærkvöldi þegar samkomulag náðist um afgreiðslu mála fyrir þinghlé. Samþykkt var að taka fyrstu umræðu um nokkur stjórnarmál, líkt og frumvarp fjármálaráðherra um afnám tvöfaldrar refsingar við skattalagabrotum og frumvörp félagsmálaráðherra um samþættingu á þjónustu fyrir börn. 9. desember 2020 20:00 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Konurnar hafi gert allt til að setja ekki svartan blett á starfsemina Innlent Þekkir dæmi um endalaus uppköst og garnalömun vegna lyfjanna Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Bæjarstjóri sakaður um að vera njósnari: „Enginn veit hver hún er“ Erlent Segir Helgu fara með rangt mál Innlent Horfa á bíómyndir og senda tölvupósta á meðan þeir keyra Innlent Gular viðvaranir víðs vegar um landið Veður Segir alvarlegt hvernig Katrín tjáði sig um Persónuvernd Innlent Með vopn og fíkniefni í útistöðum við dyravörð Innlent Gantz hótar að segja af sér vegna ósættis við Netanjahú Erlent Fleiri fréttir Áfall þegar samskipti Katrínar og Kára voru birt Aukin skjálftavirkni og erjur um Erfðagreiningu Örlítil aukning í skjálftavirkni undir Svartsengi Forsetakosningar, mansal og samningar Reykjavíkur við olíufélögin Segir Helgu fara með rangt mál Þekkir dæmi um endalaus uppköst og garnalömun vegna lyfjanna Konurnar hafi gert allt til að setja ekki svartan blett á starfsemina Með vopn og fíkniefni í útistöðum við dyravörð Horfa á bíómyndir og senda tölvupósta á meðan þeir keyra 40 tungumál eru töluð í leik- og grunnskólum Árborgar Segir alvarlegt hvernig Katrín tjáði sig um Persónuvernd Þungar áhyggjur af þyngdarstjórnunarlyfjum Bergvin dæmdur fyrir að áreita þrjár konur Slasaður eftir hestaslys í Ölfusi Nauðsynlegt að fresta atkvæðagreiðslu um umdeilda verksmiðju Ekki megrunarlyf heldur lyf við offitu Segja grafalvarlegt mál að fresta atkvæðagreiðslu „Það er miður að það falli til kostnaður vegna þessa“ Átök í Ölfusi og offitulyf Ákærður fyrir að pissa daginn eftir Fiskidaginn mikla Gular viðvaranir á Suðurlandi, Suðausturlandi og Faxaflóa á morgun Nauðugur sá kostur að fresta atkvæðagreiðslunni „Engu okkar er boðið að koma þarna og sjá“ Skuldirnar bíði þegar frelsið taki við Of þung en annars hraust á Ozempic Slagsmálahundar afþökkuðu aðstoð lögreglu Útgjöld ríkissjóðs vegna Grindavíkur hátt í hundrað milljarðar Fresta íbúakosningu í Ölfusi um mölunarverksmiðju Lífleg og skrautleg kosningabarátta að mati forsætisráðherra Dregur saman með efstu frambjóðendum Sjá meira
Fjölmiðlastyrkirnir afgreiddir með breytingartillögum Meirihluti allsherjar- og menntamálanefndar hefur skilað áliti sínu á fjölmiðlafrumvarpi menntamálaráðherra. Lagt er til að umsóknarfrestur verði til 31. maí og lögin taki þegar gildi. 7. maí 2021 11:08
Leggur til að stuðningur til fjölmiðla verði háður hlýðni við siðareglur Umræða um fjölmiðlafrumvarpið sem felur í sér stuðning til einkarekinna fjölmiðla stendur nú yfir á Alþingi. 19. janúar 2021 15:32
Fjölmiðlafrumvarpi frestað fram yfir áramót Umræðu um fjölmiðlafrumvarp menntamálaráðherra verður frestað fram yfir áramót og umsagnarfrestur um stofnun hálendisþjóðgarðs verður lengdur. Þetta er á meðal þess sem þingflokkarnir sömdu um í gærkvöldi þegar samkomulag náðist um afgreiðslu mála fyrir þinghlé. Samþykkt var að taka fyrstu umræðu um nokkur stjórnarmál, líkt og frumvarp fjármálaráðherra um afnám tvöfaldrar refsingar við skattalagabrotum og frumvörp félagsmálaráðherra um samþættingu á þjónustu fyrir börn. 9. desember 2020 20:00