Býst við að ágreiningurinn verði að dómsmáli Margrét Helga Erlingsdóttir skrifar 10. júlí 2020 12:16 Sigríður Björk Guðjónsdóttir, ríkislögreglustjóri, segir að miklir hagsmunir séu í húfi fyrir fámennan hóp. Vísir/Vilhelm Gunnarsson
Ríkislögreglustjóri á fastlega von á því að fyrirhugaðar breytingar á samningum við yfirlögregluþjóna og aðstoðaryfirlögregluþjóna verði að dómsmáli. Hún segir það ekki vera réttlátt að fámennur hópur í starfsliðinu njóti sérlífeyriskjara sem aðrir geri ekki. Sigríður Björk Guðjónsdóttir, ríkislögreglustjóri, hyggst vinda ofan af samningum sem Haraldur Jóhannessen, forveri hennar í embætti, gerði við yfirlögregluþjóna og aðstoðaryfirlögregluþjóna. Hún segir í samtali við fréttastofu að breytingarnar snúist ekki um eiginlegar launalækkanir heldur breytingar á eftirlaunakerfi þannig að unnið sé eftir núgildandi eftirlaunakerfi. Henni finnist ekki réttlátt að tiltölulega fámennur hópur í stéttinni njóti sérkjara er varðar lífeyrisréttindi sem aðrir njóti ekki. Breytingarnar eiga alls við um ellefu einstaklinga. Niðurstaða álitsins sem Sigríður aflaði er að Haraldur hafi ekki haft heimild til að gera umrædda samninga, þeir hafi hvorki stoð í lögum né stofnanasamningi ríkislögreglustjóra, auk þess sem engin málefnaleg rök hafi verið fyrir þeim. Í ljósi þessa sé hægt að ógilda þá. Hún vildi ekki tjá sig frekar um málið í ljósi þess að hún hafi ekki náð að ræða við alla hlutaðeigandi. Þá vill hún einnig virða andmælarétt þeirra en þeir hafa tvær vikur til að senda inn umsagnir um breytingarnar. Að þeim tíma liðnum telur Sigríður Björk líklegt að málið endi í dómssal enda séu miklir hagsmunir í húfi fyrir fámennan hóp líkt og Sigríður komst sjálf að orði. Sigríður sagði í kvöldfréttum ríkisútvarpsins í gær að breytingarnar væru að undirlagi Áslaugar Örnu Sigurbjörnsdóttur, dómsmálaráðherra, en í viðtali hjá Morgunblaðinu í fyrra sagði Áslaug að eftir að hafa rætt við Harald Jóhannessen væri ljóst að hann hefði fulla heimild til umræddra ákvarðana. Í samtali við fréttastofu sagði Jón Bjartmarz, yfirlögregluþjónn hjá ríkislögreglustjóra, að lögmaður Landssambands lögreglumanna ynni nú að lögfræðiáliti þar sem breytingunum er andmælt. Lögmaðurinn telji lögfræðiálitið ekki standast.
Tengdar fréttir Áliti ríkislögreglustjóra verður andmælt Lögmaður Landssambands lögreglumanna telur lögfræðiálit sem Sigríður Björk Guðjónsdóttir ríkislögreglustjóri hefur aflað ekki standast. Hann vinnur að lögfræðiáliti þar sem sjónarmiðum þess er andmælt. 10. júlí 2020 06:40 Haraldur hafði ekki heimild til að semja um kjarabætur nokkurra lögregluþjóna Haraldur Johannessen, fyrrverandi ríkislögreglustjóri hafði ekki heimild til að semja við yfirlögregluþjóna og aðstoðaryfirlögregluþjóna um kjarabætur. 9. júlí 2020 19:33 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Fjölskylda í norðurljósaleit hrakin á brott af leiðsögumönnum Innlent „Það þarf að stoppa svona menn áður en þeir drepa einhvern“ Innlent Svipar til gamalla óupplýstra rána Innlent Fullkomlega sáttur við ákvörðun sína en útilokar ekkert Innlent Verulega brugðið yfir Hamraborgarmálinu Innlent „Trúði því ekki að þetta væri ég“ Innlent Hamfaragámur Bónus tryggir kældan mat í neyðarástandi Innlent Hátt í hundrað dauðsföll á þremur árum Innlent Vilja koma böndum á bókhald trúfélaga Innlent Sýknaður af ákæru um að hafa tekið í háls barns Innlent Fleiri fréttir Hamfaragámur Bónus tryggir kældan mat í neyðarástandi Fullkomlega sáttur við ákvörðun sína en útilokar ekkert „Það þarf að stoppa svona menn áður en þeir drepa einhvern“ Hádegisfréttir Bylgjunnar Svipar til gamalla óupplýstra rána Sýknaður af ákæru um að hafa tekið í háls barns Bjartur skírdagur fram undan í höfuðborginni Líkamsárás til rannsóknar eftir nóttina Fjölskylda í norðurljósaleit hrakin á brott af leiðsögumönnum Vilja koma böndum á bókhald trúfélaga Ferðaóðir Íslendingar þyrpast í ferðalög innanlands sem utan Verulega brugðið yfir Hamraborgarmálinu Hátt í hundrað dauðsföll á þremur árum Týndi vinningshafinn gaf sig fram og græddi níu milljónir Felldu úr gildi friðlýsingu en mátu Mumma ekki vanhæfan Kvöldfréttir Stöðvar 2 Býr á Íslandi en dæmd í sex ára fangelsi í Rússlandi Eldur í Hafnarfirði Haraldur mátti ekki hækka launin en Sigríður ekki heldur lækka þau Læknafélagið mótfallið lögleiðingu dánaraðastoðar „Trúði því ekki að þetta væri ég“ Ekki viss hvort nokkru þurfi að breyta eftir tug milljóna króna þjófnað 546 Grindvíkingar vilja selja Þórkötlu húsið sitt Steinunn Ólína hálfu skrefi frá því að bjóða sig fram Baldur mælist með langmest fylgi Stálu áli í Grindavík en gómaðir af lögreglu Útlit fyrir að gasmengun berist til vesturs og suðvesturs Hæstiréttur bannar síþrotamanni að stunda rekstur Flestir öryggishnappar vegna heimilisofbeldis Fá 82 þúsund fyrir að vinna frá átta til 23 Sjá meira
Áliti ríkislögreglustjóra verður andmælt Lögmaður Landssambands lögreglumanna telur lögfræðiálit sem Sigríður Björk Guðjónsdóttir ríkislögreglustjóri hefur aflað ekki standast. Hann vinnur að lögfræðiáliti þar sem sjónarmiðum þess er andmælt. 10. júlí 2020 06:40
Haraldur hafði ekki heimild til að semja um kjarabætur nokkurra lögregluþjóna Haraldur Johannessen, fyrrverandi ríkislögreglustjóri hafði ekki heimild til að semja við yfirlögregluþjóna og aðstoðaryfirlögregluþjóna um kjarabætur. 9. júlí 2020 19:33