Meðalfjölskylda muni verja 239 þúsund í jólainnkaupin Eiður Þór Árnason skrifar 29. nóvember 2021 15:00 Mikill annatími er fram undan í verslunarkjörnum landsins. Vísir/Vilhelm Rannsóknarsetur verslunarinnar (RSV) spáir því að hver Íslendingur muni verja 59.715 krónum til jólainnkaupa í nóvember og desember. Það gera rúmlega 238.800 krónur fyrir fjögurra manna fjölskyldu.
Spáir RSV að jólaverslun muni aukast um 3,86% frá síðasta ári og að aukningin nemi um 0,1% að raunvirði. Í fyrra jókst velta smávöruverslana yfir jólamánuðina um 17,4% eða um tæplega 16,4 milljarða króna að nafnvirði miðað við sama tímabil árið 2019. Samkvæmt gögnum um virðisaukauppgjör Hagstofu Íslands hækkaði jólavelta mest árið 2011 þegar hún jókst um 7,9%. Að mati RSV eru horfur á góðri jólaverslun í ár en verðlækkanir, vöruskortur og vandræði tengd faraldrinum muni þó líklega hafa þær afleiðingar að aukningin verði minni en annars. Þetta kemur fram í nýrri samantekt RSV um jólaverslun. Telja að verslað verði fyrir 136 milljarða króna RSV spáir því að velta í smásöluverslun í nóvember og desember þetta árið verði um rúmir 136 milljarðar króna með virðisaukaskatti. Þar af eru rúmir 22 milljarðar umfram meðaltal annarra mánaða ársins og má ætla að þeir séu vegna jólainnkaupa. Samkvæmt netkönnun sem framkvæmd var af Prósent í byrjun nóvembermánaðar sögðust 20% aðspurðra ætla að verja 10 til 49 þúsund krónum í jólagjafir í ár og 29% sögðust ætla að verja 50 til 99 þúsund krónum. RSV gaf ekki út spá um jólaverslun í fyrra en gögn benda nú til að kórónuveirufaraldurinn hafi í lang flestum tilvikum haft jákvæð áhrif á innlenda verslun. Leiða má líkur að því að aukna veltu í innlendri verslun á árinu megi að hluta rekja til samkomu-og ferðatakmarkana vegna faraldursins. Að sögn RSV kemur sú aukning líklega til bæði vegna tilfærslu á milli innlendrar og erlendrar verslunar en einnig vegna þess að framboð á afþreyingu og öðru sem neytendur hafa vanalega kost á að verja fjármunum sínum í hafi dregist saman.
Verslun Jól Fjármál heimilisins Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Matvöruverslun og íbúðir steinsnar frá Keflavíkurflugvelli Viðskipti innlent Krökkunum finnst hálf hallærislegt að mamman kunni Friends þættina utan að Atvinnulíf Dýrmætustu og sjaldgæfustu Mustang bílar landsins á afmælissýningu Mustang Samstarf Þarf að greiða kortareikninginn og meira til í málskostnað Neytendur Mun bjóða upp á sömu flugáætlun og Bláfugl áður Viðskipti innlent Krónísk óstundvísi: Skýringar og góð ráð Atvinnulíf Viljinn tekinn til gjaldþrotaskipta Viðskipti innlent Tekjur Apple drógust saman enn eina ferðina Viðskipti erlent Röntgen Domus og Orkuhúsið fá ekki að sameinast Viðskipti innlent Stofnandi Binance dæmdur fyrir peningaþvætti Viðskipti erlent Fleiri fréttir Matvöruverslun og íbúðir steinsnar frá Keflavíkurflugvelli Röntgen Domus og Orkuhúsið fá ekki að sameinast Viljinn tekinn til gjaldþrotaskipta Spá því að stýrivextir haldist óbreyttir Bein útsending: Ársfundur SFS – Best í heimi? Mun bjóða upp á sömu flugáætlun og Bláfugl áður Grindvíkingar borgi allt að þriðjungi hærri leigu en aðrir Guðný og Sigurður Helgi til SI Tekur við stöðu sviðsstjóra Netöryggismiðstöðvar Íslands Hagnaður Íslandsbanka 5,4 milljarðar á fyrsta fjórðungi Arnar Már nýr aðstoðarforstjóri Vinnunetföng algeng leið fyrir hakkara til að brjótast inn í íslensk fyrirtæki Sjö vilja taka við af Gunnari Hagnaður Landsbankans nam 7,2 milljörðum á fyrstu þremur mánuðum ársins Frumkvöðlar koma saman í Kolaportinu Hefja sölu á íbúðum á Orkureitnum Bein útsending: Stærri styrktækifæri í mannvirkjaiðnaði Lokar Önnu Jónu og segir það mikinn létti Hagnaður Arion dróst saman um tvo milljarða Hefja úthlutun lóða í Vatnsendahvarfi Ráðherra bað um tíu milljarða króna í viðbót í arð Bein útsending: Eftirfylgni við Stöðugleikasamninginn Landa stórum sölusamningi Reginn afturkallar samrunatilkynningu við Eik Vextir verði ekki lækkaðir fyrr en í haust Hafa tryggt útgáfu íslenska tölvuleiksins Island of Winds Verðbólgan úr sex prósentum í ár í 3,5 prósent árið 2026 Vilja gera tilraunir með orkuframleiðslu í geimnum á Íslandi Reksturinn þungur í kjölfar „yfirgangs og afskipta lögreglu“ Fjármálastjóri Play segir upp Sjá meira