Þungunarrof nær algerlega bannað í Póllandi Kjartan Kjartansson skrifar 22. október 2020 15:59 Mótmælendur komu saman fyrir utan stjórnlagadómstólinn í Varsjá áður en dómurinn var kveðinn upp í dag. Vísir/EPA
Dómur stjórnlagadómstóls Póllands um að þungunarrof vegna fósturgalla stangist á við stjórnarskrá landsins þýðir að þungunarrof verður nú bannað í nær öllum tilfellum í landinu. Aðgerðin verður nú aðeins heimil í tilfelli nauðgunar, sifjaspells eða þegar líf eða heilsa móður er í hættu. Dómstóllinn komst að þeirri niðurstöðu að það stríddi gegn stjórnarskrá að skilyrða líf fósturs við heilsu þess, að því er segir í frétt Reuters-fréttastofunnar. Fósturgalli var algengasta ástæðan fyrir þeim þungunarrofum sem hafa farið fram löglega í Póllandi. Aðeins 2% þeirra aðgerða sem hafa verið gerðar undanfarin ár eru á þeim forsendum sem verða áfram taldar gildar. Kvenréttindasamtök segja dóminn verstu mögulegu niðurstöðuna sem eigi eftir að rústa lífi fjölda kvenna og fjölskyldna. Þungunarrofslög í Póllandi voru ein þau ströngustu í Evrópu fyrir. „Þetta neyðir sérstaklega þá snauðu til að fæða börn gegn vilja sínum. Annað hvort eiga þau engar líkur á að lifa af, þau hafa engan möguleika á sjálfstæðu lífi eða þau eiga eftir að deyja skömmu eftir fæðingu,“ segir Kamila Ferenc, lögmaður sem vinnur með samtökum sem aðstoða konur sem hefur verið neitað um þungunarrof. Dunja Mijatovic, mannréttindastjóri Evrópusambandsins, harmaði niðurstöðu pólska dómstólsins og sagði daginn dapurlegan fyrir kvenréttindi. Ríkisstjórn hægriflokksins Laga og réttlætis hefur lengi haft það á stefnuskránni að þrengja enn að rétti kvenna til þungunarrofs. Flestir dómarar við stjórnlagadómstólinn voru skipaðir af flokknum. Baráttufólk fyrir rétti kvenna til þungunarrofs hefur sakað yfirvöld um að neita konum um þungunarrof, jafnvel í þeim tilfellum sem það er löglegt. Margir læknar nýta sér ennfremur rétt til að hafna því að gera aðgerðina af trúarlegum ástæðum en sumir þeirra segjast undir þrýstingi frá yfirboðurum sínum um það.
Pólland Þungunarrof Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið „Það þarf að stoppa svona menn áður en þeir drepa einhvern“ Innlent Fjölskylda í norðurljósaleit hrakin á brott af leiðsögumönnum Innlent Svipar til gamalla óupplýstra rána Innlent Fullkomlega sáttur við ákvörðun sína en útilokar ekkert Innlent Hamfaragámur Bónus tryggir kældan mat í neyðarástandi Innlent Íbúar Hlíða velta fyrir sér dularfullum hvelli Innlent Verulega brugðið yfir Hamraborgarmálinu Innlent „Trúði því ekki að þetta væri ég“ Innlent Ísland sé í torfkofanum í meðferð alvarlegra atvika Innlent Hátt í hundrað dauðsföll á þremur árum Innlent Fleiri fréttir Fundu lík tveggja verkamanna sem voru á brúnni Stjórnmálamaðurinn Joe Lieberman látinn Segir árásarmennina hafa ætlað til Belarús Taíland skrefinu nær því að leyfa samkynja hjónabönd Dómararnir virtust efast um réttmæti málsins gegn FDA Skammar lögreglu fyrir að nota lego til að dylja andlit sakborninga Japanskt fyrirtæki skiptir ungbarnableyjum út fyrir fullorðinsbleyjur Þeir sem fóru í ána taldir látnir Sakar Bandaríkjamenn og Breta um aðkomu að árásinni Kenna öryggisráðinu um „galnar“ kröfur Hamas Skipið varð vélarvana rétt áður en það hafnaði á brúnni Segja minnst sjö bíla hafa fallið í ána Assange verður ekki framseldur strax Leita fólks í ánni eftir að brúin hrundi Hverjir eru ISKP? Skæðasti angi Íslamska ríkisins teygir anga sína til Moskvu Strangtrúaðir æfir yfir því að verða mögulega skikkaðir til herþjónustu Brú hrundi eftir árekstur í Baltimore Gerðu húsleit hjá Diddy í Los Angeles og Miami Beinir spjótunum enn að Úkraínu Stórmál fari Ísrael ekki eftir ályktun öryggisráðsins Netanjahú í fýlu við Biden Lækka trygginguna meðan Trump áfrýjar Öryggisráð SÞ samþykkir ályktun um vopnahlé á Gasa Heita hefndum en freista þess enn að bendla Úkraínu við árásina Vísindamenn vilja friðlýsa vísindalega mikilvæg svæði á tunglinu Sagrada Familia verði loks tilbúin árið 2034 Flóttamannaaðstoðinni meinað að koma birgðum til hrjáðra Fjórir menn fyrir dómara vegna hryðjuverkanna Simon Harris nýr leiðtogi Fine Gael Sleppti pálmasunnudagsprédikun á síðustu stundu Sjá meira