Staðfesta að líkið sé af ungu konunni og að henni hafi verið ráðinn bani Kjartan Kjartansson skrifar 22. september 2021 08:25 Hvarf Gabby Petito hefur fangað athygli Bandaríkjamanna. Hún og Laundrie fóru mikinn á samfélagsmiðlum á ferðalagi sínu á meðan allt lék í lyndi. Vísir/Getty Lík sem fannst við þjóðgarð í Wyoming í Bandaríkjunum er af ungri konu sem hvarf þegar hún var á ferðalagi um landið með unnusta sínum í sumar. Dánardómstjóri staðfestir þetta og segir að henni hafi verið ráðinn bani.
Gabrielle „Gabby“ Petito, sem var 22 ára, hvarf þegar hún var á ferðalagi í breyttum sendiferðabíl með Brian Laundrie, 23 ára gömlum unnusta sínum, í ágúst. Laundrie sneri einn heim úr ferðinni í byrjun september og neitaði að segja fjölskyldu Petito og lögreglu hvað varð um hana. Hans hefur nú verið saknað frá því á þriðjudag í síðustu viku. Lögreglumenn fundu lík sem passaði við lýsingar á Petito við mörk Grand Teton-þjóðgarðsins í Wyoming á sunnudag. Yfirvöld biðu með að staðfesta það endanlega þar til niðurstaða réttarmeinarannsóknar lægi fyrir. Nú hefur dánardómstjóri í Teton-sýslu staðfest að líkið sé af Petito og að hún hafi verið drepin. Hann upplýsti þó ekki hver dánarorsök Petito var, að sögn AP-fréttastofunnar. Hvarf Petito hefur vakið athygli á landsvísu í Bandaríkjunum, sérstaklega á samfélagsmiðlum. Parið var á ferðalagi í sendiferðabílnum um landið endilangt og birti fjölda mynda og myndbanda á samfélagsmiðlum. Síðustu skilaboðin heim vöktu áhyggjur fjölskyldunnar Leit að Laundrie á fenjasvæði á Suður-Flórída hélt áfram án árangurs í gær. Það síðasta sem foreldrar hans vissu af syni sínum var að hann ætlaði að ganga einn um Charlton-náttúruverndarsvæðið. Washington Post segir að til standi að halda leitinni áfram í dag. Laundrie var ekki með réttarstöðu grunaðs í rannsókn lögreglu áður en hann hvarf sjálfur en lögregla vildi ná tali af honum. Lögmaður hans réð honum frá því að veita upplýsingar um afdrif Petito. Lögregla gerði húsleit á heimili foreldra Laundrie í bænum North Port á Flórída á mánudag. Í leitarheimild lögreglu kom fram að síðustu smáskilaboðin sem Petito sendi móður sinni 27. ágúst hafi valdið fjölskyldu hennar áhyggjum af velferð hennar. Eftir þann dag var slökkt á símanum og Petito hætti að birta færslur á samfélagsmiðlum um ferðalagið. Eftir að tilkynnt var um hvarf Petito greindi lögregla í Utah frá því að hún hefði haft afskipti af parinu eftir að tilkynnt var um að Laundrie hefði lagt hendur á hana í ágúst. Myndbönd frá lögregluþjónum sem ræddu við þau sýndu Petito grátandi óstjórnlega. Parinu var skipað að gista hvort í sínu lagi þá um nóttina.
Bandaríkin Erlend sakamál Gabrielle Petito Tengdar fréttir Húsleit á heimili kærasta ungu konunnar sem hvarf Fulltrúar bandarísku alríkislögreglunnar gerðu húsleit á heimili unnusta Gabrielle Petito sem hvarf þegar þau voru saman á ferðalagi um Bandaríkin í sumar. Til stendur að kryfja lík sem talið er vera af Petito í dag. 21. september 2021 09:54 Telja sig hafa fundið lík ungrar konu sem hvarf á ferðalagi með kærastanum Bandaríska alríkislögreglan staðfesti í gær að lík Gabrielle Petito, sem var saknað eftir að hún fór í ferðalag með kærastanum þvert yfir Bandaríkin, hefði að líkindum fundist í Wyoming. Kærasta hennar er nú einnig saknað og fór umfangsmikil leit fram á náttúruverndarsvæði á Flórída um helgina. 20. september 2021 10:21 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Lokuðu þorpi í leit að svörum um hvarf tveggja ára drengs Erlent Stærsti gígurinn orðinn „formfagur“ Innlent Ákærður fyrir leynilega nektarmynd í Nauthólsvík Innlent Vill að Færeyjar fái nýjan flugvöll Erlent Lýsisskip strandaði í Fáskrúðsfirði Innlent „Þetta er dagurinn til að skella sér á skíði“ Innlent Umfangsmikið verkefni að hreinsa til eftir slysið Erlent Hviður allt að 35 metrar á sekúndu og hætt við sandfoki Innlent Ísland að tapa í slagnum um ferðamenn Innlent Voru sérstaklega varaðir við árás frá ISKP Erlent Fleiri fréttir Umfangsmikið verkefni að hreinsa til eftir slysið Vill að Færeyjar fái nýjan flugvöll Nærri fjörutíu taldir af eftir loftárásir Ísraela á Sýrland Lokuðu þorpi í leit að svörum um hvarf tveggja ára drengs Átta ára stúlka sú eina sem lifði rútuslys af Voru sérstaklega varaðir við árás frá ISKP Kallaði eftir aðstoð dráttarbáts skömmu fyrir slysið Rafmyntakóngurinn í 25 ára fangelsi Fundu lík tveggja verkamanna sem voru á brúnni Stjórnmálamaðurinn Joe Lieberman látinn Segir árásarmennina hafa ætlað til Belarús Taíland skrefinu nær því að leyfa samkynja hjónabönd Dómararnir virtust efast um réttmæti málsins gegn FDA Skammar lögreglu fyrir að nota lego til að dylja andlit sakborninga Japanskt fyrirtæki skiptir ungbarnableyjum út fyrir fullorðinsbleyjur Þeir sem fóru í ána taldir látnir Sakar Bandaríkjamenn og Breta um aðkomu að árásinni Kenna öryggisráðinu um „galnar“ kröfur Hamas Skipið varð vélarvana rétt áður en það hafnaði á brúnni Segja minnst sjö bíla hafa fallið í ána Assange verður ekki framseldur strax Leita fólks í ánni eftir að brúin hrundi Hverjir eru ISKP? Skæðasti angi Íslamska ríkisins teygir anga sína til Moskvu Strangtrúaðir æfir yfir því að verða mögulega skikkaðir til herþjónustu Brú hrundi eftir árekstur í Baltimore Gerðu húsleit hjá Diddy í Los Angeles og Miami Beinir spjótunum enn að Úkraínu Stórmál fari Ísrael ekki eftir ályktun öryggisráðsins Netanjahú í fýlu við Biden Lækka trygginguna meðan Trump áfrýjar Sjá meira
Húsleit á heimili kærasta ungu konunnar sem hvarf Fulltrúar bandarísku alríkislögreglunnar gerðu húsleit á heimili unnusta Gabrielle Petito sem hvarf þegar þau voru saman á ferðalagi um Bandaríkin í sumar. Til stendur að kryfja lík sem talið er vera af Petito í dag. 21. september 2021 09:54
Telja sig hafa fundið lík ungrar konu sem hvarf á ferðalagi með kærastanum Bandaríska alríkislögreglan staðfesti í gær að lík Gabrielle Petito, sem var saknað eftir að hún fór í ferðalag með kærastanum þvert yfir Bandaríkin, hefði að líkindum fundist í Wyoming. Kærasta hennar er nú einnig saknað og fór umfangsmikil leit fram á náttúruverndarsvæði á Flórída um helgina. 20. september 2021 10:21