Ætlar sér að hjálpa því starfsfólki sem missir vinnuna Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 19. september 2021 12:01 Wayne Rooeny á hliðarlínunni í leik dagsins. Alex Morton/Getty Images Wayne Rooney, þjálfari Derby County í ensku B-deildinni , segist ætla að gera það sem í hans valdi stendur til að hjálpa starfsfólki félagsins sem mun missa starfið á næstu dögum. Derby er eitt þeirra íþróttafélaga sem hefur komið hvað verst út úr kórónufaraldrinum. Félagið er með örþunnan leikmannahóp en tókst samt sem áður að vinna góðan 2-1 sigur á Stoke City í gærkvöld. Félagið ætti því að vera með 10 stig í 12. sæti en eftir að 12 stig verða dregin af því er ljóst að liðið verður neðst með mínus tvö stig. „Tilfinningaþrungið ef ég er hreinskilinn, við erum í erfiðri stöðu. Stuðningsfólk okkar vill sjá leikmennina leggja hart að sér. Ég mun halda áfram að sinna mínu starfi og sjá til þess að þeir geri það,“ sagði Rooney eftir leikinn gegn Stoke City í dag en stuðningsfólk Derby studdi vel við lið sitt, meira að segja eftir að flautað hafði verið til leiksloka. Today's atmosphere #DCFC pic.twitter.com/BTLZWiVxZI— Derby County (@dcfcofficial) September 18, 2021 Næsta vika verður erfið hjá Derby þar sem hafist verður handa við að skera niður launakostnað og útgjöld félagsins. „Fullt af starfsfólki félagsins mun eflaust missa starfið og það brýtur í manni hjartað. Þau eru flest öll augljóslega með húsnæðislán og reikninga sem þarf að borga. Þetta er ömurlegt í alla staði og ég mun gera allt sem í mínu valdi stendur til að styðja við bakið á starfsfólki félagsins og hjálpa því eins og ég get. Mér líður eins og starfsfólk félaganna gleymist oft í umræðunni, það er mikið af góðu fólki sem starfar hér og hefur gert í langan tíma. Við þurfum öll að standa saman.“ „Ég hef sagt það áður að ég er skuldbundinn félaginu. Mér er annt um leikmennina og starfsfólkið og mun gera allt sem í mínu valdi stendur til að hjálpa til við að koma okkur í gegnum þennan hjalla. Við eigum erfitt núna en við munum komast í gegnum það og það er mitt starf að sjá til þess að við komumst í gegnum það eins vel og hægt er,“ sagði Wayne Rooney að lokum. Championship-deildin er á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. EFL Championship er hluti af Stöð 2 Sport erlent sem kostar 3.990 krónur á mánuði en einnig má kaupa útsendingar sem stakan viðburð á 990 krónur. Fótbolti Enski boltinn Mest lesið Hefur fest rætur á Íslandi eftir örlagaríkt símtal Íslenski boltinn Jón Arnar grét það ekki að sjá Daníel slá þrjátíu ára Íslandsmet sitt Sport Gamli Íslandsvinurinn kraftaverkamaður í Mainz Fótbolti Klopp: Ulla konan mín mun segja mér hvað við erum að fara að gera Enski boltinn Meistararnir úr leik eftir stærstu endurkomu sögunnar Körfubolti Endurkoma í lagi hjá BKG og elleftu heimsleikarnir í röð Sport Í beinni: Vestri-Víkingur | Nýliðarnir taka á móti meisturunum Íslenski boltinn Guardiola um framtíðina: Nær því að hætta en vera áfram Enski boltinn Kvaddi stuðningsmennina og kenndi þeim lag um nýja stjórann Fótbolti Mark Quansah fyrir Liverpool bætti markametið Enski boltinn Fleiri fréttir Dagný framlengir samning sinn við West Ham Mikel Arteta missti af möguleikanum Klopp: Ulla konan mín mun segja mér hvað við erum að fara að gera 23 ára og búinn að vinna deildina oftar en Rooney, Agüero og Terry Guardiola um framtíðina: Nær því að hætta en vera áfram Mark Quansah fyrir Liverpool bætti markametið Þetta gerðist í lokaumferðinni í enska | City meistari og Jóhann Berg kvaddi Skytturnar gerðu sitt en horfa samt á eftir titlinum Missti af rauðvínsglasi með Sir Alex Klopp segir að Liverpool verði í góðum höndum hjá Slot Ten Hag segir United í betri stöðu en fyrir ári Jón Daði og félagar náðu ekki að koma sér upp um deild Hayes kvaddi Chelsea með fimmta titlinum í röð og Dagný komin í hóp De Zerbi hættir hjá Brighton Foden valinn bestur á Englandi Arteta vonast eftir hjálp frá Moyes: „Vonandi gerist eitthvað dásamlegt“ Klökkur Jóhann Berg beygði af í viðtali Jóhann Berg fer frá Burnley í sumar Meiðslapésarnir fara frá Liverpool Slot staðfestir að hann taki við Liverpool Vill komast hjá því að afhenda City bikarinn Klopp enn fúll út í Maddison eftir að Liverpool missti af titlinum 2019 Leeds í úrslit um sæti í ensku úrvalsdeildinni Tímabilið búið hjá Ederson og City treystir á Ortega í síðustu tveimur leikjunum Chelsea sló spjaldametið í deildinni Hjólaði frá Mongólíu og grét af gleði þegar hann hitti hetjuna Umboðsmaður Olise dæmdur í sex mánaða bann Rashford reiður og reifst við áhorfanda fyrir leik Man. United sagði konunum ekki frá ákvörðuninni Rooney segir United losa sig við nær allan leikmannahópinn Sjá meira
Derby er eitt þeirra íþróttafélaga sem hefur komið hvað verst út úr kórónufaraldrinum. Félagið er með örþunnan leikmannahóp en tókst samt sem áður að vinna góðan 2-1 sigur á Stoke City í gærkvöld. Félagið ætti því að vera með 10 stig í 12. sæti en eftir að 12 stig verða dregin af því er ljóst að liðið verður neðst með mínus tvö stig. „Tilfinningaþrungið ef ég er hreinskilinn, við erum í erfiðri stöðu. Stuðningsfólk okkar vill sjá leikmennina leggja hart að sér. Ég mun halda áfram að sinna mínu starfi og sjá til þess að þeir geri það,“ sagði Rooney eftir leikinn gegn Stoke City í dag en stuðningsfólk Derby studdi vel við lið sitt, meira að segja eftir að flautað hafði verið til leiksloka. Today's atmosphere #DCFC pic.twitter.com/BTLZWiVxZI— Derby County (@dcfcofficial) September 18, 2021 Næsta vika verður erfið hjá Derby þar sem hafist verður handa við að skera niður launakostnað og útgjöld félagsins. „Fullt af starfsfólki félagsins mun eflaust missa starfið og það brýtur í manni hjartað. Þau eru flest öll augljóslega með húsnæðislán og reikninga sem þarf að borga. Þetta er ömurlegt í alla staði og ég mun gera allt sem í mínu valdi stendur til að styðja við bakið á starfsfólki félagsins og hjálpa því eins og ég get. Mér líður eins og starfsfólk félaganna gleymist oft í umræðunni, það er mikið af góðu fólki sem starfar hér og hefur gert í langan tíma. Við þurfum öll að standa saman.“ „Ég hef sagt það áður að ég er skuldbundinn félaginu. Mér er annt um leikmennina og starfsfólkið og mun gera allt sem í mínu valdi stendur til að hjálpa til við að koma okkur í gegnum þennan hjalla. Við eigum erfitt núna en við munum komast í gegnum það og það er mitt starf að sjá til þess að við komumst í gegnum það eins vel og hægt er,“ sagði Wayne Rooney að lokum. Championship-deildin er á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. EFL Championship er hluti af Stöð 2 Sport erlent sem kostar 3.990 krónur á mánuði en einnig má kaupa útsendingar sem stakan viðburð á 990 krónur.
Championship-deildin er á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. EFL Championship er hluti af Stöð 2 Sport erlent sem kostar 3.990 krónur á mánuði en einnig má kaupa útsendingar sem stakan viðburð á 990 krónur.
Fótbolti Enski boltinn Mest lesið Hefur fest rætur á Íslandi eftir örlagaríkt símtal Íslenski boltinn Jón Arnar grét það ekki að sjá Daníel slá þrjátíu ára Íslandsmet sitt Sport Gamli Íslandsvinurinn kraftaverkamaður í Mainz Fótbolti Klopp: Ulla konan mín mun segja mér hvað við erum að fara að gera Enski boltinn Meistararnir úr leik eftir stærstu endurkomu sögunnar Körfubolti Endurkoma í lagi hjá BKG og elleftu heimsleikarnir í röð Sport Í beinni: Vestri-Víkingur | Nýliðarnir taka á móti meisturunum Íslenski boltinn Guardiola um framtíðina: Nær því að hætta en vera áfram Enski boltinn Kvaddi stuðningsmennina og kenndi þeim lag um nýja stjórann Fótbolti Mark Quansah fyrir Liverpool bætti markametið Enski boltinn Fleiri fréttir Dagný framlengir samning sinn við West Ham Mikel Arteta missti af möguleikanum Klopp: Ulla konan mín mun segja mér hvað við erum að fara að gera 23 ára og búinn að vinna deildina oftar en Rooney, Agüero og Terry Guardiola um framtíðina: Nær því að hætta en vera áfram Mark Quansah fyrir Liverpool bætti markametið Þetta gerðist í lokaumferðinni í enska | City meistari og Jóhann Berg kvaddi Skytturnar gerðu sitt en horfa samt á eftir titlinum Missti af rauðvínsglasi með Sir Alex Klopp segir að Liverpool verði í góðum höndum hjá Slot Ten Hag segir United í betri stöðu en fyrir ári Jón Daði og félagar náðu ekki að koma sér upp um deild Hayes kvaddi Chelsea með fimmta titlinum í röð og Dagný komin í hóp De Zerbi hættir hjá Brighton Foden valinn bestur á Englandi Arteta vonast eftir hjálp frá Moyes: „Vonandi gerist eitthvað dásamlegt“ Klökkur Jóhann Berg beygði af í viðtali Jóhann Berg fer frá Burnley í sumar Meiðslapésarnir fara frá Liverpool Slot staðfestir að hann taki við Liverpool Vill komast hjá því að afhenda City bikarinn Klopp enn fúll út í Maddison eftir að Liverpool missti af titlinum 2019 Leeds í úrslit um sæti í ensku úrvalsdeildinni Tímabilið búið hjá Ederson og City treystir á Ortega í síðustu tveimur leikjunum Chelsea sló spjaldametið í deildinni Hjólaði frá Mongólíu og grét af gleði þegar hann hitti hetjuna Umboðsmaður Olise dæmdur í sex mánaða bann Rashford reiður og reifst við áhorfanda fyrir leik Man. United sagði konunum ekki frá ákvörðuninni Rooney segir United losa sig við nær allan leikmannahópinn Sjá meira