Traustið á Alþingi og lýðræðislegum ferlum í ræsinu Sunna Sæmundsdóttir skrifar 26. nóvember 2021 11:52 Guðmundur Gunnarsson var oddviti Viðreisnar í alþingiskosningunum. visir/vilhelm Frambjóðandi Viðreisnar í Norðvesturkjördæmi segir traust sitt á Alþingi og lýðræðislegum ferlum í ræsinu eftir niðurstöðu kjörbréfamálsins. Hann sjái engan annan kost í stöðunni en að fara með málið alla leið til Mannréttindadómstóls Evrópu.
Guðmundur Gunnarsson, oddviti Viðreisnar í Norðvesturkjördæmi í alþingiskosningunum, var einn þeirra sem mældist inni eftir fyrri talningu í kjördæminu. Eftir endurtalningu missti hann sæti sitt og var í hópi þeirra sem kærði kosningarnar. Hann segir niðurstöðu þingins, sem staðfesti í gær kjörbréf allra þingmanna samkvæmt seinni talningu, vonbrigði en þó viðbúna. „Ég held að það hafi allir vitað í hvað stefndi og hvernig ætti að leiða fram þessa súrrealísku og fáránlegu niðurstöðu,“ segir Guðmundur. „Við vitum að lög voru brotin og við vitum líka að það var hægt að svindla í þessum kosningum. Og það að við séum tilbúin til þess að stimpla það í sölum Alþingis og taka því af einhverri léttuð - ég held að það sé bara mikill áfellisdómur.“ Hann telur kjörbréfanefnd ekki hafa tekist að eyða neinum vafa. „Ég, eins og kannski margir aðrir Íslendingar hef hingað til borið mikið traust bæði til kosninga og lýðræðislegra ferla. Það er algjörlega í ræsinu eins og staðan er núna. Ég segi fyrir mitt leyti að ég sé enga ástæðu til þess að mæta á kjörstað fyrr en það er allavega búið að girða fyrir það að við getum umgengist svona mikilvæga ferla af jafn miklu fúski og raun ber vitni í þessu máli.“ Kjörbréfanefnd klofnaði í niðurstöðu sinni en meirihlutinn taldi þó rétt að staðfesta kjörbréf allra þingmanna.visir/Vilhelm Guðmundur hyggst nú fara yfir næstu skref ásamt lögfræðingum sínum og segist ætla alla leið með málið, sem hann telur eiga fullt erindi fyrir Mannréttindadómstól Evrópu. „Ég get ekkert annað, réttlætiskenndin er það rík. En það tekur tíma. En ég er ekki í nokkrum vafa um að sá dómur og að sú skoðun muni ekki fara sérstaklega mjúkum höndum um okkur eða vera neitt sérstaklega falleg.“ „Það er allavega ljóst í mínum huga af þessum atburðum í gær að við erum ekki fær um að standa með almannahagsmunum án þess að fá einhverjar leiðbeiningar um hvernig það er gert,“ segir Guðmundur.
Alþingi Alþingiskosningar 2021 Endurtalning í Norðvesturkjördæmi Norðvesturkjördæmi Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Segir upp hjá RÚV og snýr sér að pólitík Innlent Hættur við að styðja Höllu Hrund Innlent Viktor og Kári heltast úr lestinni Innlent Dramatík þegar tveimur var tilkynnt um ólögleg framboð Innlent Halla Hrund fremst í nýrri könnun og Katrín dottin niður í þriðja sæti Innlent Helmingurinn af búslóðinni í ruslið Innlent Ástand hinnar látnu bar þess merki að henni hefði verið ráðinn bani Innlent Guðrún á Glitstöðum segir vaðið yfir vilja almennings Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Boða verkfallsaðgerðir á Keflavíkurflugvelli í maí Innlent Fleiri fréttir Eltihrellirinn langoftast fyrrverandi maki Ógild framboð, flug í lamasessi og draumaferð í Disney „Ég held að Landskjörstjórn þurfi að endurskoða sína lögfræðiþekkingu“ Hættur við að styðja Höllu Hrund Meðferðarstöðinni Vík lokað í sumar Boða verkfallsaðgerðir á Keflavíkurflugvelli í maí Kjörinn heiðursmeðlimur í bandarísku lista- og vísindaakademíuna Guðrún á Glitstöðum segir vaðið yfir vilja almennings Helmingurinn af búslóðinni í ruslið Fyrstu tilnefningar til Vigdísarverðlauna Evrópuráðsþingsins kynntar á Alþingi Segir upp hjá RÚV og snýr sér að pólitík Ellefu verða í framboði til embættis forseta Íslands Landlæknir fer með ákvörðun Persónuverndar fyrir dóm Stór hópur fanga sem ekki treystir stofnunum Viktor og Kári heltast úr lestinni Ástand hinnar látnu bar þess merki að henni hefði verið ráðinn bani Dramatík þegar tveimur var tilkynnt um ólögleg framboð Best ef forseti hefur ekki verið í stjórnmálastarfi Ráðherra kynnir nýtt mælaborð farsældar barna Skjálfti við Bláfjöll í morgun og óbreytt við Sundhnúk Ætlaði að ganga frá álverinu og upp á Keflavíkurflugvöll Halla Hrund fremst í nýrri könnun og Katrín dottin niður í þriðja sæti Vopnuð rán tíðari en fólk gerir sér grein fyrir Óttast að saga slökkviliða á Íslandi glatist Plokkdagurinn mikli haldinn hátíðlegur um land allt Á ofsahraða undir áhrifum fíkniefna Efnahagsstefnan sé að ýta fólki í verðtryggð lán Ók blindfullur við Grímsvötn og hótaði að drepa alla Langt í að þeir nái sér að fullu Lögregla með eftirför í Vogahverfi Sjá meira