Nígeríubúar gátu aftur komist á samfélagsmiðilinn Twitter í dag eftir að íbúum landsins var meinaður aðgangur í sjö mánuði í kjölfar þess að tæknirisinn eyddi tísti forseta landsins, Muhammadu Buhari.
Það var í júní og síðan þá hafa mannréttindasamtök bent á versnandi stöðu tjáningafrelsis í Nígeríu, fjölmennasta landi Afríku.
Samningaviðræður hafa staðið yfir milli forsvarsmanna Twitter og nígerískra stjórnvalda um hvernig megi koma miðlinum upp að nýju í landinu. Meðal annars kom til tals að Twitter opnaðu starfsstöðvar í Nígeríu.
We are pleased that Twitter has been restored for everyone in Nigeria. Our mission in Nigeria & around the world, is to serve the public conversation.
— Twitter Public Policy (@Policy) January 13, 2022
We are deeply committed to Nigeria, where Twitter is used by people for commerce, cultural engagement, and civic participation.
Þrír fjórðu hlutar þeirra 200 milljón manna sem búa í Nígeríu eru undir 24 ára aldri og því mjög nettengd og sítengd á samfélagsmiðlum.
Ungmenni hafa notað samfélagsmiðla eins og Twitter til þess að taka þátt í þjóðfélagsumræðu, líkt og víða annarss staðar í heiminum. Myllumerkið #BringBackOurGirls fór um eins og eldur í sinu árið 2014 þegar hryðjuverkasamtökin Boko Haram rændu um 300 skólastúlkum í sveitaþorpi þar í landi.
Þá spruttu út á Twitter mótmæli sem áður en yfir lauk urðu þau stærstu sem sést hafa í landinu á síðari árum. Reiði fólks beindist gegn löggæslustofnunum og voru þær sakaðar um að mismuna fólki og sýna mikla grimmd.